Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Qupperneq 84

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Qupperneq 84
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 9 1 84 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 gengi þessara galla hér á landi, áhættuþætti, sjúkdómsgang og árangur meðferðar. Efni og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og náði til nýbura, með greininguna kviðarklofa eða naflastrengshaul á vökudeild Barnaspítala Hringsins á 25 ára tímabili (1991-2015). Niðurstöður: Fimmtíu og þrjú börn voru meðhöndluð á vökudeildinni vegna kviðarklofa á rannsóknartímabilinu og 5 börn vegna naflastrengs- hauls. Ungar konur voru marktækt líklegri til að eignast barn með kvið- arklofa. Um helmingur barnanna hafði aðra meðfædda galla á meltingar- færum. Öll börnin voru tekin til aðgerðar strax á fyrsta sólarhring eftir fæðingu og tafarlaus lokun heppnaðist hjá 48 (91%). Algengustu fylgi- kvillar voru öndunarbilun, nýrnabilun og blóðsýkingar. Sjúkdómsferill var marktækt mildari hjá börnum sem tókst að loka með tafarlausri lok- un og hjá þeim börnum sem ekki voru með aðra galla á meltingafærum. Legutími var að meðaltali 28,1±20,1 dagar (miðgildi 24 (spönn 9-131). Þrjú börn létust í kjölfar aðgerðar. Fjögur börn reyndust vera með of stutta þarma (short gut syndrome) og þurftu að fá langtíma næringargjöf í æð. Ályktanir: Nýgengi kviðarklofa hér á landi er svipuð og í öðrum vestræn- um löndum en athyglisvert er hversu lágt nýgengi naflastrengshauls er. Hér er valið að notast við tafarlausa lokun, sé þess kostur, en annars að leyfa görnum að síga inn í kvið með notkun poka. Árangur meðferðar er í heildina mjög góður. V 75 Peanut component specificity in Icelandic peanut sensitive individuals and clinical characteristics Sigurveig Þ. Sigurðardóttir1, Helga Magnúsdóttir2, Anna G. Viðarsdóttir1, Michael Clausen3, Sigrún H. Lund4, Anders B. Jensen5, Björn R. Lúðvíksson1 1Immunology department University Hospital of Iceland, 2Faculty of Medicine, UI, 3Childrens Hospital of Iceland, 4Centre for Public Health, Faculty of Medicine, UI, 5Thermo Fisher Scientific veiga@lsh.is Background: Sensitivity to peanut allergens varies between countries. Arah1, Arah2 and Arah3 are the major peanut allergens and sensitivity to Arah2 has the highest prediction for clinical allergy. Arah6 and Arah9 have not a known role in peanut allergy in Iceland, Arah8 is cross-reactive to the major birch allergen Betv1. Objective: To determine the component pattern of peanut sensitization in Iceland and relate to the history of allergic reaction to peanuts and pollen. Methods: Serum samples from 220 individuals that were positive for pe- anut specific IgE (Pn-IgE) were used to measure Arah1-, Arah2-, Arah3-, Arah8- and Betv1-IgE. Arah2-IgE negative individuals were interviewed by telephone and invited to an open peanut challenge. Participants in the challenge were evaluated with ISAC microarray for other sensitizations. Results: The main atopic findings within the study cohort included history of eczema (75.5%), asthma (65.5%), and allergic rhinitis (65.5%). Arah2-IgE was negative in 52.3% (115/220) and of those, 24.3% (28/115) were already consuming peanuts, 29.6% (34/115) had a negative challenge, 5% (6/115) were positive, 2.6% (3/115) inconclusive and 38.3% (44/115) were una- ble to undergo a challenge. Those who reacted to peanuts had a higher Arah1-IgE than the tolerant participants, three were positive to Arah6-IgE, thereof one with mono-sensitization. Arah8 may have caused one positive reaction. Conclusions: Peanut sensitized individuals in Iceland