Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Blaðsíða 35

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Blaðsíða 35
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 9 1 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 35 meðferð sjúklinga voru upplýsingar fengnar úr rafrænu skráningarkerfi hjá sjúklingum fyrir (N=44) - og eftir innleiðingu (N=34). Blönduð rann- sóknaraðferð var notuð til þess að meta árangur innleiðingar hjá hjúkr- unarfræðingum og sjúkraliðum fyrir (N=33) og eftir innleiðingu (N=25) með eftirfarandi mælitækjum (1) Hvetjandi og letjandi þættir innleiðingar og (2) Gæðavísar um hjúkrun heilablóðfallssjúklinga í endurhæfingu. Eigindlegi hluti rannsóknarinnar fól í sér rýnihópaviðtöl við 8 hjúkrunar- fræðinga og 8 sjúkraliða eftir innleiðingu. Niðurstöður: Inntak leiðbeininganna var í góðu samræmi við þær aðferðir sem beitt var í hjúkrun sjúklinganna. Notkun þeirra stuðlaði að sam- ræmdari vinnubrögðum, jók áherslu á að efla hreyfi- og sjálfsbjargargetu sjúklinga og að skima fyrir vandamálum meðal annars andlegri vanlíðan. Á kvarðanum 1-10 voru leiðbeiningarnar gagnlegar (M=7,7), innleiðingin tókst vel (M= 7,4) og meiri hluti þátttakenda var virkur í innleiðingunni (M=7,1). Ályktanir: Klínísku leiðbeiningarnar eru gagnlegar í hjúkrun heilablóð- fallssjúklinga í endurhæfingu og innleiðingin tókst vel. E 92 Hvernig geta styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður við fjölskyldur ungra kvenna með átröskun eflt geðhjúkrunarþjónustu? Erla Kolbrún Svavarsdóttir1, Margrét Gísladóttir2 1Heilbrigðisvísindasvið, Hjúkrunarfræðideild, Háskóli Íslands, 2Landspítali eks@hi.is Bakgrunnur: Græðandi áhrif meðferðasamræðna sem eiga sér stað milli geðhjúkrunarfræðinga og fjölskyldna sem eru að fást við langvinna geðsjúkdóma eða geðraskanir hafa nýverið fengið aukna athygli meðal geðhjúkrunarfræðinga, rannsakenda og stjórnenda í heilbrigðisþjónust- unni. Þó rannsóknaniðurstöðum hafi fjölgað sem sýna fram á ávinning af því að sinna fjölskyldum einstaklinga með geðraskanir, þá er stuðningur við fjölskyldur einstaklinga með geðraskanir eða geðsjúkdóma engan- vegin fullnægjandi á mörgum heilbrigðisstofnunum. Umönnunaraðilar unglinga og ungra einstaklinga með átraskanir upplifa oft streitu, vand- líðan sektarkennd, skömm og reiði auk þess sem þau eru tilfinningalega viðkvæm og varnarlaus. Þess vegna eru þessir umönnunaraðilar oft í þörf fyrir stuðning frá heilbrigðisstarfsfólki vegna þess að rannsóknar- niðurstuður hafa sýnt fram á mikilvægir fjölskyldustuðnings í bataferli einstaklingsins. Markmið þessarar rannsóknar var að þróa og að prófa styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður fyrir fjöskyldur unglinga og ungra einstaklinga með átraskanir. Aðferðir: Meðferðin samanstendur af 5 meginþáttum: þ.e. (1) að draga fram veikindasögu, (2) spyrja meðferðarspurninga, (3) auðkenna styrk, seiglu og úrræði, (4) bjóða upp á gagnreyndar upplýsingar og (5) styrkja hjálpleg viðhorf og vinna með hindrandi viðhorf sem og að þróa meðferðarsamband og að auðkenna stuðningsnet fjölskyldunnar. Niðurstöður: Niðurstöður úr þessari hálf-stöðluðu tilraunarannsókn meðal 18 umönnunaraðila unglinga eða ungra kvenna með átröskun, sýndu marktækt hærri fjölskyldustuðning og marktækt hærra sjálfsöryggi varðand viðhorf til átröskununar yfir tímabilið sem rannsóknin stóð yfir, það er eftir að umönnunaraðilarnir höfðu fengið styrkleikamiðaðar með- ferðarsamræður í 5 skipti. Ályktun: Styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður geta gagnast fjölskyld- um unglinga og fjölskyldum ungra einstaklinga