Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Blaðsíða 44
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
44 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103
E 123 Áhrif meðgöngulengdar á námsárangur
Elín Þ. Elíasdóttir1, Ragnhildur Hauksdóttir1, Inga D. Sigfúsdóttir2, Ingibjörg E.
Þórisdóttir2, Þórður Þórkelsson1,3, Þóra Steingrímsdóttir4
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Háskólinn í Reykjavík, 3Barnaspítali Hringsins, 4Kvennadeild,
Læknadeild Háskóla Íslands
ethe10@hi.is
Inngangur: Fyrirburar eru í aukinni áhættu á að greinast með ýmsa
langvinna sjúkdóma. Einnig hefur verið sýnt fram á að fyrirburar fá lægri
einkunnir en fullburða samnemendur. Hugmyndir eru uppi um að með-
göngulengd hafi einnig áhrif á einkunnir fullburða barna. Fyrri rannsókn-
ir hafa sýnt fram á að fyrirburar fái lægri einkunnir en fullburða börn en
fáar rannsóknir taka til línulegra áhrifa meðgöngulengdar.
Efniviður og aðferðir: Unnið var með gagnasafn frá LIFECOURSE-
rannsókninni sem aflað var frá Fæðingaskrá landlæknis, Námsmatsstofnun
og Hagstofunni. Skoðaðar voru einkunnir 1146 barna í samræmdum
prófum.
Niðurstöður: Með vaxandi meðgöngulengd hækkar einkunn í stærðfræði
en ekki íslensku. Þegar gögnunum var lagskipt eftir kyni kom í ljós að
áhrifin voru einungis til staðar hjá strákum þar sem marktæk hækkun var
á einkunn í íslensku og stærðfræði með lengri meðgöngu bæði í 4. og 7.
bekk. Hjá stelpum voru áhrif meðgöngulengdar á heildareinkunn aldrei
marktæk. Áhrifa meðgöngulengdar gætti einnig hjá fullburða börnum
(fæddum eftir 37 – 42 vikna meðgöngu) en þar kom fram marktæk hækk-
un á einkunn í íslensku og stærðfræði með aukinni meðgöngulengd bæði
í 4. og 7. bekk. Þegar betur var að gáð voru áhrif meðgöngulengdar á
einkunnir fullburða barna einungis til staðar hjá strákum.
Ályktanir: Þessi rannsókn styrkir niðurstöður nýlegra rannsókna sem
benda til þess að meðgöngulengd fullburða barna hafi áhrif á námsár-
angur. Skýr kynjamunur kom fram í áhrifum meðgöngulengdar þar sem
áhrifanna gætti einungis hjá strákum og er áhugavert að skoða það nánar.
E 124 Forvarnir gegn tannátu og áhrif óstöðugs efnahagsástands á
tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga á Íslandi
Eva G. Sveinsdóttir
Tannlæknadeild, Háskóli Íslands
tannalfur@gmail.com
Inngangur: Árið 2008 hófst á Íslandi djúp efnahagslægð sem hafði alvar-
leg áhrif á efnahag landsins í heild sem og allra Íslendinga. Markmið
rannsóknarinnar var að kanna hvaða áhrif efnahagskreppan hafði á eft-
irspurn eftir tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga, 0-18 ára, að mati
tannlækna, ásamt því að afla upplýsinga um hvers kyns fyrirbyggjandi
meðferðir sem tannlæknar veita börnum og unglingum í dag.
Efniviður og aðferðir: Rafrænn spurningalisti var sendur til allra félags-
manna Tannlæknafélags Íslands (TFÍ) í janúar 2013. Af þeim tannlækn-
um sem vinna með börn bárust svör frá 161 tannlækni (64%).
Niðurstöður: Af þeim 161 tannlækni sem tóku þátt í rannsókninni töldu
119 (74%) að tannátutíðni barna og unglinga hefði hækkað og 150 (93%)
töldu að minnkandi endurgreiðsla frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ)
til tannlækninga barna og unglinga á undanförnum árum hefði haft
áhrif á tannheilsu sumra eða flestra barna. Meirihluti tannlækna taldi
eftirspurn foreldra eftir flestum þáttum tannátuforvarna og meðferða af
völdum tannátu, að frátaldri bráðameðferð af völdum tannverkja, hafa
minnkað. Samkvæmt tannlæknunum komu börn og unglingar að með-
altali á 9,4 mánaða (sd 2,8) fresti til tannlæknis, en lengst liðu að meðal-
tali 12,1 mánuður (sd 2,8) á milli tannlæknaheimsókna. Að meðaltali var
31% (sd 20,7) vinnutímans varið í forvarnir gegn tannátu.
