Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 59
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
G
A World in Fragments: Studies on the
Encyclopedic Manuscript GKS 1812 4to
Ritstj.: Gunnar Harðarsson, Christian Etheridge, Guðrún
Nordal og Svanhildur Óskarsdóttir
Bókin fjallar um íslenska alfræðihandritið GKS 1812
4to frá sjónarhornum ólíkra fræðigreina, þ. á m.
handritafræði, stærðfræði og stjörnufræði.
322 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
D F
Af einskærri Sumargleði
Sögur frá litríkum skemmtanaferli
Ómar Ragnarsson
Hér segir Ómar á bráðsmellinn hátt frá árunum
með Sumargleðinni, sem hann stofnaði með Ragnari
Bjarnasyni söngvara. Þeir ferðuðust um landið
sumrin 1971–1985 og héldu uppi söng, gríni og
gleði. Einnig rekur Ómar upphaf ferils síns og segir
frá skemmtanalífinu á Íslandi áður fyrr; revíunum,
héraðsmótunum og ekki síst samferðafólki sínu.
257 bls.
Forlagið - Iðunn
D
Agent Fox in Iceland
136 things to know before coming to the island
Weronika Lis
Í þessari teiknimyndabók sinni, lætur hin pólska
Weronika Lis, refinn sinn, Agent Fox, kanna ýmsar
staðreyndir um Ísland. Refurinn er fullur af húmor og
jákvæðu hugarfari. Í bókinni, sem er skrifuð á ensku,
gerir Agent Fox grein fyrir því hve ófyrirsjáanlegt Ísland
getur verið. Tilvalin gjöf fyrir erlenda vini eða ættingja,
hérlendis og erlendis.
160 bls.
Nýhöfn
D
Allt í blóma
Stofublómarækt við íslenskar aðstæður
Hafsteinn Hafliðason
Falleg pottablóm eru dásamleg. Þau gera heimilin okkar
hlýlegri, veita gleði og fegra umhverfið.
Í Allt í blóma fræðir fremsti garðyrkjumaður okkar,
Hafsteinn Hafliðason, blómaunnendur um hvaðeina
sem skiptir máli af sínu alkunna listfengi.
Hafsteinn hefur lengi glatt fylgjendur Facebook-
grúppunnar Stofublóm, inniblóm, pottablóm og gerir
það svo sannarlega hér svo um munar.
400 bls.
Sögur útgáfa
D
Heima hjá Lækninum í eldhúsinu
Ragnar Freyr Ingvarsson
Heima líður okkur vel og þar eigum við okkar bestu
stundir. Ástríðukokkurinn og Læknirinn í eldhúsinu,
Ragnar Freyr, er kominn heim eftir langa dvöl erlendis
og hér töfrar hann fram litríkt lostæti sem aldrei fyrr.
Enda á heimavelli.
Læknirinn í eldhúsinu sló í gegn með fyrri bókum
sínum, sem eru löngu orðnar ófáanlegar.
374 bls.
Sögur útgáfa
D
HEIMABARINN
Ivan Svanur Corvasce og Andri Davíð Pétursson
HEIMABARINN býður upp á fjölda spennandi
uppskrifta í bland við áhugaverðan fróðleik -
sannkallaður dýrgripur fyrir alla sem hafa gaman
af að lífga upp á tilveruna með kræsilegum kokteilum!
224 bls.
Edda útgáfa
D
Jómfrúin
Dönsk og dejlig í 25 ár
Jakob E. Jakobsson
Myndir: Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Jómfrúin hefur á þeim 25 árum sem hún hefur
starfað fangað hjörtu þeirra sem miðbæ Reykjavíkur
sækja. Bókin sem hér kemur fyrir sjónir lesenda er
óður til Jómfrúarinnar. Í henni má finna uppskriftir
að fjölmörgum réttum sem prýtt hafa matseðilinn í
gegnum tíðina, sögu veitingastaðarins og vitnisburð
fastakúnna sem allir kalla Jómfrúna sína enda eru
veitingastaðir hvorki stærri né meiri en fólkið sem er
þar innandyra. Jómfrúin er okkar og við erum hennar.
192 bls.
Salka
Fræði og bækur
almenns efnis
Fræði og bækur almenns efnis
59
Fræði og bækur almenns efnis