Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Side 9
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 9
finna hvort um er að ræða þekkta og/eða óþekkta krabbameinsvalda sem
skýrt gætu þessa háu krabbameinstíðni.
E 4 Æxli í miðtaugakerfi barna á Íslandi árin 1981-2014. Tegundir,
einkenni, meðferð og lifun
Ásta Í. Jónasardóttir1, Trausti Óskarsson2, Ólafur G. Jónsson1, Halldóra K.
Þórarinsdóttir1, Sólveig S. Hafsteinsdóttir1, Ólafur Thorarensen1, Ásgeir Haraldsson1
1Læknadeild, Háskóli Íslands, 2Astrid Lindgren barnsjukhus - Karolinska sjukhuset
asgeir@lsh.is
Inngangur: Æxli í miðtaugakerfi eru sá flokkur krabbameina sem veldur
flestum dauðsföllum barna. Mikilvægt er að greina æxlin snemma en
lifun er afar mismunandi eftir æxlistegundum og staðsetningu innan
miðtaugakerfisins.
Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á ýmsa þætti er tengjast
nýgengi og gerð miðtaugakerfisæxla barna og meta útkomu eftir meðferð.
Efniviður og aðferðir: Öll tilfelli miðtaugakerfisæxla barna <18 ára frá
1.1.1981 til 31.12.2014 voru skoðuð og upplýsingum um tegund, staðsetn-
ingu og stærð æxla, einkenni og teikn sjúklinga, endurmein og fæðingar-
og dánardag sjúklinga var safnað úr sjúkraskrám. Við tölfræðiúrvinnslu
var notað nákvæmt Fisher-próf, fervikagreining, Kaplan-Meier-aðferð
með log-rank prófi og fjölþáttagreining.
Niðurstöður: Alls greindust 113 börn með æxli í miðtaugakerfi á tímabil-
inu. Aldursstaðlað nýgengi var 4,2/100.000. Algengustu æxlistegundir
voru lággráðu stjarnfrumuæxli (35%), heilastofnstróðæxli, mænukím-
frumuæxli, PNET, heila- og mænuþelsæxli, frjófrumuæxli, cranioph-
aryngioma og sjóntróðsæxli. Hlutfall mænukímfrumuæxla var 5%. Æxli
voru oftast staðsett neðantjalds (32%), ofantjalds eða miðlægt í heila,
sjaldnar í heilastofni eða mænu. Einkenni aukins innankúpuþrýstings
voru algeng við greiningu, en sjúkdómseinkenni tengd staðsetningu voru
einnig algeng. Fimm ára heildarlifun var 83,5%. Vefjagerð og staðsetn-
ing æxlis reyndust sjálfstæðir forspárþættir fyrir heildarlifun, en stærð
æxlis og tímalengd einkenna fyrir greiningu höfðu ekki marktæk áhrif á
heildarlifun.
Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar eru í samræmi við rannsóknir
frá öðrum Vesturlöndum. Nýgengi, lifun og hlutföll tegunda og stað-
setninga virðast svipuð og á Norðurlöndum, en mænukímfrumuæxli eru
þó minna hlutfall allra miðtaugakerfisæxla hér á landi en annars staðar.
Sterkustu forspárþættir fyrir heildarlifun barna með miðtaugakerfisæxli
virðast vera vefjagerð og staðsetning æxlis.
E 5 Nýgengi krabbalíkisæxla í lungum hefur aukist þrefalt á síðustu
áratugum
Ástríður Pétursdóttir1, Björn Már Friðriksson1, Jóhanna M. Sigurðardóttir2, Helgi J.
Ísaksson3, Steinn Jónsson4, Tómas Guðbjartsson5
1Læknadeild, Háskóli Íslands, 2Skurðdeild, Västerås-sjúkrahús, 3Rannsóknarstofa í meinafræði,
Landspitali, 4Lungnadeild, Landspitali, 5Hjarta og lungnaskurðdeild, Landspitali
astridurp@gmail.com
Inngangur: Krabbalíkisæxli (carcinoids) í lungum eru sjaldgæf tegund
æxla sem oftast eru bundin við lungu en geta meinvarpast. Markmið
þessarar rannsóknar var að kanna nýgengi og árangur meðferðar þessara
æxla í vel skilgreindu þýði á 60 ára tímabili.