Ályktun: Niðurstöðurnar benda til að á sama tíma og þörfin fyrir tann-
læknaþjónustu fyrir börn og unglinga jókst, hafi eftirspurn foreldra eftir
slíkri þjónustu minnkað. Þetta gæti hinsvegar verið tímabundið ástand,
sem breytist með batnandi efnahagsástandi og aukinni endurgreiðslu SÍ
til tannlækninga barna og unglinga.
E 125 Lífsgæði fatlaðra barna: Ólíkt mat barna og foreldra þeirra
Snæfríður Þóra Egilson1, Linda Björk Ólafsdóttir1, Þóra Leósdóttir2, Evald
Sæmundsen2
1Félags- og mannvísindadeild, Háskóli Íslands, 2Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
sne@hi.is
Inngangur: Rannsóknin beindist að upplifun 1) barna með einhverfu og 2)
barna með hreyfihömlun á lífsgæðum sínum, sem og því hvernig foreldr-
ar barnanna meta lífsgæði þeirra.
Aðferð: Byggt var á lýsandi samanburðarþversniði og var gögnum safnað
með barna- og foreldraútgáfu lífsgæðamatslistans KIDSCREEN-27. Alls
bárust upplýsingar um 96 börn með einhverfu og 27 börn með hreyfi-
hömlun.
Niðurstöður: Börn með einhverfu og börn með hreyfihömlun mátu
lífsgæði sín í meðallagi (>45) á fjórum af 5 lífsgæðavíddum. Hjá börnum
með einhverfu voru lægstu skorin innan víddanna Vinatengsl, þar sem
lífsgæðin voru minni en almennt gerist, og Hreyfiathafnir og heilsa. Hjá
börnum með hreyfihömlun var lægsta skorið í víddinni Hreyfiathafnir og
heilsa. Hins vegar mátu foreldrar barna í báðum hópum lífsgæði barna
sinna talsvert lægri á öllum lífsgæðavíddum nema í Fjölskylda og frjáls tími.
Þrátt fyrir marktækan mun á svörum barna og foreldra voru þau sammála
um hvaða dró mest úr lífsgæðum barnanna. Þannig töldu foreldar barna
með einhverfu atriði innan víddanna Vinatengsl og Hreyfiathafnir og heilsa
hafa veruleg neikvæð áhrif á lífsgæði barna sinna. Eins töldu foreldrar
barna með hreyfihömlun víddina Hreyfiathafnir og heilsa hafa neikvæðustu
áhrifin.
Ályktanir: Börn með einhverfu og börn með hreyfihömlun voru almennt
sátt við stöðu sína í lífinu þótt erfiðleikar tengdir félagslegri þátttöku og
líkamlegri virkni væru til staðar. Foreldrar töldu hins vegar mun fleiri
umhverfis- og einstaklingsbundna þætti draga úr lífsgæðum barna sinna
en börnin töldu sjálf. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að leita til
barnanna sjálfra um upplýsingar um líf þeirra og líðan.
E 126 A role for MUC5B promoter polymorphism in idiopathic
pulmonary fibrosis Introduction
Amaranta Ursula Armesto Jiménez
Stem Cell Research Unit, Faculty of Medicine, University of Iceland
aua12@hi.is
Introduction: The MUC5B promoter (G-to-T) polymorphism is associ-
ated with idiopathic pulmonary fibrosis (IPF). In heterozygous the
T-allele is associated with a 6-8 fold increased risk of IPF and there is
also an increased expression of MUC5B in the airways of carriers of this
risk allele.
Methods: We have previously used human basal epithelial cell lines
(VA-10 and BCi-NS1.1) to model in air-liquid interphase (ALI) culture
both cellular differentiation and epithelial histoarchitechture of the
upper airways. Here, we have transduced these cell lines, as well as
A549, with a promoter reporter construct containing the 4 kb promoter
region of MUC5B with the wildtype or the T-risk allele present to gain
insights into the molecular and cellular effects of IPF. We are also using