Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 29
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
E
Hylurinn
Gróa Finnsdóttir
Hylurinn er dramatísk og spennandi saga af heillandi
mannlífi, andlegum þroska, ástum og fallegri vináttu.
En við hittum einnig fyrir hinar myrkustu hliðar
mannlífsins og lesandinn dregst inn í spennu þar sem
við sögu koma bein manns og hests í litlu heiðarvatni.
Hylurinn er fyrsta bók höfundar sem hefur yfir að ráða
næmum og fallegum stíl.
344 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
D
Hægt og hljótt
til helvítis
Magnús Guðmundsson
Rannsóknarlögregluþjónarnir Aron Freyr og Jóhanna
mæta á vettvang alvarlegs glæps í miðborginni.
Fjölskylduföður dreymir um góð efni og glæsta framtíð
fyrir sig og sína, graðir bankamenn leggja allt að veði
nema eigin hagsmuni og miðaldra fasteignasala dreymir
um betra líf. Græðgi og hatur ólmast og birtast í kimum
kommentakerfanna.
284 bls.
Benedikt bókaútgáfa
D F C
Hælið
Emil Hjörvar Petersen
Lesari: Sólveig Arnarsdóttir, Guðrún Ýr Eyfjörð og
Guðmundur Ingi Þorvaldsson
Þegar undarlegir hlutir eiga sér stað á heimili nærri
gamla Kópavogshælinu fer Uglu að gruna nágranna
sinn um græsku. Skilaboð berast frá konu sem vistuð
var á Kópavogshæli og Ugla fer að sjá fólk sem enginn
annar sér. Henni verður ljóst að fjölskylda hennar er í
mikilli hættu. Hælið er hrollvekjandi skáldsaga sem fær
hárin til að rísa.
315 bls. / H 9:17 klst.
Storytel
D F
Höggið
Unnur Lilja Aradóttir
Ung kona vaknar á minnislaus á sjúkrahúsi. Hún þekkir
hvorki tilveru sína né sjálfa sig en fær á tilfinninguna
að eitthvað sé ekki eins og það eigi að vera. Hún leggur
upp í ferðalag inn í fortíð sína þar sem skelfilegir
atburðir afhjúpast. Unnur hlaut glæpasagnaverðlaunin
Svartfuglinn fyrir söguna.
310 bls.
Veröld
E
Hjálp!
Fritz Már Jörgensson
Á fallegum sumardegi finnst lík af nakinni konu í
sorpgeymslu við safnaðarheimili Dómkirkjunnar
í Reykjavík. Henni hafði verið misþyrmt með
hrottafengnum hætti. Brátt vakna grunsemdir um að
fleiri konur kunni að vera í hættu. Jónas og félagar hans
hjá sérdeild rannsóknarlögreglunnar keppast við að
leysa málið. En það tengir anga sína í óvæntar áttir ...
256 bls.
Ugla
D
Horfnar
Stefán Máni
Það er sumarbjart og sólin skín við Kirkjubæjarklaustur.
Tvær þýskar vinkonur á bakpokaferðalagi heillast af
stórbrotinni náttúrunni.
Undir friðsælu yfirborðinu við Klaustur leynast þó
myrk leyndarmál sem stúlkurnar tvær vilja ekki vita af.
Hörður Grímsson lögreglumaður er mættur að
Klaustri til afleysinga. Þar gerist aldrei neitt. Að hann
heldur.
286 bls.
Sögur útgáfa
F C
Hrafninn
Sandra B. Clausen
Lesari: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Hrafninn er sjötta bókin í Hjartablóðsseríunni. Ester og
Gissel eru á flótta frá yfirvaldi í Mariestad. Þau ferðast
að rótum fjallanna þar sem flokkur Ara tekur þeim
opnum örmum. Í húmi nætur sjá þau ekki hrafnana
sem fylgja skuggum þeirra en þau finna að dauðinn er
nærri. Meðal flokksins búa djúpstæð leyndarmál sem
gætu breytt lífinu til frambúðar.
H 5:22 klst.
Storytel
F C
Hringferðin
Anna Margrét Sigurðardóttir
Lesari: Þórunn Erna Clausen
Sumarið 2020 finnst er illa útleikið lík fjölskylduföður,
og skilaboð frá morðingjanum eru skilin eftir á
vettvangi, rituð með blóði. Áður en langt um líður
teygja angar málsins sig víða um land. Fimm manna
fjölskylda af stað í hringferð um landið, ómeðvituð
um hættuna sem fylgir. Hringferðin er æsispennandi
krimmi sem talar beint inn í samtímann.
H 5:57 klst.
Storytel
D
Hugfanginn
Anna Ragna Fossberg Jóhönnudóttir
Þegar líður yfir Smára kemur leyndur hjartagalli í ljós.
Þórgunnur, æskuvinkona hans, spyr hvort slíkur galli
geti verið arfgengur? Leitin að svari við þeirri spurningu
leiðir hann að sögu foreldra sinna, sem hann kynntist
aldrei. Hugfanginn er saga um ást og þrá, um f íkn og
ábyrgð, um hlekki hugans sem setja tilfinningunum
strangar skorður, og um frelsið handan þeirra.
141 bls.
Króníka
29
Skáldverk ÍSLENSK