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á öllum krabbalíkisæxlum í
lungum á Íslandi 1955-2015. Vefjasýni voru endurskoðuð og æxlin stiguð
skv. 7. útgáfu TNM-stigakerfisins. Lífshorfur voru reiknaðar með aðferð
Kaplan-Meier og var meðaleftirfylgd 15,3 ár.
Niðurstöður: 96 sjúklingar(meðalaldur 54 ár, bil:16-86) greindust á
tímabilinu, þar af 65 konur. Árlegt aldursstaðlað nýgengi jókst úr
0,18/100.000 tímabilið 1955-1964 í 0,75 2005-2015. Þriðjungur sjúklinga
greindist án einkenna síðari þrjá áratugina en 17% þá fyrri (p<0,01).
Hinir höfðu flestir hósta eða brjóstverki og þrír krabbalíkisheilkenni.
Meðalstærð æxlanna var 2,6cm (bil:0,4-7,0) og 74 (84%) sjúklingar höfðu
dæmigerða (typical) vefjagerð en 14 (16%) ódæmigerða. Átta sjúklingar
fóru ekki í aðgerð og voru fjórir með útbreiddan sjúkdóm (stig IV), þar
af tveir með dæmigerða vefjagerð. Hinir 80 sjúklingarnir gengust undir
skurðaðgerð, oftast blaðnám(81%), lést enginn þeirra innan 30 daga frá
aðgerð. Af skurðsjúklingum greindust 52 (65%) á stigi IA, 15 (19%) á stigi
IB, 9 (11%) á stigi IIA. Þrír (4%) höfðu meinvörp í miðmætiseitlum (stig
IIIA), allir með dæmigerða vefjagerð. Við eftirlit höfðu 5 sjúklingar (6%)
látist úr sjúkdómnum. Fimm ára lífshorfur alls hópsins voru 87% og 92%
fyrir sjúklinga með dæmigerða vefjagerð.
Ályktanir: Nýgengi krabbalíkisæxla í lungum hefur aukist rúmlega
þrefalt á Íslandi síðustu 6 áratugi, aðallega vegna aukningar í tilviljana-
greiningum. Sjúklingar með dæmigerða vefjagerð geta greinst með
útbreiddan sjúkdóm en langflestir hafa sjúkdóm bundinn við lungað og
lífshorfur þeirra eru mjög góðar.
E 6 Forcing strategy change: Time limited visual foraging reveals
rapid template switches
Tómas Kristjánsson1, Árni Kristjánsson1, Ian M. Thornton1
1Department of psychology, University of Iceland
tok1@hi.is
Introduction: During difficult foraging tasks, such as when targets differ
from distractors by a conjunction of features, humans do not switch
between target categories, while they switch freely in easier feature-ba-
sed foraging tasks. This is in line with research on animal behavior, but
the question remains whether this reflects that humans cannot switch
between target categories, without sacrifices in speed or accuracy, or
simply choose not to, due to added difficulty of switching between target
categories.
Method: Participants performed time-limited (5, 10, 15s) or unlimited
foraging on iPads where they tapped as many stimuli, from two target
categories, as they could before the time ran out while avoiding items
from two distractor categories.
Results: With time limits, participants were able to switch more frequent-
ly between target types during conjunction foraging than they do when
there is a longer time limit or no time limit. Furthermore, switch-costs
were smaller with shorter time limits, even with constant set-size.
Conclusions: This suggests that although people do not generally switch
between target categories in conjunction foraging, they are able to do so
when the task demands such switches. We discuss the implications of such
rapid switching for recent theories of working memory and attention.
E 7 Intrusive images among outpatients with social anxiety disorder
Andri Björnsson
Psychology, University of Iceland
asb@hi.is
Introduction: Recurrent intrusive images exist across mental disorders.
However, the specific content of intrusive images varies depending on
disorder. In this study, we explored whether individuals with social anx-
iety disorder (SAD) react to intrusive images with compulsive behaviors.