með átraskanir. E 93 Notkun viðbótarmeðferða á íslenskum hjúkrunarheimilum Þóra J. Gunnarsdóttir, Ingibjörg Hjaltadóttir Hjúkrunarfræðideild, Háskóli Íslands thoraj@hi.is Inngangur: Íbúar á íslenskum hjúkrunarheimilum hafa margvísleg and- leg og líkamleg vandamál og flóknar hjúkrunarþarfir. Rannsóknir hafa sýnt að þunglyndi og hegðunarvandi er margvíslegur meðal íbúa. Margar viðbótarmeðferðir virðast hafa jákvæð áhrif til að draga úr vanlíðan og efla gæði lífs meðal eldra fólks. Markmið þessarar rannsóknar var að fá upplýsingar um hvaða viðbótarmeðferðir eru veittar á íslenskum hjúkr- unarheimilum, hverjir veita meðferðirnar og hversu stórt hlutfall í búa er talið geta haft not fyrir þær. Einnig var spurt hvort hjúkrunarheimilið þurfi stuðning til að efla viðbótarmeðferðir. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti með 14 spurningum um notkun við- bótarmeðferða var þróaður og sendur til allra hjúkrunarheimila á Íslandi, eða 59 talsins. Fjörutíu og átta heimili svöruðu, eða 81%. Niðurstöður: Niðurstöðurnar sýndu að af þeim sem svöruðu bjóða 43 (90%) hjúkrunarheimili uppá viðbótarmeðferðir. Margar ólíkar starfs- stéttir koma að því að skipuleggja og veita þessa meðferð en helst eru það hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar. Algengustu meðferðirnar eru: heitir bakstrar, leikfimi, samvera í hóp og nærvera með einstaklingi.Fjörutíu og fjögur prósent eða 21 hjúkrunarheimili áætlar að nær allir af íbúum geti nýtt sér þessar meðferðir. Hjúkrunarstjórnendur vildu flestir allir eða 43 (90%) þiggja aðstoð við eflingu viðbótarmeðferða, til dæmis í formi fræðslu eða samvinnu við aðrar stofnanir. Ályktanir: Á flestum íslenskum hjúkrunarheimilum eru veittar viðbótar- meðferðir en hjúkrunarstjórnendur þessara heimila óska eftir að fá frekari upplýsingar, aðstoð og leiðbeiningar til að efla notkun þeirra enn frekar. Áhugavert væri að skoða frekar hvernig þessi notkun nýtist íbúum hjúkr- unarheimila. E 94 Samþætting í heimaþjónustu: Eigindleg rannsókn á samvinnu hjúkrunar- og félagsþjónustu Margrét Guðnadóttir1, Kristín Björnsdóttir1, Sigríður Jónsdóttir2 1Hjúkrunarfræðideild, Háskóli Íslands, 2Velferðarráðuneyti maggagudna@gmail.com Inngangur: Unnið hefur verið að markvissri samþættingu í heima- þjónustu í Reykjavík frá árinu 2009 til að styrkja umönnunarstarf og gera öldruðum kleift að búa lengur heima með viðeigandi stuðningi. Fjölbreyttar þarfir aldraðra kalla á aðkomu fjölmargra starfsstétta og undirstrikar mikilvægi samvinnu í heimaþjónustu. Sýnt hefur verið fram á að samþætting auki gæði þjónustu með bættu flæði upplýsinga og einföldun daglegrar meðferðar og umönnunar í heimahúsi. Samvinna er forsenda samþættrar þjónustu en hún krefst skilvirkrar upplýsinga- miðlunar og skýrrar hlutverkaskipunar. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á samvinnu milli starfsfólks hjúkrunar- og félagsþjónustu í fullsamþættri heimaþjónustu. Einnig að greina stöðu, hindranir og hvata samþættingar með hliðsjón af fræðilíkönum. Efniviður og aðferð: Rannsóknin var eigindleg þar sem byggt var á einstaklingsviðtölum og rýnihópum (N=39). Leitast var við að varpa ljósi á skilning starfsmanna í heimahjúkrun og félagsþjónustu á samvinnu og samþættingu heimaþjónustu. Í rýnihópasamtölum var leitast við að skýra frekar samvinnu og framgang samþættingar. Eigindleg innihaldsgreining og rammagreining voru nýttar við gagnagreiningu. Niðurstöður: Samkvæmt skipuriti heimaþjónustunnar er fullri sam- þættingu lokið. Hún er þó ekki fullgerð miðað við upplifun starfsfólks og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.