Úrval - 01.06.1957, Blaðsíða 75
KENNSLUTILRAUN 1 BARNASKÓLA
ÚR VAL
Á öðru ári er þessi flokkun á
skordýrum endurskoðuð og
börnunum er kennt um hin f jög-
ur þróunarstig, egg-,_ lirfu-,
púpu. og fullorðinsstig. Á þriðja
ári eru þessi einkenni tekin til
nýrrar endurskoðunar og skor-
dýrum, sem lifa eitthvert stig
sitt í vatni bætt við og einnig
skoðuð skordýr með fjóra, tvo
eða enga vængi.
Þriðji þáttur námsins — ,,al-
menn áhugamál" — greinist í
þrennt, fyrst atriði, sem varpa
Ijósi á flokkunina, í öðru lagi
sérstök atriði, sem vakið hafa
áhuga barnanna og í þriðja
lagi athugun sýnilegra fyrir-
brigða.
Flokkunaratriði koma að
sjálfsögðu á undan sérstökum
áhugaatriðum. Þannig mundi t.
d. mýflugulirfa, sem alin er í
kennslustofunni þangað til hún
er orðin fleyg fluga, sýna þrjú
af þróunarstigunum í ævi skor-
dýrsins. Sem sérstök áhugamál
í sambandi við mýfluguna kæmi
svo athugun á mismunandi önd-
un hennar á lirfu- og flugustig-
inu; mismunandi næring hennar
á lirfu- og púpustiginu; síðasta
myndbreyting hennar úr púpu
í flugu, og loks væri nemendum
sýnd sneið í smásjá skólans af
„hreiðrinu", sem kvenflugan
gerir eggjum sínum á yfirborði
vatnsins. í stuttu máli má segja,
að fræðsla um sérstök áhuga-
mál nemenda í sambandi við ein-
stakar lífverur taki til fjögurra
meginþátta í lífsstarfsemi
þeirra: öndimar, fæðunáms,
vaxtar og æxlunar.
Kennsla um hluti á þriðju
skákinni (þá sem aldrei voru
lifandi) var einnig almenn
fræðsla um tegundir fyrst, og
síðan um einstaka hluti tegunda.
Það var t. d. auðvelt að sýna
með tilraun, að föst efni bráðna
og verða fljótandi þegar þau
eru hituð. ís verður vatn, vax
bráðnar, malbik á götu bráðnar
í sólarhita á sumrin o. s. frv.
Umræður um atriði eins og það,
að meiri hiti fer í að bræða jám.
skörung en vaxkerti, koma síð-
ar til sögunnar.
Fyrsta árið beinist áhuginn
einkum að hinum „lifandi“
þætti vísindanna. En gatunur er
gefinn að grundvallaratriðum
sýnilegra fyrirbrigða, er hvert
um sig verður imdirstaða frek-
ari fræðslu seinni árin: staða
sólarinnar á himninum á sama
tíma á hverjum degi; návist
andrúmsloftsins; steingervingar
af dýrum í kalksteini og plöntu-
steingervingar í kolum; sú stað-
reynd, að ís fllýtur á vatni, og
frostrósir á glugga eru innan
á rúðunni.
Þannig er börnum, sem á
fyrsta skólaári er á áþreifan-
legan hátt komið í kynni við
eiginleika andrúmsloftsins á
þann hátt t. d., að þau eru lát-
in þrýsta niður bullunni í hjól-
hestapumpu meðan haldið er
fyrir loftgatið, kennt á öðru
ári, að ferskt loft sé nauðsyn-
legt til öndunar, og einnig til
73