Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Side 25
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 25
E 58 Aldursgreining fullorðinna
Sigríður R. Víðisdóttir, Svend Richter
Tannlæknadeild, Háskóli Íslands
srv2@hi.is
Inngangur: Tennur eru mikið notaðar til að bera kennsl á menn og til
aldursgreiningar í réttarrannsóknum. Aldursgreining barna og ungmenna
er nákvæmust, með staðalfrávik frá nokkrum mánuðum til 1-2 ár. Hjá
fullorðnum er gerð multible regression analysis á formfræðilegum hrörn-
unarbreytingum tanna. Nákvæmnin er minni og SD er frá 8-15 ár. Hjá full-
orðnum eru rannsakaðar hrörnunarbreytingar á krónu eða rót. Á krónu
er skoðað slit og litabreitingar en í rótum gegnsæi rótarenda, hrjúfleiki
og eyðing á yfirborði. Einnig eru skoðaðar sneiðar af tannvef er greina
annars stigs tannbeinsmyndun eða upphleðslu á cementi. Algengustu
aðferðir við slitgreiningu eru frá Miles og Gustafsson. Úrdregnar tennur
eru notaðar í aðferð Bang, Lamendin og Solheim. Aðferð við greiningu á
röntgenmyndum er frá Kvaal et al 1995. Árið 2004 kom upp sakamál þar
sem einstaklingur fannst látinn á Neskaupstað. Hann fannst bundinn og
fargaður við bryggjuna þar. Engin skilríki fundust. ID/DVI nefnd ríkislög-
reglustjóra var fengin til að bera kennsl á einstaklinginn.
Efni og aðferðir: Hefðbundin réttartannlæknafæðileg rannsókn var
samhliða réttarkrufningu og lögreglurannsókn. Röntgenmyndir voru
teknar af öllum tönnum. Notuð var aðferð Kvaal og aldur einstaklingsins
áætlaður. Tennur sem voru notaðar voru 15/25,12/22 og 11/21 og 44/34,
43/33 og 42/32.
Niðurstöður: Við útreikning var hinn látni 32,2 ára með SEE 8.6 ár.
Fingraför staðfestu að hinn látni var þrítugur Lithái, fæddur 1974.
Ályktun: Aldursgreining fullorðinna er nákvæm vísindaleg aðferð við
aldursgreiningu. Þó staðalfrávik sé meira hjá fullorðnum en börnum og
ungmennum er þetta oft eina leiðin sem hægt er að nota með nokkurri
nákvæmni og litlum tilkostnaði.
E 59 Samdráttarálag plastblendiefna: Áhrif tegunda
og aðferða við ísetningu
Vilhelm G. Ólafsson
Tannlæknadeild, Háskóli Íslands
vgo@hi.is
Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna samdráttarálag
hefðbundinna og magnfyllingar- (bulk-fill) plastblendifyllingarefna á
tannvef með því að mæla kúspaspennu.
Efniviður og aðferðir: Fimmtíu efri góms forjaxlar voru steyptir niður
í plasthringi og þeim skipt niður í fimm hópa (n=10). Staðlaður MOD
tannskurður var skorinn í hverja tönn. Tveggja þátta sjálfætandi bindiefni
(OptiBond XTR) var borið á tannskurðinn og fyllingar gerðar með aðstoð
sílíkonmatrixu sem hér segir: Filtek Supreme Ultra í tveggja millimetra
þykkum lögum (FSUI); Filtek Supreme Ultra með magnfyllingarað-
ferð (FSUB); SonicFill með magnfyllingaraðferð (SF); SureFil SDR flow
með magnfyllingaraðferð, hulið tveggja millimetra þykku lagi af Filtek
Supreme Ultra (SDR/FSU); Tetric EvoCeram Bulk Fill með magnfyll-
ingaraðferð (TEBF). Spennunemar (strain gages) festir á kinn- og gómafleti
mældu kúspaspennu (microstrain, µe) í rauntíma á meðan plastblendifyll-
ingarefnum var komið fyrir og þau fjölliðuð. Gögn voru greind með one-
-way ANOVA prófi og hópar samanbornir með Least-Squares Means prófi.
Niðurstöður: Meðal kúspaspenna hópanna (µe±SD) var sem hér
segir: FSUI: 730,6±104,8, FSUB: 1264,2±1418,8, SF: 539±75,9, SDR-FSU:
506,3±69,3, TEBF: 624,1±147,4. Hópur FSUI mældist með marktækt hærri
kúspaspennu en allir magnfyllingarplastblendihóparnir. Einnig mældist
hópur TEBF með marktækt hærri kúspaspennu en hópur SDR/FSU.
