Ský - 01.04.2010, Blaðsíða 44
BRETLAND
„I Evrópumálum fylgir hann ekki systurflokkunum á meginlandinu,
flokkum sem nú eru við völd bæði í Frakklandi og Þýskalandi."
aldrei að komast upp fyrir Verkamannaflokk-
inn í skoðanakönnunum. 18 ára stjórnarseta
hafði gengið nærri flokknum.
Ihaldsmenn urðu að gjalda fyrir arfinn eftir
Járnfrúna, Margréti Thatcher, þótt færa megi
fyrir því rök að munurinn á Blair-isman-
um og Thatcher-ismanum sé harla lítill, í
það minnsta þegar kemur að lífi og kjörum
almennings. En það var ekki fyrr en hinn
ungi og spræki David Cameron var kjörinn
formaður íhaldsflokksins undir árslok 2005
að íhaldsmenn öðluðust á ný von um að
komast til valda. Og þær vonir gengu eftir
kosningunum í vor, fyrstu almennu kosning-
unum með Cameron í eldlínunni.
SAMSTEYPUSTJÓRN
Ihaldsmenn höfðu oft um 10 prósenta for-
skot á Verkamannaflokkinn í skoðanakönn-
unum í vetur. Það er um það bil 40 prósent
atkvæða á móti 30 prósentum Verkamanna-
flokki til handa. Frjálslyndir voru þarna litlu
minni en þó stundum jafnir hinum stóru.
Þetta hélst til loka og Ihaldsmenn fengu 37
prósent, Verkamannaflokkur 28 prósent og
Frjálslyndir 22 prósent.
Núverandi samsteypustjórn styðst því
við meirihluta kjósenda, eða 59 prósent,
sem er nýtt. Kosningakerfið breska með
einmenningskjördæmunum þýðir að ekki
þarf stuðning meirihluta kjósenda til að fá
meirihluta þingmanna.
Því var spáð að enginn næði meirihluta á
þingi og því var samstarf við Frjálslynda eina
leiðin fyrir Cameron til að koma Brown frá
völdum. Cameron sagði reyndar fyrri kosn-
ingar að svo lítill munur væri á flokkunum
að þar komist vart „sígarettupappír á milli“.
Þau orð hafa þótt til merkis um að Cameron
sé meiri miðjumaður en fyrirrennarar hans
meðal íhaldsleiðtoga.
Cameron höfðar til ungs fólks. Það hafa
síðustu leiðtogar íhaldsmanna ekki gert.
Hann er glæsilegur, geðþekkur og vel máli
farinn. Hann hefur kjörþokka. Andstæðing-
urinn Gordon Brown er að þessu leyti
ólíkur. Þessi munur kom mjög skýrt fram í
sjónvarpskappræðum leiðtoganna. Brown
virkaði gamall, feitur og þreyttur í slagnum
við tvo unga baráttuhana.
En hver er hann, maðurinn sem nú er
orðinn forsætisráðherra Breta?
David Cameron er fæddur árið 9. október
árið 1966 og verður því 44 ára á þessu kosn-
ingaári. Það er ekki hár aldur fyrir leiðtoga
þjóðar. Barack Obama Bandaríkjaforseti
verður til dæmis fimmtugur á næsta ári.
Cameron er í þessu samhengi aðeins strák-
lingur og minna má á að Winston Churchill
var kominn yfir áttrætt þegar hann yfirgaf
Downingstræti 10 í síðasta sinn.
Ungur aldur er bæði kostur og galli. Núna
hafa Bretar veðjað á hið unga og fríska og
hafnað hinu gamla og stirða.
Cameron tók árið 2005 við formennskunni
af Michael Howard. Hann var gamll maður
og slitinn eftir langa þjónustu í tíð Thatcher
og Johns Major. Howard varð formaður 62
ára gamall en fór þrátt fyrir aldur og fyrri
störf langt með að fella Tony Blair í kosning-
unum 2005. Aðeins skorti herslumuninn.
Howard sagði af sér formennsku eftir það og
íhaldsmenn kusu Cameron í hans stað.
GÓÐ ÆTT OG RÉTT
MENNTUN
Hinn ungi Cameron hafði raunar verið að-
stoðarmaður Howards í innanríkisráðuneyt-
inu í tíð Johns Major og innanbúðar í
flokknum þá. Þannig voru tengslin við fyrra
valdatímabil íhaldsmanna tryggð. Og Camer-
on uppfyllir að öllu leyti kröfurnar sem gerðar
eru til íhaldsmanns, bæði hvað varðar ætt og
menntun.
I föðurætt hans eru verðbréfasalar áberandi
en einnig oft menn með aðalstitla. Faðir hans
og afi voru í verðbréfunum og móðir hans
er dóttir baróns. Einn langafa hans fór til
Ameríku og varð ríkur á kaupmennsku, flutti
heim á ný og byggði sér höll í Skotlandi. Það
er hin skoska grein ættarinnar. Annar langafi
stundaði stundaði sín viðskipti í Sjanghæ.
Þannig á Cameron rætur meðal aðalsmanna
og kaupahéðna innanlands og utan.
Og ekki brugðust foreldrar hans honum
við val á skólum. Þar urðu einkaskólar að
sjálfsögðu fyrir valinu. Fyrst Heatherdown-
barnaskólinn í Berkshire, rétt vestan Lundúna.
Meðal annarra nemenda þar hafa verið prins-
arnir Edward og Andrew. Síðan Eaton-
menntaskólinn, sem hefur fóstrað marga
fræga stjórnmálamenn.
REYKTI HASS
Litlu mátti þó muna að námið við skólann
færi út um þúfur því hinn ungi Cameron var
tekinn fyrir að reykja hass. Hann var þó ekki
rekinn því hann játaði brot sitt fúslega og
hafði ekki reynt að selja öðrum grasið. Hann
slapp því með sekt; var settur í stofufangelsi í
skólanum og varð að skrifa upp 500 línur af
latneskum texta. Þetta lét hann sér að kenn-
ingu verða.
Cameron hefur þó ítrekað orðið að svara
spurningum um meinta misnotkun örvandi
efna. Hann hefur svarað og sagt að honum
hafi, eins og mörgum öðrum, orðið á í þeim
efnum á unglingsárum.
Áhuginn beindist í fyrstu að listum og lista-
sögu en síðar að stjórnmálum og hagfræði.
Cameron lauk prófi frá Eton með ágætum og
var tekinn inn í Oxford. Milli menntaskóla
og háskóla tók hann sér þó tæplega árshlé frá
námi. Þá varð hann fyrst lærlingur á skrif-
stofu guðföður síns, skoska íhaldsþingmann-
sinsTims Rathbone. Mest af þeim tíma fór
í að hlusta á umræður í neðri deild þingsins.
Teningunum var kastað. Cameron ætlaði að
verða stjórnmálamaður.
Og hluta þessa námshlés dvaldi Cameron
á skrifstofu skipafélags í Hong Kong. Faðir
hans taldi það ráðlegt svo hinn ungi stúdent
kynntist atvinnulífinu af eigin raun.
44 ský 2.tbi. 2010