Ský - 01.04.2010, Page 17
í undirbúningi keppninnar í Ósió töldu margir að eldgosið í Eyjafjallajökli myndi hjálpa Heru
og koma henni á kortið. Eftir keppnina telja margir að henni hafi verið refsað vegna gossins.
TEXTI: MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR MYNDIR: JÓNATAN GARÐARSSON OG FLEIRI.
Eg er stoltur af Heru og hún á að
vera stolt af sér,“ var haft eftir Páli
Oskari Hjálmtýssyni að lokinni
Söngvakeppni Evrópu í Osló.
Hera stóð sig frábærlega á sviði
og söng lagið upp á tíu en allt kom fyrir ekki.
Hún hafnaði í nítjánda sæti keppninnar eftir
að hafa lent í þriðja sæti í forkeppninni.
Nítjánda sætið kom á óvart. Lagið var „winner“
svo aftur sé vitnað í Pál Oskar. Heru hafði
verið spáð a.m.k. sjöunda sætinu og sumir
veltu því alvarlega fyrir sér hvort hún myndi
sigra, fara alla leið.
Hera lenti í augljósum mótvindi þegar kom
að stigagjöfinni. Ymsar kenningar eru á lofti,
eins og að nágrannaþjóðir okkar á Norður-
löndum og Norður-Evrópu væru að hefna
sín vegna eldgossins í Eyjafjalljökli sem lagði
niður flugsamgöngur í næstum fimm daga.
Hera hafði hugsað dæmið þannig að eld-
gosið myndi hjálpa henni. Þannig mátti sjá
hvar Hera var með lítið eldgos á borðinu hjá
sér í græna herberginu þegar beðið var eftir
úrslitunum.
Þetta var í 55. skiptið sem Söngvakeppni
Evrópu er haldin. Það var hin þýska Lena
Mayer-Landrut sem bar sigur úr býtum með
laginu „Satellite," en þetta er í annað skiptið
sem Þjóðverjar vinna keppnina. Stigagjöfin
þótti ennfremur ekki eins fyrirsjáanleg og oft
áður, og vilja margir meina að keppnin í ár
geti markað þáttaskil í Evróvisjón hvað varðar
klíkuskap nágrannalanda sem hefur sett mark
sitt á stigagjöfina hingað til.
Hera Björk Þórhallsdótir er vinsæl og það
er langt síðan að hún heillaði þjóðina sem
frábær söngkona. Hún tók þátt í keppninni
í Danmörku í fyrra og lenti í öðru sæti með
lagið Someday. Mörgum fannst sem þessi
„Það er engu logið um það að nóg hefur verið að gera hjá
mér að undanförnu," segir Hera Björk en þrátt fyrir mikið álag
kveðst hún furðu brött."
2010 2. tbl. ský 1 7