Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 34
BOLTINN í í BRENNIDEPLI
, BÓKIN ÁFRAM AFRÍKA
Nll ER ÞAÐ
SVART
TEXTI OG MYNDIR: PÁLL STEFÁNSSON
LJÓSMYNDABÓKIN ÁFRAM AFRÍKA EFTIR
PÁL STEFÁNSSON LJÓSMYNDARA ER
KOMIN ÚT HJÁ ÚTGÁFUNNI CRYMOGEU.
í BÓKINNI ERU 199 STÓRKOSTLEGAR
MYNDIR FRÁ AFRÍKU ÞAR SEM
KNATTSPYRNA ER SAMNEFNARINN.
Páll Stefánsson.
34 ský 2.tbl. 2010
Er Afríka hættuleg? Já, svo sannarlega, hún
er ólæknandi sjúkdómur. Maður verður að
komast þangað aftur, aftur og aftur.
Töfrar. Er hægt að segja að heimsálfa
hafi töfra? Afríka hefur töfra, en það er
fyrst og fremst fólkið sem byggir þessa
álfu sem töfrar mann, heillar. Glaðværðin,
litadýrðin, æðruleysið, fegurðin. f fólkinu
og mannlífinu.
Ljóslifandi. Eins og í gær. Það eru tæp
þrjú ár síðan. Ég var á leið frá Georgetown
í Gambíu, bæ sem er 350 kílómetra inn eftir
Gambíufljótinu, til Dakar, höfuðborgar Sen-
egal. Sá í húminu, út um bílgluggann, það
fallegasta sólarlag sem ég hef séð. Rauð
jörð, rauður himinn og í rauðu rykinu glitti
í útlínur af strákofum; þorpi þar sem allir
háðu knattspyrnuleik í síðustu geislum
sólarinnar. Gleðin, hláturinn, leikurinn,
eitthvað svo fullkomið. Þetta var hin sanna
Afríka, ekki sú Afríka sem við heyrum svo
mikið af í fréttum; hungursneyðir, enda-
lausar styrjaldir og manndráp.
Seint um kvöld. Kominn til Dakar,
skemmtileg, nútímaleg borg. Höfuðborg
Vestur-Afríku. Á koddanum, ég hlustaði á
nútímann, umferðargný, hlátur, köll. Og
jafnvel fílbeinska sápuóperu úr sjónvarpi
handan götunar. Þá kveikti þessi mynd,
sem ég sá fyrr um kvöldið, hugmynd að
bók um Afríku eins og hún er, með knatt-
spyrnu sem samnefnara. Afríka er fótbolti.
Svona næstum því. í sumar verður síðan
heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu
haldin í fyrsta skipti þarna suður frá í
Suður-Afríku, góð tímasetning til að klára
verkið.
Áfram Afríka er hugsuð fyrir allan
heiminn. Það koma margir að henni, sér-
staklega það fólk sem flækist fyrir á mynd.
Formáli er eftir stærstu fótboltastjörnu
Afríku, Chelsea leikmanninn Didier Drog-
ba. Allar myndirnar eru teknar á Hassel-
blad 6x6 filmuvél. Það hentar verkefninu
best. Þegar yfir lýkur hafa yfir tuttugu lönd
álfunar verið heimsótt. Afríka er hættuleg.
í bókinni eru 199 stórkostlegar myndir frá Afríku
þar sem knattspyrna er samnefnarinn.
W W l»L M W v I PtJS r t||4U 1 '§Á mK
|k 3K fWm \