Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 26
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
D
Arnaldur Indriðason deyr
Bragi Páll Sigurðarson
Íslenska þjóðin er í áfalli þegar ástsælasti rithöfundur
hennar, Arnaldur Indriðason, finnst myrtur í
kjallaraíbúð í Norðurmýrinni.
Hvernig tengist hinn mislukkaði rithöfundur Uggi
Óðinsson morðinu og hví fléttast strákarnir úr 70
mínútum inn í málið?
Arnaldur Indriðason deyr er önnur skáldsaga Braga
Páls, en sú fyrri, Austur, fékk verðskuldað lof.
264 bls.
Sögur útgáfa
D
Borg bróður míns
Kristín Ómarsdóttir
„Ef þú prjónar mér peysu með þverlöngum gulum
röndum (eða röddum) undir rauðum stjörnum (eða
tjörn) á ljósbláum himni lofa ég að fara ekki svona
mikið út á kvöldin ...“
Mögulega núna á meðan heimar lágu í kófi, í nálægri
borg eða í fjarska og jafnvel hvergi, voru orð tínd ofan í
þessa bók sagna, skyndimynda, skjáskota og brota.
208 bls.
Benedikt bókaútgáfa
E F
Bráðin
Yrsa Sigurðardóttir
Björgunarsveitir eru sendar inn í Lónsöræfi í leit að
hópi fólks sem er saknað. Á sama tíma gerast undarlegir
atburðir á ratsjárstöðinni á Stokksnesi. Og á nesinu er
gat í sjávarklöpp sem sogar til sín fólk ...
Bráðin var ein söluhæsta bók ársins 2020 og hlaut
mikið lof gagnrýnenda.
344 bls.
Veröld
D F C
Dansarinn
Óskar Guðmundsson
Lesari: Daníel Ágúst Haraldsson
Þegar draumar móður Tonys um frama í dansheiminum
verða að engu reynir hún að færa þá yfir á son sinn með
grimmilegum aðferðum – og skelfilegum afleiðingum.
Í Öskjuhlíðinni finnst lík sem hefur legið þar lengi.
Fljótlega kemur í ljós að hrottalegur morðingi gengur
laus og að ekki er allt sem sýnist. Óskar Guðmundsson,
höfundur Hilmu, færir lesendum hér magnaða
spennusögu.
237 bls. / H 5:19 klst.
Storytel
D F C
Djúpið
Benný Sif Ísleifsdóttir
Árið 1975 er vísindafólk ráðið til starfa hjá
Búseturöskun ríkisins í þeim tilgangi að efla mannlíf
og atvinnu í Djúpinu. Þar rekst líffræðineminn Valborg
á veruleika þar sem hlutverk konunnar er að hella upp
á kaffi og stjana við karlana, sem taka allar ákvarðanir
þótt svo eigi að heita að það sé kvennaár. Heillandi saga
eftir höfund Hansdætra.
314 bls.
Forlagið - Mál og menning
Skáldverk
Íslensk
E
107 Reykjavík
Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir
„Þessi bók er eiginlega þerapía-maður emjar af hlátri ...
Fyndnasta bók ársins.“ SER, Hringbraut
„Hreint út sagt frábær paródía ... ekki hægt annað en
hlæja upphátt.“ SS, Vikan
„Tíðarandabók par exellence“ Þorgeir Tryggvason,
Kiljan
„Öskurhló oft.“
Kamilla Einarsdóttir
301 bls.
Bjartur
E F C
Að telja upp í milljón
Anna Hafþórsdóttir
Daginn sem kærastinn yfirgefur Rakel fer tilvera hennar
á hvolf. En þegar hún óttast að vera að missa tökin fær
hún óvænta heimsókn. Að telja upp í milljón hefur
hlotið mikla athygli og lofsamlega dóma enda áhrifarík
saga um flókin fjölskyldutengsl, áföll og samskiptaleysi
en líka um ástina og lífið. Hún er önnur tveggja
bóka sem báru sigur úr býtum í handritasamkeppni
Forlagsins, Nýjar raddir, árið 2021.
167 bls. / H 4:06 klst.
Forlagið
D F
Allir fuglar stefna á ljósið
Auður Jónsdóttir
Björt er ráfari, fer á milli staða í Reykjavík, fylgist
með fólki og skráir hjá sér athuganir sínar. Hún leigir
herbergi í hrörlegu húsnæði með öðru fólki. En svo fær
hún bréf og smám saman flettist ofan af dramatískri
ævi hennar.
Auður Jónsdóttir er einn vinsælasti rithöfundur
landsins.
359 bls.
Bjartur
D
Arkítektarnir
Baldur Gunnarsson
,,Svanlaug stóð þar íturvaxin sem Makhalina í gervi
Odile. Möndluaugun geisluðu. Rósamunnurinn
svignaði. Jú, þokki opnar ýmsar dyr. En meira þarf til
valda: Ófyrirleitni. Harðfylgi. Slægð.”
Hvaðan kemur fjármagn til að reisa fokdýra listahöll
í Engey? Hvað býr að baki framkvæmdinni? Hvernig
tengjast þekktur húsameistari, balletdansari og
hæstvirtur ráðherra hrottafengnu morði?
Ný skáldsaga eftir höfund í fremstu röð.
306 bls.
Bergó útgáfan
Skáld verk
Íslensk
26
Skáldverk ÍSLENSK