are highly atopic and half of them are not sensitized to the major allergen Arah2. This is only partly explained by birch sensitization and sensitization to other components such as Arah1 and Arah6 is important. V 76 Mat á skiljanleika tals hjá börnum í ýmsum aðstæðum Rósa Hauksdóttir Þóra Másdóttir Læknadeild Háskóla Íslands rosa@hti.is Inngangur: Barn sem á erfiðleikum með að gera sig skiljanlegt vegna mikilla frávika í tali og framburði hefur tilhneigingu til að einangrast fé- lagslega. Þegar grunur leikur á um röskun í framburði er barninu gjarnan vísað til talmeinafræðings sem leggur fyrir hefðbundin greiningarpróf. Hefðbundin framburðarpróf segja hins vegar takmarkað um hvort barnið getur gert sig skiljanlegt í ýmsum aðstæðum. Því er mikilvægt að athuga einnig skiljanleika tals. Þannig fæst heildstæðari mynd af framburði barnsins sem nýtist m.a. þegar taka á ákvörðun um talþjálfun. Megin- markmið þessarar rannsóknar var að athuga réttmæti íslenskrar þýðingar svokallaðs ICS kvarðans en hann er ástralskur að uppruna og kannar skilj- anleika tals barna í ýmsum aðstæðum að mati foreldra. Réttmæti kvarð- ans var athugað með því að skoða samræmi íslenskrar þýðingar hans við Málhljóðapróf ÞM. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru 112 börn á aldrinum 4;0-5;5 ára. Af þeim var 61 barn prófað á Málhljóðaprófi ÞM í því skyni að skoða réttmæti og aðra próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar kvarðans. Rannsóknin var að mestu endurgerð á rannsókn McLeod o.fl. (2012 og 2015). Niðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að há, marktæk fylgni (r = 0,70) fannst milli íslenskrar þýðingar ICS kvarðans og Málhljóða- prófs ÞM. Innri áreiðanleiki íslensku þýðingar kvarðans mældist einnig hár (α = 0,95). Ályktanir: Samkvæmt niðurstöðum er íslensk þýðing ICS kvarðans áreið- anleg og að notkun hans réttmæt fyrir 4;0-5;5 ára íslensk börn við mat á heildarframburðarfærni. Auk þess eru vissar vísbendingar um að kvarðinn geti nýst sem tæki til skimunar á framburðarerfiðleikum íslenskra barna en frekari rannsókna er þörf. V 77 Áhrif kyns, aldurs og menntunar foreldra á mati þeirra á lundarfari fjögurra ára barns síns Guðrún Kristjánsdóttir1, Lilja Sigurðardóttir2, Margrét Eyþórsdóttir3 1Hjúkrunarfræðideild/kvenna- og barnasviði Landspítala, Fræðasviði barnahjúkrunar, 2hjúkrunarfræðideild, fræðasviði barnahjúkrunar, 3kvenna- og barnasviði Landspítala gkrist@hi.is Inngangur: Fáar rannsóknir skoða kynja- og aldursmun í afstöðu foreldra til lundarfars barna sinna en niðurstöður þeirra gefa vísbendingu um mun. Tilgangurinn var að skoða þennan mun hjá íslenskum foreldrum 4 ára barna. Efniviður og aðferð: Úrtak nýorðinna foreldra var fylgt eftir í fjögur ár. Þátttakendur voru 129, 66 mæður og 63 feður (svarhlutfall 58,6%). Lundarfar var metið með spurningalista McDevitt og Carey, BSQ. Aðrar breytur voru: kyn, aldur foreldris við fæðingu barns og menntun við 3-4 ára aldur barns. Niðurstöður: Mæður voru 19-48 ára við fæðingu barns og aldur feðranna 21-47 ára. Marktækur munur var á aldri feðranna (M=34) og mæðranna (M=31) (t(127)=2,680, p<0,01). Tæplega helmingur hafði lokið háskólanámi en ekki var marktækur munur eftir kyni. Eldri mæður og feður meta börn sín marktækt með auðveldara lundarfar en yngri foreldrar. Ekki reyndist marktækur aldursmunur í heildarstigum lundarfars barns hjá mæðrum. Munurinn er þó marktækur eftir aldri feðra. Feður telja marktækt meiri óreglu í hegðunarmynstri barnsins og viðbrögðum en mæður en meta þó lundarfar barna sinna í heild marktækt auðveldari en mæður (r=-0,330,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.