Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 2

Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 2
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1 A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa Kæri bókaunnandi, S ú hefð að gefa bækur til jólagjafa má rekja til áranna eftir síðari heimstyrjöld og eftir að hafa fengið sjálfstæði okkar frá Dönum árið 1944. Á þessum árum var efnhagsástandið hér á landi ekki burðugt enda kreppa eftirstríðsáranna ríkjandi hér sem og í öðrum löndum. Fyrstu ár nýfengins sjálfstæðis voru því ekki auðveld fyrir hið unga lýðveldi sem stóð nú frammi fyrir afar flóknum og krefjandi aðstæðum. Þá dugði ekki að grípa til neinna vettlingataka þannig að efnahagsástandið færi ekki úr böndunum. Mjög umfangs miklar að gerðir reyndust nauðsynlegar til takmarka innflutning á margskonar vörum. Það var gert með víðtækum kvótum og innflutningsbönnum sem sett voru á fjölmargar neysluvörur. Þetta takmarkaði mjög það úrval af gjafavöru sem landsmönnum hafði áður staðið til boða m.a. til jólagjafa. En þar sem pappír var utan þessara hafta þá var hann fluttur inn til að framleiða bækur sem mjög fljótt urðu vinsælar jólagjafir. Þannig varð útgáfa íslenskra bóka á þessum árstíma tákn um hugvit smáþjóðar sem bæði styrkti sjálfsmynd sína á erfiðum tímum og skóp líka einstaka hefð sem hvergi á sér hliðstæðu í heiminum. Ekki þarf svo að staldra lengi við lestur þessara Bókatíðinda til að sjá að nú sem aldrei fyrr er íslensk bókaútgáfa í miklum blóma. Úrvalið hefur sjaldan verið fjölbreyttara og aldrei fyrr hafa jafn margar nýjar raf- og hljóðbækur komið út. Útgáfa nýrra íslenskra skáldverka er líka í sögulegu hámarki og matreiðslubókum fjölgar á milli ára, svo fátt eitt sé nefnt. Allir ættu því að finna bækur við sitt hæfi til að njóta, lesa, hlusta, tala um, deila og gefa. Í ár kynnum við nýja og bætta þjónustu fyrir alla unnendur íslenskra bóka því samhliða hinni hefðbundnu prentuðu útgáfu Bóka tíðinda kynnum við nýja og notendavæna rafræna útgáfu á slóðinni www.bokatidindi.is Gleðileg einstök íslensk bókajól! Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Undir kápumyndum allra bóka má nú finna tákn sem vísa til útgáfuforms. Táknskýringar má finna neðst á öllum kynningarblaðsíðum. A Gormabók B Harðspjalda bók – allar blaðsíður úr hörðum pappír C Hljóðbók D Innbundin bók – kápuspjöld úr hörðum pappír E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa – líkt og kilja en í annarri stærð I Endurútgefin bók Merking tákna í Bókatíðindum BÓKATÍÐINDI 2021 Útgef andi: Félag íslenskra bóka út gef enda Bar óns stíg 5 101 Reykja vík Sími: 511 8020 Netf.: fibut@fibut.is Vef ur: www.fibut.is Hönn un kápu: Halldór Baldursson og Ámundi Sigurðsson Ábm.: Benedikt Kristjánsson Upp lag: 110.000 Prentvinnsla: Prentmet Oddi ehf., umhverfisvottað fyrirtæki ISSN 1028-6748 Efnisyfirlit Barna- og ungmennabækur Myndskreyttar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3 Skáldverk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11 Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20 Ungmennabækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23 Skáld verk Íslensk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26 Þýdd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 36 Ljóð og leikrit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 47 Listir og ljósmyndir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 52 Saga, ættfræði og héraðslýsingar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 54 Ævi sög ur og end ur minn ing ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 55 Matur og drykkur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 58 Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 59 Hannyrðir, íþróttir og útivist . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 74 Titl askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 77 Skrá yfir raf- og hljóðbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 80 Útgef end askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 81 Kynntu þér úrvalið á boksala.is Æðisleg bókabúð, geggjuð verð. Háskólatorgi - s. 570 0777 - boksala@boksala.is - www.boksala.is Auðvelt að panta og fá sent heim 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.