Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Side 89
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 89
V 92 Nýgengi illkynja mesóþelíóma samkvæmt krabbameinsskrá
sem tekur til heillar þjóðar: Lýðgrunduð rannsókn
Vilhjálmur Rafnsson1,2, Kristinn Tómasson3, Gunnar Guðmundsson2, Haraldur
Briem3
1Rannsóknarstofu í heilbrigðisfræði, 2læknadeild Háskóla Íslands, 3Vinnueftirliti ríkisins,
4sóttvarnarlæknir, landlæknir
vilraf@hi.is
Inngangur: Illkynja mesóþelíóma sem asbest veldur hefur langan hul-
iðstíma. Bann við notkun asbests kemur ekki fram í lækkuðu nýgengi
fyrr en eftir áratugi. Markmiðið var að meta breytingar á nýgengi illkynja
mesóþelíóma og hugsanleg áhrif banns á asbestinnflutning sem komið var
á 1983 á Íslandi.
Aðferðir: Þetta er lýðgrunduð rannsókn sem byggir á safnupplýsingum,
uppruni gagna var Íslenska Krabbameinskráin, Dánarmeinaskráin og
Þjóðskráin. Magn asbestsinnflutnings var fengið úr tollskýrslum.
Niðurstöður: Innflutningur asbests náði hámarki 1980 og var þá um 15,0
kg/haus/ár og minkaði í 0,3 kg 10 árum eftir að bann var sett 1983, og varð
nánast að engu á síðustu árum. Karlar voru 79% tilfella með mesóþelíóma,
og 72% voru upprunnin í brjósthimnu. Nýgengi mesóþelíóma jókst stöð-
ugt frá 1965 til 2014 þegar það var 21,4 á miljón íbúa meðal karla og 5,6
meðal kvenna.
Ályktun: Nýgengi illkynja mesóþelíóma og dánartíðni þess jókst í íbúa-
hópnum á tímanum sem til rannsóknar var þrátt fyrir bannið 1983. Þetta
samræmist löngum huliðstíma illkynja mesóþelíóma. Vegna mikils inn-
flutnings asbests miðað við höfðatölu er asbest í mörgum byggingum,
vélum og mannvirkjum, og þess vegna er stöðug hætta á að menn verði
útsettir fyrir asbestmengun vegna viðhalds og endurnýjun húsa og mann-
virkja, og þegar skipta á asbesti út fyrir önnur efni eða þegar hreinsa á
asbest burt þar sem það er fyrir. Það er því erfitt að spá fyrir um hvenær
nýgengi mesóþelíóma lækkar í framtíðinni. Á síðasta 10 ára tímabili er ný-
gengið á Íslandi hærra en það sem fundist hefur í nágrannalöndum okkar.
V 93 Nýgengi sortuæxla meðal íslenskra flugmanna
Eva M. Guðmundsdóttir1,2, Vilhjálmur Rafnsson2
1Miðstöð í lýðheilsuvísindum, 2læknadeild Háskóla Íslands
emg5@hi.is
Inngangur: Þekkt er að flugáhafnir eru í aukinni hættu á að fá húðkrabba-
mein. Það er hins vegar ekki þekkt hvaða þættir liggja þar að baki. Mark-
mið þessarar rannsóknar var að kanna staðlað nýgengishlutfall (standar-
dized incidence ratio, SIR) sortuæxla meðal íslenskra karlkyns flugmanna
miðað við nýgengi krabbameina meðal íslenskra karlmanna.
Efniviður og aðferðir: Þetta er afturskyggn ferilrannsókn (cohort study)
og nær yfir 552 íslenska karlkyns flugmenn sem höfðu hlotið atvinnu-
flugmannsleyfi. Hópnum var skipt í tvo undirhópa, annars vegar flug-
menn sem unnið höfðu hjá Flugleiðum (Icelandair) (n=286) og hins vegar
flugmenn sem vitað er að ekki höfðu unnið hjá Flugleiðum (Icelandair)
(n=266). Upplýsingar um starfstíma hvers og eins fengust hjá Icelandair.
Upplýsingar um krabbamein fengust með samkeyrslu skráa hjá Krabba-
meinsskrá Íslands. Starfstími flugmanna spannaði frá árunum 1944 til
ársins 2003. Eftirfylgnitími krabbameina náði frá árinu 1955 til loka ársins
2014. Væntigildi fjölda krabbameinstilfella voru reiknuð á grunni mann-
ára og nýgengis sortuæxla karla samkvæmt Krabbameinsskrá Íslands.
