Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 17

Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 17
í undirbúningi keppninnar í Ósió töldu margir að eldgosið í Eyjafjallajökli myndi hjálpa Heru og koma henni á kortið. Eftir keppnina telja margir að henni hafi verið refsað vegna gossins. TEXTI: MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR MYNDIR: JÓNATAN GARÐARSSON OG FLEIRI. Eg er stoltur af Heru og hún á að vera stolt af sér,“ var haft eftir Páli Oskari Hjálmtýssyni að lokinni Söngvakeppni Evrópu í Osló. Hera stóð sig frábærlega á sviði og söng lagið upp á tíu en allt kom fyrir ekki. Hún hafnaði í nítjánda sæti keppninnar eftir að hafa lent í þriðja sæti í forkeppninni. Nítjánda sætið kom á óvart. Lagið var „winner“ svo aftur sé vitnað í Pál Oskar. Heru hafði verið spáð a.m.k. sjöunda sætinu og sumir veltu því alvarlega fyrir sér hvort hún myndi sigra, fara alla leið. Hera lenti í augljósum mótvindi þegar kom að stigagjöfinni. Ymsar kenningar eru á lofti, eins og að nágrannaþjóðir okkar á Norður- löndum og Norður-Evrópu væru að hefna sín vegna eldgossins í Eyjafjalljökli sem lagði niður flugsamgöngur í næstum fimm daga. Hera hafði hugsað dæmið þannig að eld- gosið myndi hjálpa henni. Þannig mátti sjá hvar Hera var með lítið eldgos á borðinu hjá sér í græna herberginu þegar beðið var eftir úrslitunum. Þetta var í 55. skiptið sem Söngvakeppni Evrópu er haldin. Það var hin þýska Lena Mayer-Landrut sem bar sigur úr býtum með laginu „Satellite," en þetta er í annað skiptið sem Þjóðverjar vinna keppnina. Stigagjöfin þótti ennfremur ekki eins fyrirsjáanleg og oft áður, og vilja margir meina að keppnin í ár geti markað þáttaskil í Evróvisjón hvað varðar klíkuskap nágrannalanda sem hefur sett mark sitt á stigagjöfina hingað til. Hera Björk Þórhallsdótir er vinsæl og það er langt síðan að hún heillaði þjóðina sem frábær söngkona. Hún tók þátt í keppninni í Danmörku í fyrra og lenti í öðru sæti með lagið Someday. Mörgum fannst sem þessi „Það er engu logið um það að nóg hefur verið að gera hjá mér að undanförnu," segir Hera Björk en þrátt fyrir mikið álag kveðst hún furðu brött." 2010 2. tbl. ský 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.