Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 41
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
E F
Í landi annarra
Leïla Slimani
Þýð.: Friðrik Rafnsson
Myndarlegur liðsforingi frá Marokkó fangar hug
frönsku stúlkunnar Mathilde og hún fylgir honum til
heimalands hans. Með ástina og hugrekkið að vopni
tekst hún á við framandi samfélag í hrjóstrugu landi og
mætir erfiðleikum og fordómum úr öllum áttum. Leïla
Slimani sló í gegn með Barnagælu, sem hlaut hin virtu
Goncourt-verðlaun.
327 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
E F C
Í leyndri gröf
Viveca Sten
Þýð.: Elín Guðmundsdóttir
Mannabein finnast á lítilli eyju norður af Sandhamn
í sænslka skerjagarðinum. Grunsemdir vakna um
að þetta séu líkamsleifar tveggja kvenna sem hurfu
sporlaust fyrir tíu árum. Thomas Andersson tekur
við rannsókn málsins og Nora Linde vill leggja sitt af
mörkum. Þá reynir á samband æskuvinanna – og ekki
síst þegar farið er að róta í gömlum leyndarmálum ...
453 bls. / H 10:50 klst.
Ugla
E F
Í útlegð
Joseph Roth
Þýð.: Jón Bjarni Atlason
Í útlegð hefur að geyma texta sem mörkuðu upphaf og
endi útlegðarára rithöfundarins Josephs Roth í París
eftir að nasistar komust til valda í Þýskalandi.
Helgisaga drykkjumanns greinir frá nokkrum dögum
í lífi sómakærs drykkjumanns en í Mannsandinn
brenndur á báli gerir Roth upp sakirnar við nasista
skömmu eftir að þeir hófu opinberlega að brenna
bækur.
126 bls.
Ugla
E F C
Hljóðbók frá Storytel
Jack
Marilynne Robinson
Þýð.: Karl Sigurbjörnsson
Jack er týndi sonur Johns Ames, prestsins í smábænum
Gilead. Ástir takast með honum og kennaranum Dellu
Miles sem er líka prestsdóttir. En fagurt samband þeirra
er þyrnum stráð. Della er svört á hörund og aðskilnaður
kynþáttanna er þá enn ríkjandi víða í Bandaríkjunum.
Mögnuð skáldsaga um ást og átök, trú og siðgæði, illsku
og hugrekki, vanmátt og von.
389 bls. / H 10:02 klst.
Ugla
G
Jól á eyjahótelinu
Jenny Colgan
Þýð.: Helga Soffía Einarsdóttir
Jólin nálgast og Flora hefur í nógu að snúast þótt hún sé
í fæðingarorlofi. Hún hefur áhyggjur af Fintan bróður
sínum sem á erfitt með að finna lífsgleðina eftir að
hafa misst eiginmann sinn, Colton. Þau systkinin ætla
að standsetja hótelið sem Finton erfði eftir Colton og
stefna á að opna fyrir jólin en það eina sem Fintan
gerir er að ráða til starfa bráðlyndan franskan kokk og
fordekraðan norskan dreng með illa uppalinn hund í
eftirdragi. Sjálfstætt framhald af Mure-bókunum um
Floru MacKenzie og íbúa á eyjunni Mure.
384 bls.
Angústúra
E F
Hundagerðið
Sofi Oksanen
Þýð.: Erla E. Völudóttir
Úkraínsk kona sem býr við fátækt í Helsinki neyðist til
að horfast í augu við sára fortíð sína. Í umrótinu sem
fylgdi sjálfstæði heimalandsins eftir fall Sovétríkjanna
reyndi hver að bjarga sér og konur seldu það eina
sem þær höfðu að selja. Áhrifarík og grípandi
saga um spillingu og græðgi, þar sem stungið er á
samfélagskýlum í beittri og vel byggðri frásögn.
429 bls.
Forlagið - Mál og menning
E F C
Hljóðbók frá Storytel
Hún á afmæli í dag
Anders Roslund
Þýð.: Elín Guðmundsdóttir
Fimm rauð kerti á köku. Zana hlakkaði til og það
hvarflaði ekki að henni að í lok dags yrði allt breytt. Það
eina sem hún óskaði sér var að syngja: „Hún á afmæli
í dag!“
Þegar lögreglumaðurinn Ewert Grens kemur í
íbúðina fyllir óþefur vit hans. Hann á aldrei eftir að
gleyma því sem blasir við honum.
Tveimur áratugum síðar kemur hann aftur í sömu
íbúð ...
511 bls. / H 14:19 klst.
Ugla
G
Hýperíon
eða einfarinn á Grikklandi
Friedrich Hölderlin
Þýð.: Arthúr Björgvin Bollason
Hýperíon er þroskasaga ungs manns sem gerist á
Grikklandi á 18. öld og er lýsing á viðleitni skáldsins til
að ná fótfestu í heimi þar sem verðmæti á borð við ást
og fegurð eru lítils met in. Sagan er rómantískur óður
til náttúrunnar, áskorun um að vernda hennar miklu
gersemar. Frásögnin er ljóðræn og tilfinningaþrungin,
skrifuð með hjartablóði eins af fremstu ljóðskáldum
Þjóðverja fyrr og síðar. Tímalaust og grípandi verk.
350 bls.
Háskólaútgáfan
D F
Hættuleg sambönd
Pierre Choderlos de Laclos
Þýð.: Friðrik Rafnsson
Í þessari frægustu bréfaskáldsögu allra tíma segir
af Merteuil markgreifynju og Valmont vísigreifa,
lífsreyndu og kaldrifjuðu aðalsfólki sem finnst vanta
krydd í tilveruna. Þau ákveða að draga fólk á tálar ýmist
sér til skemmtunar eða í hefndarskyni og skrifast á um
árangurinn. Úr verður magnað manntafl þar sem allar
hvatir og tilfinningar mannsins takast á.
672 bls.
Ugla
E F
Istanbúl, Istanbúl
Burhan Sönmez
Þýð.: Ingunn Snædal
Undir yfirborði hinnar töfrum slungnu borgar, í klefa
fjörutíu, hírast fjórir fangar. Þar skiptast neminn
Demirtay, læknirinn, rakarinn Kamo og Küheylan
frændi á sögum um borgina fyrir ofan til að drepa tíma
og hughreysta hver annan.
Heillandi saga um mátt ímyndunaraflsins andspænis
mótlætinu.
255 bls.
Bjartur
41
Skáldverk ÞÝDD