Niðurstöður: SIR fyrir sortuæxli allra flugmanna (N=552) var 3,31 (95%
öryggismörk (ÖM) 1,33-6,81), fyrir Icelandair flugmenn 5,48 (95% ÖM
2,00-11,92) og fyrir aðra flugmenn 0,98 (95% ÖM 0,01-5,45).
Ályktanir: Flugmenn eru í marktækt meiri hættu á að fá sortuæxli en
íslenskir karlar almennt. Flugáhafnir eru útsettar fyrir ýmsum þáttum í
vinnu sinni. Ekki er þekkt hvort geimgeislar í háloftunum séu áhættu-
þáttur krabbameina meðal flugáhafna. Þekktasti orsakavaldur húðkrabba-
meina er útfjólublá geislun frá sólinni. Næstu rannsóknir munu miða að
því að greina hvaða hlutverki útfjólublátt ljós og geimgeislar gegna, sem
áhættuþættir fyrir húðkrabbamein.
V 94 Krabbamein í legbol á Landspítalanum
Freyja S. Þórsdóttir1, Ásgeir Thoroddsen2, Þóra Steingrímsdóttir2
1HÍ og LSH, 2Landspítali
freyjasif91@gmail.com
Inngangur: Á Íslandi greinast árlega um 30 konur með legbolskrabba-
mein. Orsakir sjúkdómsins eru ekki að fullu þekktar þótt ýmsir áhættu-
þættir séu þekktir, svo sem aldur, offita og hormónameðferð. Kjörmeð-
ferð er skurðaðgerð þar sem legið er fjarlægt ásamt eggjastokkum og
eggjaleiðurum. Litlar upplýsingar liggja fyrir um legbolskrabbamein á
Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá yfirsýn yfir sjúkdóminn hér-
lendis, svo sem aldursdreifingu, áhættuþætti, einkenni, greiningaraðferð-
ir, meingerð, meðferð og horfur.
Efni og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og náði til kvenna sem
greindust með legbolskrabbamein á árunum 2010-2014 og gengust und-
ir meðferð á Landspítalanum. Klínískar upplýsingar fengust úr sjúkra-
skrám, aðgerðarlýsingum, meinafræðisvörum, myndgreiningarsvörum
og svæfingarskýrslum.
Niðurstöður: Alls greindust 108 konur á rannsóknartímabilinu eða að
meðaltali 21,6 á ári. Meðalaldur var 62,9±11 ár en 83,3% kvennanna voru
komnar yfir tíðahvörf. Meðal líkamsþyngdarstuðull (BMI) var 32,2±8,1 kg/
m2 en 59% höfðu offitu og voru 20% í ofþyngd. Um 93% kvennanna leit-
uðu til læknis vegna óeðlilegra blæðinga. Rúmlega helmingur kvennanna
greindist innan þriggja mánaða frá fyrstu einkennum. Algengasta mein-
gerðin (90,7%) var legslímulíkt kirtilfrumukrabbamein (endometrioid aden-
ocarcinoma). Nær allar konurnar (97,2%) fóru í aðgerð en af þeim fengu
34,3% eftirmeðferð í formi geisla og/eða krabbameinslyfja. Á rannsóknar-
tímabilinu fengu 11,1% sjúklinganna endurkomu krabbameinsins. Fimm
ára lifun reiknaðist 80,9%. Marktækur munur var á lifun kvenna eftir stig-
un sjúkdómsins og gráðun.
Ályktanir: Horfur kvenna með legbolskrabbamein eru beintengdar
gráðun og stigun sjúkdómsins. Sjúklingahópurinn hér á landi svipar til
erlendra hópa hvað varðar þekkta áhættuþætti, einkenni, meingerð og
meðferð sjúkdómsins.
V 95 Skyldleiki methisillín næmra Stapyhlococcus aureus stofna úr
blóðsýkingum á Íslandi frá árunum 2003-2008
Sóldís Sveinsdóttir1,2,3, Gunnsteinn Haraldsson2, Karl G. Kristinsson2, Helga
Erlendsdóttir2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2sýklafræðideild Landspítala, 3Lífvísindasetri Háskóla Íslands
sos60@hi.is
Inngangur: Staphylococcus aureus er einn algengasti sýkingavaldur blóð-
sýkinga í mönnum og býr yfir mörgum fjölbreyttum meinvirkniþáttum,
m.a. Panton-Valentine leukocidin (PVL). spa gen S. aureus nýtist til að
flokka stofna í mismunandi spa-gerðir. Markmið rannsóknarinnar var að
leita að PVL og spa týpugreina methisillín næma S. aureus stofna úr blóð-
sýkingum á Íslandi og kanna þannig skyldleika þeirra.
Efniviður og aðferðir: Allir tiltækir S. aureus stofnar úr blóðsýkingum