Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 42
IHALDSMAÐURimm
DAVID CAMERON NÝR HÚSRÚNDI í DOWNINGSTRÆT110
TEXTI GÍSLI KRISTJÁNSSON MYNDIR: PHOTOS/CONSERVATIVES
Hann hefur reykt hass og hann hefur farið á fyllerí. En þá var hann bara menntskælingur og stúdent. Nú er David
Cameron orðinn forsætisráðherra Breta eftirtvísýna kosningabaráttu. Þartókust á hinn ungi, stimamjúki og fágaði
leiðtogi íhaldsmanna, frjálslyndi heimsmaðurinn Nick Clegg og tuddinn Gordon Brown.
Bretar hafa alltaf átt litríka ieið-
toga. Núna er David Cameron
orðinn húsbóndi í Downings-
træti 10 eftir að hafa sigrað
Gordon Brown - að vísu með
aðstoð annars keppinautar. Cameron sest nú
í sæti sem íhaldskempur á borð við Winston
Churchill og Margrét Thatcher hafa vermt
áður. Sagan er þarna bæði styrkur og veikleiki.
Eiginkona Camerons er Samantha
Gwendoline Sheffield og er af aðalsættum.
Þau gengu í það heilaga 1. júní árið 1996.
En er Cameron einhver afreksmaður á borð
við þau sem áður stýrðu landinu fyrir íhalds-
menn? Er þetta ekki bara stráklingur, fágaður
en reynslulaus - enginn Gunnar á Hlíðar-
enda með atgeir á lofti? Eða eigum við að
segja: Járnkarl, sem stenst samanburð við
Járnfrúna? Og því má ekki gleyma að hann
verður að deila völdum með Nick Clegg,
leiðtoga Frjálslyndra. Churchill varð reyndar
einnig að deila völdum með öðrum á síðasta
tímabili sínu.
Hver hefur sinn djöful að draga, segir
máltækið og svo er vissulega um Cameron,
sem aðra. Höfuðandstæðingurinn, Gordon
Brown, sat undir ámæli fyrir skapofsa og
leiðindi við starfsfólk. Hann skorti glæsi-
mennskuna sem einkenndi Tony Blair og nú
einkennir bæði Cameron og Clegg.
Það kann hins vegar að reynast Cameron
íjötur um fót að hinir tveir síðastnefndu eru
mjög líkir í útliti. Fólki hættir til að rugla
þeim saman eins og tvíburum. Hver er mun-
urinn á Cameron og Clegg? Churchill átti
ekki við þennan vanda að stríða. Hann var
engum líkur.
HVAÐ ER UNDIR FÁGUÐU
YFIRBORÐINU?
Cameron hefur verið gagnrýndur fyrir stefnu-
leysi eða jafnvel vingulshátt í einstökum
málum. Þar hafa vandræði hans vegna lof-
orða um þjóðaratkvæði um Lissabon-sáttmál-
ann vakið mesta athygli utanlands. Núna
hafa menn lagt það mál til hliðar í bili.
Annað er fjármálastefna Camerons almennt.
Hann vill fylgja aðhaldsstefnu að hætti flokks
síns og gera eitthvað meira en þeir Gordon
Brown og Alistair Darling með 178 miljarða
punda fjárlagahalla. Cameron er nauðugur
einn kostur að ráðast strax í þetta verk.
Evrópa er að sligast undan skuldum og Bretar
litlu skár staddir en þjóðirnar við Miðjarðar-
haf. Niðurskurður er því nauðsyn, segja
hagfræðingar, svo Bretar lendi ekki í grískum
efnahagsharmleik. En niðurskurður þýðir
aukið atvinnuleysi og það er erfitt að boða
opinberum starfsmönnum uppsagnir strax á
kosningaári. Bretar hafa því enn ekki fengið
að bragða á hinum súru meðölum sparnaðar
og aðhalds.
Til þessa hefur Cameron reynt að gera
öllum til geðs og hann ætlar að koma lagi á
ríkisfjármálin. Gagnrýnendur innan flokks
segja að hann sé að breyta Ihaldsflokknum
í „Blue Labour“ sem minni mest á „New
Labour“ á tíma Tonys Blair.
FÍKFEGUR FEIÐTOGI
Gagnrýnin á Cameron beinist því að meintu
stefnu- eða staðfestuleysi hans. Engu að síður
er hann bjartasta von breskra íhaldsmanna og
fyrsta vonarstjarna þeirra eftir að þeir urðu
að sjá af völdunum í hendur Tony Blair fyrir
13 árum. Hann náði þó völdunum loks af
Verkamannaflokknum þótt tæpt stæði.
Það varð langt útlegðartímabil fyrir flokk-
inn. Fyrstu tvö kjörtímabil erkióvinarins,
Tonys Blair, í embætti náðu íhaldsmenn
42 ský 2-tbl. 2010