Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Blaðsíða 58

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Blaðsíða 58
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 9 1 58 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 E 171 Langtímaárangur skurðaðgerða við sjálfsprottnu loftbrjósti á Íslandi 1991-2015 Tinna Harper Arnardóttir1,2, Guðrún F. Tómasdóttir1, Arnar Geirsson1, Tómas Guðbjartsson1,2 1Hjarta- og lungnaskurðdeild, Læknadeild, Háskóli Íslands, 2Læknadeild, Háskóli Íslands tinna.harper@gmail.com Inngangur: Sjálfsprottið loftbrjóst getur greinst endurtekið og þarf þá oft að grípa til skurðaðgerðar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni og langtímaárangur þessara aðgerða hér á landi með áherslu á fylgikvilla og tíðni enduraðgerða vegna endurtekins loftbrjósts. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á 362 sjúklingum (meðal- aldur 29,4 ár, 77,8% karlar) sem gengust undir 431 aðgerð við sjálfsprottnu loftbrjósti á Íslandi 1991-2015. Upplýsinga var aflað úr sjúkraskrám og m.a. skráð tegund aðgerðar, 30 daga dánartíðni og hvort greinst hefði endurtekið loftbrjóst sem krafðist enduraðgerðar. Meðaleftirlitstími var 153 mánuðir og miðast eftirlit við 1. mars 2016. Niðurstöður: Að meðaltali voru framkvæmdar 17±6,3 aðgerðir á ári og sveiflaðist tíðnin frá 8 til 31 aðgerðar á ári. Meðalaðgerðartími var 60 mín- útur og voru algengustu ábendingarnar annað (38,5%) og fyrsta loftbrjóst (30,3%). Í 99,1% tilfella var gerður fleygskurður, en í 56,9% tilfella var bætt við fleiðruertingu og hjá 13,1% hlutabrottnámi á brjóstholsfleiðru. Hlutfall aðgerða með brjóstholssjá (VATS) jókst úr 67% fyrstu 5 árin í 97% þau síðustu. Algengustu fylgikvillar eftir aðgerð voru viðvarandi loftleki (11,8%) og endurtekið loftbrjóst (9,0%). Enginn sjúklingur lést innan 30 daga frá aðgerð. Alls þurftu 27 einstaklingar enduraðgerð vegna loftbrjósts (6,3%), þar af einn með þekktan lungnasjúkdóm, og var tíðnin hærri eftir brjóstholsspeglun en eftir brjóstholsskurð (8,0% á móti 3,4%, p<0,01). Tímalengd frá aðgerð að endurteknu loftbrjósti var að miðgildi 4 mánuðir (bil: 0-47). Ályktanir: Árangur skurðaðgerða við sjálfsprottnu loftbrjósti er góður á Íslandi. Þó er endurtekið loftbrjóst vandamál, en líkt og erlendis er tíðni endurtekins loftbrjósts tvöfalt hærri eftir brjóstholsspeglun en opna skurðaðgerð. E 172 Endurinnlagnir eftir skurðaðgerðir vegna lungnakrabbameins - frumniðurstöður Björn Friðriksson1, Guðrún N. Óskarsdóttir2, Hannes Halldórsson1, Hrönn Harðardóttir1,3, Arnar Geirsson2, Steinn Jónsson1,3, Tómas Guðbjartsson1,2 1Háskóli Íslands, Læknadeild, 2Landspítali, Hjarta og lungnaskurðdeild, 3Lungnadeild Landspítala bmf3@hi.is Inngangur: Bráðar endurinnlagnir eftir skurðaðgerðir vegna lungna- krabbameins hafa ekki verið rannsakaðar áður hér á landi. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða endurinnlagnir, forspárþætti þeirra og dánartíðni þessa sjúklingahóps. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á sjúklingum sem gengust undir aðgerð vegna lungnakrabbameins á Íslandi árunum 1991-2014. Endurinnlögn var skilgreind sem bráðainnlögn á sjúkrahús innan 90 daga frá útskriftardegi. Lógistísk aðhvarfsgreining var notuð til að meta forspárþætti innlagnar innan 30 og 90 daga en einnig dánartíðni innan 90 daga og 6 mánaða. Niðurstöður: Á ofangreindu tímabili fór 641 einstaklingur í 670 aðgerðir og útskrifaðist af spítalanum í kjölfarið; 570 fóru í blaðnám, 81 í lungna- brottnám og 82 í fleyg/geiraskurð. Tíðni endurinnlagna eftir 30 og 90 daga var 9,7% og 16,4%. Flestar endurinnlagnir (59%) voru innan 30 daga frá útskrift, og voru oftast vegna fylgikvilla tengdum aðgerðinni (63%). Áhættuþættir endurinnlagnar innan 30 daga voru saga um lungnateppu (HL 1,98, 95%-ÕB: 1,09-3,55) og minniháttar fylgikvilli í legu (HL 3,3, 95%-ÕB:1,9-6,1). Stig lungnakrabbameins (HL 1,43, 95%-ÕB: 1,22-1,70), meiriháttar fylgikvilli í legu (HL 5,40, 95%-ÕB:2,11-13,26), endurinnlögn innan 30 daga (HL 3,66, 95%-ÕB: 1,71-7,53) og ASA-skor (HL 1,66, 95%- ÕB: 1,03 - 2,70) voru sjálfstæðir forspárþættir dauða innan 6 mánaða. Ályktanir: Endurinnlagnir eru algengar eftir skurðaðgerðir vegna lungnakrabbameins, eða 10% á fyrsta mánuði eftir aðgerð. Flestar endur- innlagnir má rekja til fylgikvilla eftir aðgerð sem oft tengjast undirliggj- andi lungna- eða hjartasjúkdómum. Aukið eftirlit að útskrift lokinni gæti fækkað endurinnlögnum hjá þessum sjúklingahópi. E 173 Stigun lungnakrabbameins með miðmætisspeglun á Íslandi 2003-2012 Jónína Ingólfsdóttir1, Þóra Sif Ólafsdóttir1, Hrönn Harðardóttir2,3, Steinn Jónsson2,3, Tómas Guðbjartsson1,3 1Hjarta- og lungnaskurðdeild, 2Lungnadeild, Landspítali, 3Læknadeild Háskóla Íslands jonina.ingolfsdottir@gmail.com Inngangur: Miðmætisspeglun er talin kjörrannsókn til að meta útbreiðslu lungnakrabbameins í eitla efra og fremra miðmætis, enda þótt rann- sóknaraðferðir eins og jáeindaskönnun og berkju-/vélindaómspeglun hafi fækkað þessum aðgerðum undanfarin ár. Markmið rannsóknarinnar var að kanna árangur miðmætisspeglunar á Íslandi og meta neikvætt forspár- gildi við greiningu miðmætiseitilmeinvarpa lungnakrabbameins. Efniviður og aðferðir: Allir sjúklingar (n=125, meðalaldur 66 ár, 49% karl- ar) með lungnakrabbamein sem ekki var af smáfrumugerð sem gengust undir miðmætisspeglun á Landspítala 2003-2012. Farið var yfir sjúkra- skrár, reiknað út 30 daga dánarhlutfall og farið yfir vefjasvör. Neikvætt forspárgildi miðmætisspeglunar var reiknað hjá 66 sjúklingum sem í kjöl- farið gengust undir brjóstholsskurðaðgerð með lækningu að markmiði. Niðurstöður: Miðmætisspeglunum fjölgaði úr 2 árið 2003 í 24 árið 2012 (p<0,001). Meðal aðgerðartími var 31 mínúta og 64% sjúklinga útskrif- uðust innan sólarhrings frá aðgerð. Að meðaltali voru tekin sýni úr 2,9 miðmætiseitlum (bil: 1-5). Hjá 42 sjúklingum (34%) fundust meinvörp í að minnsta kosti einum eitli, en hjá hinum eitilvefur eða ósérhæfðar vefjabreytingar. Í þremur tilfellum (2%) fékkst ekki vefjasýni úr eitlum. Alls fengu 5% sjúklinga einhvern fylgikvilla í eða eftir aðgerð og voru þeir helstu hæsi (2,4%), skurðsýking (0,8%) og lungnabólga (0,8%). Neikvætt forspárgildi miðmætisspeglana reyndist 91,9%, en 5/66 sjúklingar reynd- ust hafa meinvörp í miðmætiseitlum (N2-eitlastöð) við aðgerð sem ekki höfðu greinst við miðmætisspeglun. Enginn sjúklingur lést innan 30 daga frá aðgerð. Ályktanir: Árangur miðmætisspeglana er mjög góður hérlendis sem endurspeglast í lágri tíðni fylgikvilla og 0% 30 daga dánartíðni. Neikvætt forspárgildi er í samræmi við erlendar rannsóknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.