Úrval - 01.10.1944, Blaðsíða 88
86
ÚRVAL
Levine svo: „Það verða ekki
stjórnmálamennirnir, sem leysa
vandamál Austurasíuþjóðanna.
Það verður hlutverk efnafræð-
inga og verkfræðinga. Úrbót
þeirra er fyrst og fremst —
aukin matvæli.“
Ibúar Asíu geta, þótt þeir
viti það ekki, framleitt nægilegt
af mat fyrir sig. Það, sem þeim
er vant, er fræðsla um, hvernig
þeir fái breytt hráefnum þeim,
sem uppskeran gefur, í mat.
Þessu til skýringar nægir að
benda á kokoshnetutré. Fyrir
stríð fluttum við inn rnikið af
copra — kókóshnetukjöti, — en
fáir neyttu þess. Miklar birgðir
eyðilögðust, en leifum þeirra
var breytt í olíur til sápugerðar
eða þær notaðar sem skepnu-
fóður. Við ættum að gefa mann-
eldisfræðingum kost á því að
matreiða fyrir okkur copra.
Hvað mundu þeir bera á borð
fyrir okkur ? Eggjahvítuefni
beztu tegundar, hliðstæð að
gæðum eggjahvítuefnum bezta
matarkjöts. Auk þess fengjum
við olíur til okkar eiginn iðn-
aðar eða til útflutnings.
Á eynni Ceylon eru um
800.000 ekrur lands vaxnar
cokostrjám. En milljónir ekra
eru dreifðar um hin Asíulöndin.
I okkar álfu mun vera um hálf
milljón'ekra. Af öllu þessu sézt
hversu gífurleg sóun matvæla
og olíu hefir átt sér stað.
Manneldisfræðingurinn vill ráða
bót á þessu og hann hefir þegar
sína áætlun á prjónunum. Hún
er þessi: Við munum hjálpa þjóð-
um Asíu til að auka kokos-
framleiðslu þeirra. Þær munu
þannig fá brýnustu þarfir, og
smátt og smátt þann heilbrigða
metnað, sem samfara er fullum
maga. Vöru og verkaskipting
mun hef jast milli þeirra og okk-
ar. Við munum kaupa af þeim
olíur, en þær fá í staðinn iðnað-
ar og neysluvörur. Efnaleg af-
koma manna mun batna fyrir
tilstyrk nýrra uppgötvana.
Menntun og menning munu svo
sigla í kjölfar bættrar afkomu.
En það verður að hafa það hug-
fast að skilyrði þessa alls er
gjafmildi móður jarðar og
tækni vísindanna. Hr. Levin
bregður að lokum upp
fyrir okkur glæsilegri mynd af
heiminum eftir stríð: „Við sjá-
um fyrir okkur bændur og búa-
lið við landbúnaðarstörf. Þeir
eru að horfa á uppskeru sína,
sem að þeirra áliti er verð-
mætari en gull og gimsteinar.“