Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 16
EVROVISION
m 2006 - SILVÍA NÓTT
Silvía Nótt stökk fram á sjónarsviðið
árið 2006, leikin af Ágústu Evu Er-
lendsdóttur. Hún bar sigur úr býtum
f undankeppninni hér heima og hélt
út í heim sem fulltrúi íslands, alla
leið til Aþenu í Grikklandi. Framlag
íslands það árið var lagið Congratu-
lation sem Þorvaldur Bjarni samdi en
sjálf samdi hún textann. Silvía Nótt
var ýmist elskuð eða hötuð. Víst
er að þar var enginn meðalmaður á
ferðinni en hún hélt óspart á lofti
skoðunum sínum sem ekki féllu öll-
um í geð. Þetta ár voru það finnsku
þungarokkararnir í Lordi sem komu,
sáu og sigruðu með lagi sínu Hard
rock hallelujah, en 13. sætið varð
hlutskipti Silvíu Nætur.
m 2008 - REGÍNA ÓSK
Það voru skötuhjúin Regína Ósk
Óskarsdóttir og Friðrik Ómar Hjör-
leifsson, sem í sameiningu kalla sig
Eurobandið, sem voru fulltrúar ís-
lands í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva þetta árið. Þau fögnuðu
sigri í undankeppni hér heima og héldu
með lagið This is my life út til Belgrad
þar sem þau stóðu sig með stakri
prýði, unnu sig upp úr undankeppni
og í úrslitakeppnina. Lagið er eftir
Örlyg Smára. Þau hlaut 64 stig á
aðalkvöldinu og hafnaði í 14. sæti.
m 2009 - JÓHANNA GUÐRÚN
Jóhanna Guðrún kom, sá og næstum
því sigraði í Evrovision í fýrravor. Hún
þutti lag Óskars Páls Sveinssonar
Is it true og lenti í öðru sæti, á eftir
norska hjartaknúsaranum Alexander
Rybak, sem rótburstaði keppnina og
setti stigamet. Jóhanna Guðrún vann
hug og hjörtu þjóðarinnar með sinni
hógværu framkomu og má með sanni
segja að hún hafi heillað Evrópubúa
með frábærum söng sínum.
■ 2010 - HERA BJÖRK
Hera Björk er þrettánda íslenska
dívan í Evróvision. Hún er mikil díva
og hefur heillað þjóðina í mörg ár.
Lagið Je Ne Sais Quoi eftir Örlyg
Smára í Osló. Hún lenti í 19. sæti.
EVRÓVISION
1996
Sjúbídú, eftir Önnu Mjöll Ólafsdóttur og Ólaf
Gauk Þórhallsson, flytjandi Anna Mjöll
Ólafsdóttir.
1997
Minn hinsti dans eftirTrausta Haraldsson og
Pál Óskar Hjálmtýsson, sem einnig
flutti lagið.
1998
íslendingar voru ekki með þetta ár.
1999
All Out of Luck eftir Þorvald Bjarna Þorvalds-
son, Sveinbjörn I. Baldvinsson og Selmu
Björnsdóttir, sem flutti lagið.
2000
Tell me eftir Sigurð Örn Jónsson og Örlyg
Smára, flytjendur voru þau Einar Ágúst
Víðisson og Telma Ágústsdóttir.
2001
Angel eftir þá Einar Bárðarson og
Magnús Þór Sigmundsson. Flytjendur voru
þeir Kristján Gíslason og Gunnar Ólason
eða Two Tricky.
2002
íslendingar voru ekki með þetta ár.
2003
Open Your Heart eftir Birgittu Haukdal sem
einnig flutti lagið.
2004
Heaven, eftir Svein Rúnar Sigurðsson og
Magnús Þór Sigmundsson; Jón Jósep
Snæbjörnsson, Jónsi í Svörtum fötum flutti.
2005
If I Had Your Love eftir Þorvald Bjarna
Þorvaldsson og Vigni Snæ Vigfússon,
Selma Bjömsdóttir flutti.
2006
Congratulation, eftir Þorvald Bjarna Þorvalds-
son. Silvía Nótt, leikin af Ágústu Evu
Erlendsdóttur, flutti.
2007
Valentines Lost eftir Svein Rúnar
Sigurðsson, Eiríkur Hauksson flutti.
2008
This is My Life eftir Örlyg Smára,
flytjendur Friðrik Ómar Hjörleifsson og
Regína Ósk Óskarsdóttir, Eurobandið.
2009
ls it True eftir Óskar Pál Sveinsson,
flytjandi Jóhanna Guðrún
2010
Je Ne Sais öuoi eftir Heru Björk Þórhallsdóttur
og Örlyg Smára, Hera Björk.
16 ský 2,tbl. 2010