Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 57

Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 57
voru mótleikarar hennar Kristin Scott Thomas og Chiwetel Ejiofor. Fékk Mulligan mjög góða dóma og var sögð heillandi og ómótstæði- leg. Uppfærslan var flutt yfir á Broadway 2008 og var Mulligan þá tilnefnd til Drama Desk verðlaunanna. Meðan á viðkomu hennar í leikhúsi stóð lék hún í Public Enemy og þar á eftir í Brothers. Áður hafði hún leikið eitt aðalhlutverkið í The Greatest þar sem mótleikarar hennar voru Susan Sarandon og Pierce Brosnan. Lítið hefur farið fyrir þeirri kvikmynd og hingað til hefúr hún mestmegnis verið sýnd á kvikmyndahátíðum. En það var An Education sem hafði afger- andi áhrif á feril Carey Mulligan. Oliver Stone sá myndina og hringdi í hana eftir að hafa fengið símanúmerið hjá umboðsmanni hennar og réð hana samdægurs. Mulligan, sem þá var við tökur á Never Let Me Go, segist ekki hafa tekið símtalið hátíðlega og setti á hátalara svo meðleikarar hennar gætu heyrt símtalið. Ekki hefur hún lagt í að segja Oliver Stone frá því hversu litla trú hún hafði á símtali hans. Nokkuð langt er þar til My Fair Lady og fyrsta kvikmyndin í Millennium þríleiknum koma fyrir sjónir almennings en áætlað er að frumsýna þær 2012. Tvær kvikmyndir með Carey Mulligan líta dagsins ljós síðar á þessu ári eða snemma á því næsta, áðurnefndar Wall Street: Money Never Sleeps og Never LetMe Go, sem gerð er eftir marg- verðlaunaðri skáldsögu Kazuo Izhiguro, sem hefur komið út í íslenskri þýðingu. I þeirri mynd er Mulligan í hlutverki Kathy sem rifjar upp atburði sem gerðust þegar hún var í heimavistarskóla. I Never Let Me Go endurnýjar hún kynni sín við Keiru Knightley, en nú standa þær jafnfætis og eru báðar í aðal- hlutverkum. HREIFST AF MÓTLEIKARA SÍNUM Meðal mótleikara Carey Mulligan í Wall Street 2: Money Never Sleeps er Shia LaBeouf sem gert hefur garðinn frægan í Transformers kvikmyndunum auk þess sem hann lék á móti Harrison Ford í Indiana Jones and the Kingdom ofthe Crystal Skull og er í dag einn eftirsóttasti ungi leikarinn í Hollywood. Það var ást við fyrstu sýn þegar hann og Mulligan voru kynnt áður en þau hófu leik í myndinni og hafa þau verið óaðaskiljanleg síðan og eru farin að búa saman. Því miður fyrir slúðurblaðamennskuna þá þykir Carey Mulligan ekki spenanndi viðfangsefni enda segir hún sjálfa sig varla þess virði að skrifa um, hún sé mjög venjuleg stúlka þegar kemur að einkalífinu, segir að An Education. Carey Muiligan í hlutverkinu sem gerði hana að kvikmyndatsjörnu. hún hafi löngum haft gaman af því að fara á skíði, en er nánast búinn að leggja þá iðju á hilluna þar sem hún hræðist að brotna og missa þá dampinn í leiklistinni. Og LeBeouf segir að þau vilji vera út af fyrir sig og séu ekki leikarar sem langi til að láta sjá sig á rauða dreglinum. Hvað varðar framtíðina þá hefur Mulligan að eigin sögn alls ekki hafa neinn sérstakan metnað í að leika eingöngu stór burðarhlut- verk í kvikmyndum. „Eg hef enga löngun til að vera með þann þrýsting á bakinu að það sé ég sem hafi úrslitavald um það hvort kvikmynd verði vinsæl eða ekki. Ég vil leika áhugaverðar persónur, hvort sem það er í kvikmyndum eða á sviði.“ Þessi orð voru höfð eftir Carey Mulligan áður en það kom til tals að hún myndi leika Elizu Doolittle í My fair Lady og Lisbeth Salander í The Girl with the Dragon Tattoo. Víst er að um mjög áhugaverðar persónur er að ræða og Carey Mulligan verður undir þrýstingi þar sem gæði myndanna og vinsældir þeirra koma til með að hvíla að stórum hluta á hennar herðum.“ SKV Carey Mulligan á röltinu með kærastanum Shia LaBeouf. Inception Leyndarmálum stolið úr heilum fólks Ekki er júlí sá mánuður sem bíóferðir eru ofarlega á lista almennings enda mitt sumar og tíminn notaður í annað. Hollywood heldur samt sínu striki og 16. júlí verður heims- frumsýnd kvikmyndin Inception, sem Christopher Nolan leikstýrir. Það nafn nægir mörgum til að setja bíóferð ofarlega á listann þótt sumar sé, en Nolan hefur ekki tekið feilspor á ferli sínum sem hófst með hinni tormeltu en áhugaverðu Memento. Síðan hefur Nolan m.a. leikstýrt Batman-myndunum tveimur, Batman Begins og The Dark Knight. Ef eitthvað er að marka umræður um Inception þá sækir hún sitthvað í Memento. Um er að ræða vísindaskáldsögu og er aðalpersónan Don Cobb (Leonardo DiCaprio), leyniþjónustu- maður sem er með lið á snærum sínum sem stelur leyndarmálum frá fólki sem er í djúpum svefni. Sérhæfni liðsins felst í að smeygja sér inn í hugarheim fórnarlambanna og gramsa þar. Nolan segir kvikmynd sína vera um veröld drauma og innviði mannlegrar hugsunar og er hefur hann unnið með handritið í meira og minna í níu ár. Meðal kvikmynda sem höfðu áhrif á hann við gerð handritsins voru The Matrix, Dark City og hans eigin mynd Memento. í nýlegu viðtali sagði Leonardo DiCaprio að hvorki hann né aðrir sem léku í myndinni vissu lítið um hvað myndin var meðan á tökum stóð. „Nolan var sá eini sem sem vissi nákvæm- lega hvað átti að gera og í lok vinnudags áttum við það til ég og fleiri að koma saman og geta okkur til um hvert framhaldið yrði." Leonardo Di Caprio er ekki eina kvikmyndastjarnan í myndinni, en meðal meðleikara hans eru Marion Cotillard, Ellen Page, Ken Watanabe, Tom Berenger, Cillian Murphy og Michael Caine. 2010 2. tbi. ský 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.