Bókatíðindi - 01.12.2021, Page 2
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1 A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa
Kæri bókaunnandi,
S ú hefð að gefa bækur til jólagjafa má rekja til áranna eftir síðari
heimstyrjöld og eftir að hafa fengið sjálfstæði okkar frá Dönum
árið 1944. Á þessum árum var efnhagsástandið hér á landi ekki
burðugt enda kreppa eftirstríðsáranna ríkjandi hér sem og í öðrum
löndum. Fyrstu ár nýfengins sjálfstæðis voru því ekki auðveld fyrir hið
unga lýðveldi sem stóð nú frammi fyrir afar flóknum og krefjandi
aðstæðum. Þá dugði ekki að grípa til neinna vettlingataka þannig að
efnahagsástandið færi ekki úr böndunum. Mjög umfangs miklar
að gerðir reyndust nauðsynlegar til takmarka innflutning á margskonar
vörum. Það var gert með víðtækum kvótum og innflutningsbönnum
sem sett voru á fjölmargar neysluvörur. Þetta takmarkaði mjög það
úrval af gjafavöru sem landsmönnum hafði áður staðið til boða m.a. til
jólagjafa. En þar sem pappír var utan þessara hafta þá var hann fluttur
inn til að framleiða bækur sem mjög fljótt urðu vinsælar jólagjafir.
Þannig varð útgáfa íslenskra bóka á þessum árstíma tákn um hugvit
smáþjóðar sem bæði styrkti sjálfsmynd sína á erfiðum tímum og skóp
líka einstaka hefð sem hvergi á sér hliðstæðu í heiminum.
Ekki þarf svo að staldra lengi við lestur þessara Bókatíðinda til að sjá
að nú sem aldrei fyrr er íslensk bókaútgáfa í miklum blóma. Úrvalið
hefur sjaldan verið fjölbreyttara og aldrei fyrr hafa jafn margar nýjar
raf- og hljóðbækur komið út. Útgáfa nýrra íslenskra skáldverka er líka í
sögulegu hámarki og matreiðslubókum fjölgar á milli ára, svo fátt eitt sé
nefnt. Allir ættu því að finna bækur við sitt hæfi til að njóta, lesa, hlusta,
tala um, deila og gefa.
Í ár kynnum við nýja og bætta þjónustu fyrir alla unnendur íslenskra bóka
því samhliða hinni hefðbundnu prentuðu útgáfu Bóka tíðinda kynnum
við nýja og notendavæna rafræna útgáfu á slóðinni www.bokatidindi.is
Gleðileg einstök íslensk bókajól!
Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.
Undir kápumyndum allra bóka
má nú finna tákn sem vísa til
útgáfuforms. Táknskýringar
má finna neðst á öllum
kynningarblaðsíðum.
A Gormabók
B Harðspjalda bók – allar
blaðsíður úr hörðum pappír
C Hljóðbók
D Innbundin bók – kápuspjöld
úr hörðum pappír
E Kilja
F Rafbók
G Sveigjanleg kápa – líkt og
kilja en í annarri stærð
I Endurútgefin bók
Merking tákna
í Bókatíðindum
BÓKATÍÐINDI 2021
Útgef andi: Félag íslenskra bóka út gef enda
Bar óns stíg 5
101 Reykja vík
Sími: 511 8020
Netf.: fibut@fibut.is
Vef ur: www.fibut.is
Hönn un kápu: Halldór Baldursson og Ámundi Sigurðsson
Ábm.: Benedikt Kristjánsson
Upp lag: 110.000
Prentvinnsla: Prentmet Oddi ehf., umhverfisvottað fyrirtæki
ISSN 1028-6748
Efnisyfirlit
Barna- og ungmennabækur
Myndskreyttar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
Skáldverk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Ungmennabækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
Skáld verk
Íslensk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26
Þýdd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 36
Ljóð og leikrit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 47
Listir og ljósmyndir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 52
Saga, ættfræði og héraðslýsingar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 54
Ævi sög ur og end ur minn ing ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 55
Matur og drykkur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 58
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 59
Hannyrðir, íþróttir og útivist . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 74
Titl askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 77
Skrá yfir raf- og hljóðbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 80
Útgef end askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 81
Kynntu þér úrvalið á boksala.is
Æðisleg bókabúð, geggjuð verð.
Háskólatorgi - s. 570 0777 - boksala@boksala.is - www.boksala.is
Auðvelt
að panta
og fá sent
heim
2