Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 76
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
D
Töfrar hafsins
Skafmynda- og litabók
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Litaðu myndirnar 12 eins og þú vilt hafa þær.
Notaðu skafpinnann til að fjarlægja svörtu kápuna
af myndunum 12 og njóttu þess að skoða ótrúlega
skrautlega sjávarbúa eins og hafmeyjar, sæhesta og
litríka fiska.
Góð afþreying fyrir allan aldur.
28 bls.
Setberg
D
Undraheimur
12 skafmyndir með töfrandi litbrigðum
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Falleg fiðrildi, töfrandi neðansjávarmyndir og
ævintýraveröld. Skafðu og þú gleymir stund og stað!
Góð afþreying fyrir allan aldur.
16 bls.
Setberg
D
Veiði, vonir og væntingar
Sigurður Héðinn
Myndskr.: Sól Hilmarsdóttir
Hér er komin hin fullkomna bók fyrir laxveiði-fólkið!
Farið er vel yfir ólíka veiðitækni og hvernig setja eigi í
og landa laxi. Þá eru í bókinni meira en 50 ómissandi
flugur og að sjálfsögðu fylgja veiðisögur, mátulega ýktar.
Ómissandi bók fyrir alla sem hafa áhuga á laxveiði!
144 bls.
Drápa
G
Prjón er snilld!
Sjöfn Kristjánsdóttir
Myndir: Eygló Gísladóttir
Að prjóna er ekki bara skemmtileg iðja sem gefur af sér
fallegar flíkur. Prjón virkjar líka sköpunarkraftinn og
veitir einstaka hugarró.
Sjöfn Kristjánsdóttir prjónasnillingur tekur hér
saman allar sínar bestu uppskriftir og fylgir eftir
metsölubók sinni Unu prjónabók.
Peysur, húfur, sokkar og allt þar á milli fyrir börn og
fullorðna. Prjón er snilld!
314 bls.
Sögur útgáfa
G I
Prjónabiblían
Gréta Sörensen
Myndir: Helgi Hrafn Kormáksson, Anna Gyða
Gunnlaugsdóttir og Anna Cynthia Leplar
Einstök íslensk uppflettibók um prjóntækni og um leið
hugmyndabanki fyrir munsturgerð og prjónahönnun,
bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Eitt hundrað
útprjónsmunstur eru í bókinni og ítarlega farið yfir
öll grunnatriði í prjóni. Fjölmargar skýringarmyndir
og ljósmyndir prýða bókina. Þetta er ómissandi
grundvallarrit fyrir alla sem prjóna.
272 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
G I
Prjónastund
Lene Holme Samsøe
Þýð.: Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
Myndir: Sisse Langfeldt
Í Prjónastund eru uppskriftir að 32 flíkum; hnepptum
og heilum kvenpeysum, sjölum, sokkum og vettlingum.
Hér eru bæði einfaldar og fljótprjónaðar peysur en líka
flóknari flíkur fyrir vana prjónara.
161 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
76
Hannyrðir, íþróttir og útivist