Bókatíðindi - 01.12.2021, Blaðsíða 65
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
D
Í auga fellibylsins
Óttar Sveinsson
Árið 2013 lenda þrír menn á lítilli skútu í fárviðri á
leiðinni frá Kanada til Íslands. Lífshættulegir brotsjóir
dynja á skútunni, hún fer á hliðina og sjór flæðir inn.
Eftir að neyðarkall er sent út berjast þeir í óratíma upp
á líf og dauða. Frásagnir mannanna hafa ekki birst áður
opinberlega. Útkallsbækurnar hafa verið eitt vinsælasa
lesefni Íslendinga í 28 ár.
208 bls.
Útkall ehf.
D
Í bragar túni
Óskar Halldórsson
Óskar Halldórsson var lektor í íslenskum bókmenntum
við Háskóla Íslands. Þessi bók hefur að geyma
safn ritgerða hans um bókmenntir, einkum um
íslenskar fornsögur og ljóðagerð á 19. og 20. öld. Þar
á meðal er þekktasta framlag hans til rannsókna á
fornbókmenntum, Uppruni og þema Hrafnkels sögu.
Bókin er gefin út í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá
fæðingu Óskars.
328 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
G
Í helgum lundi
Kærleikur og ástarorð
Skúli Þór Bragason
Einfaldir textar um lífið, kærleikann, ástina og sorgina.
62 bls.
Skúli Þór Bragason
G
Íslenskar bókmenntir
Saga og samhengi
Aðalheiður Guðmundsdóttir, Ármann Jakobsson, Ásta
Kristín Benediktsdóttir, Jón Yngvi Jóhannsson, Margrét
Eggertsdóttir og Sveinn Yngvi Egilsson
Íslenskar bókmenntir: saga og samhengi er tveggja
binda verk um sögu íslenskra bókmennta frá upphafi
Íslandsbyggðar til vorra daga. Þar er sagan rakin á
knappan hátt í samhengi við strauma og stefnur hvers
tíma og er sú umfjöllun grundvölluð á rannsóknum
seinustu áratuga. Verkið er ætlað háskólastúdentum,
kennurum og áhugamönnum um íslenskar bókmenntir.
840 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
D
Íslenskar draugasögur
Svanhildur Sif Halldórsdóttir og Huginn Þór Grétarsson
Við Íslendingar eigum ríka sagnahefð sem teygir
sig aftur til tíma landnámsmanna. Draugar, mörur,
fylgjur, mórar, skottur og afturgöngur spila þar oftar
en ekki stórt hlutverk. Þessar óvættir urðu ekki eftir í
fortíðinni heldur eru hér enn og stundum stíga þær út
úr myrkrinu. Í þessari bók má finna draugasögur frá
nútímanum.
260 bls.
Óðinsauga útgáfa
G
Hús og híbýli á Hvammstanga
Húsaskrá 1898–1972
Þórður Skúlason
Hvammstangi er þéttbýlisstaður sem byggðist upp á fyrri
hluta 20. aldar sem aðalverslunar- og þjónustustaður
fyrir Vestur-Húnavatnssýslu. Í bókinni rekur Þórður
Skúlason þróun byggðar á Hvammstanga frá 1898 til
1972, sögu um 180 húsa á Hvammstanga -húsa sem enn
standa og einnig þeirra sem hafa horfið af sjónarsviðinu
í tímans rás. Sagan er krydduð með kátlegum mann-
lýsingum og fróðlegum lýsingum á mannlífi fyrri tíðar
á Hvammstanga. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda af
húsum og umhverfi, bæði gömlum og nýjum.
287 bls.
Skriða bókaútgáfa
D
Hvað er lífið?
Erwin Schrödinger
Þýð.: Guðmundur Eggertsson
Erwin Schrödinger var einn merkasti eðlisfræðingur
tuttugustu aldar. Hann hlaut nóbelsverðlaun fyrir
framlag sitt til skammtafræðinnar árið 1933. En
Schrödinger var einnig annt um að máta skilning
eðlisfræðinnar á lifandi efni og í Hvað er lífið? fjallar
hann um erfðafræði á forsendum eðlis- og efnafræði.
Bókin er enn í dag meðal þekktustu rita um eðli lífsins.
192 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
E
Hvað veistu um kvikmyndir
og sjónvarpsþætti?
Gauti Eiríksson
Frábær spurningabók fyrir allt áhugafólk um
kvikmyndir og sjónvarpsætti. 265 spurningar í þremur
þyngdarflokkum og mikið af ljósmyndum prýða bókina.
Gauti Eiríksson gefur jafnframt út í ár spurningabækur
um Ísland og fótbolta.
84 bls.
Óðinsauga útgáfa
D
Hæstiréttur í hundrað ár
Saga
Arnþór Gunnarsson
Stofnun Hæstaréttar var mikilvægur áfangi í
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar enda fengu Íslendingar
þá í hendur æðsta dómsvald í eigin málum. Í þessu
riti er aldarsaga réttarins rakin. Oft hefur gustað um
Hæstarétt og jafnvel verið vegið að sjálfstæði hans en í
annan tíma hefur rétturinn notið virðingar og friðhelgi.
Þetta er viðburðarík saga sem varpar ljósi á íslenskt
samfélag og kemur á óvart.
550 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
D
Höndlað við Pollinn
Saga verslunar og viðskipta á Akureyri frá öndverðu til
2000
Jón Þ. Þór
Í þessari fróðlegu og læsilegu bók rekur Jón Þ. Þór sögu
verslunar á Akureyri frá öndverðu til þúsaldarmótanna
2000. Hér segir frá fjölda fyrirtækja og körlum og
konum sem mótuðu viðskiptaumhverfið og settu svip
á mannlífið í bænum í áranna rás. Bókin er prýdd
fjölda ljósmynda og auk þess teikningum og máluðum
myndum eftir Kristin G. Jóhannsson listmálara.
270 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
65
Fræði og bækur almenns efnis