Nauðsynlegt var að útlioka hóp FSUB frá tölfræðilegri úrvinnslu sökum
þess hversu frábrugðin meðaltal og stalaðfrávik hans voru miðað við aðra
hópa.
Ályktun: Ísetning allra magnfyllingarplastblenda leiddi til marktækt
minni kúspaspennu en ísetning hefðbundins plastblendis í tveggja milli-
metra lögum, þó svo að nokkur breytileiki hafi mælst milli hópa magnfyll-
ingarplastblenda. Notkun hefðbundis plastblendis í magnfyllingaraðferð
er varasöm og getur leitt til kúspabrota.
E 60 Geislaálag í algengum tölvusneiðmyndum af kvið
Jónína Guðjónsdóttir1, Guðlaug A. Jónsdóttir2
1Geislafræði, Læknadeild, Háskóli Íslands, 2Læknadeild, Háskóli Íslands
joninag@hi.is
Inngangur: Tölvusneiðmyndir eru þær myndgreiningarrannsóknir sem
valda mestu geislaálagi á Íslandi, sem og í öðrum löndum. Rannsóknum
hefur fjölgað mikið en jafnframt hafa framfarir í tölvusneiðmynda-tækni
orðið til þess að í mörgum tilfellum er hægt að framkvæma tölvusneið-
myndarannsóknir með minni geislaskammti en áður. Geislaskammtar í
flestum rannsóknum ættu því að fara lækkandi og brýnt er að fylgjast vel
með geislaálagi. Af tölvusneiðmyndarannsóknum eru kviðarrannsóknir
meðal þeirra geislaþyngstu. Í þessari rannsókn voru geislaskammtar í
algengum kviðarrannsóknum kannaðir.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var gagnarannsókn gerð með leyfi
siðanefndar Landspítala (47/2015). Hentugleikaúrtak 1094 sjúklinga var
skoðað til þess að finna lengdargeislun í algengustu rannsóknum af kvið
á Landspítala. Fyrir allar rannsóknir var skráð hvaða prógramm í tæki
var notað, kyn sjúklings, aldur og lengdargeislun. Við úrvinnslu voru
tekin með prógrömm sem voru notuð oftar en 50 sinnum. Prógrömm
með sama nafni en fyrir mismunandi stóra sjúklinga voru skoðuð sem
eitt þar sem slíkt var aðeins fyrir hendi í tæki A.
Niðurstöður: Fjórar gerðir rannsókna voru gerðar oftar en 50 sinnum,
alls 908 sinnum. Lengdargeislun í almennri tölvusneiðmyndarann-
sókn af kvið reyndist vera 948,9 mGycm í tæki A en 704,1 mGycm í
tæki B. Þetta samsvarar 14,2 og 10,6 mSv geislaálagi. Lengdargeislun í
nýrnasteinayfirliti var 322 mGycm í tæki A en 490 mGycm í tæki B sem
samsvarar 5,0 og 7,3 mSv geislaálagi. Marktækur munur (p<0,01) var á
lengdargeislun milli tækja og milli prógramma.
Ályktun: Geislaálag sjúklinga í tölvusneiðmyndarannsóknum af kvið á
LSH er í hærra lagi miðað við nýlegar tölur frá Evrópu.
E 61 Íslensk langtímarannsókn um þróun, framvindu og batahorfur
stams
Jóhanna T. Einarsdóttir
Læknadeild/talmeinafræði, Heilbrigðisvísindasvið
jeinars@hi.is
Inngangur: Þrálátt stam getur haft mikil áhrif á líf og lífsgæði einstak-
linga. Faraldsfræðilegar tölur um algengi og nýgengi stams eru á reiki
en rannsóknir benda til að algengi stams sé um 1%. Flestir byrja að stama
á leikskólaaldri en eingöngu hluti þeirra stamar fram eftir aldri. Fáar
langtímarannsóknir hafa birst um stam en þættir sem eru taldir spá fyrir
um framvindu stamsins eru kyn, fjölskyldusaga um stam, málkunnátta
barnsins og einkenni stamsins.
Efniviður og aðferðir: Í þessari rannsókn voru 38 einstaklingar (greindir
með stam) athugaðir í tvígang, í fyrra skiptið (árið 2005) á leikskólaaldri