Bókatíðindi - 01.12.2021, Page 13
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
E
Hulduheimar
Draumadalurinn
Vatnaliljutjörn
Rosie Banks
Þýð.: Arndís Þórarinsdóttir
Tvö ný og töfrandi ævintýri um Evu, Sólrúnu og Jasmín
og vini þeirra í Hulduheimum. Í Draumadalnum liggja
allir íbúarnir andvaka af dularfullum ástæðum og í
Vatnaliljutjörn leita stúlkurnar að enn einu hráefni
í töfradrykkinn handa Teiti konungi. Skemmtilegar
og ríkulega myndskreyttar léttlestrarbækur sem eiga
marga aðdáendur.
122 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
D
HUNDMANN – Tveggja katta tal
Dav Pilkey
Þýð.: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Hundmann hefur slegið í gegn um allan heim og selst
í tugum milljóna eintaka. Raunar er leit að vinsælli
barnabókum. Dav Pilkey, sem einnig samdi bækurnar
um Kaptein Ofurbrók, fer hér á kostum. Húrrandi glens
og spaug með ýmsum f íflagangi í bland. Oft ansi gott
og ristir dýpra en við fyrstu sýn. Hér í frábærri þýðingu
Sigurgeirs Orra Sigurgeirssonar.
256 bls.
Bókafélagið
D F
Ferðin á heimsenda
Illfyglið
Sigrún Elíasdóttir
Myndir: Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson
Húgó og Alex eru búin að týna hvort öðru en halda
þrátt fyrir það áfram leitinni að síðustu steinstyttunni.
Á meðan þau kljást við úrillan dreka, blóðþyrsta
drottningu og allt of kurteist skrímsli sveimar Illfyglið
yfir og veit að brátt mun tími þess renna upp. Þetta er
lokabindið í bráðfyndnum fantasíuþríleik fyrir 8–12 ára
lesendur.
212 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
D
Í huganum heim
Guðlaug Jónsdóttir
Í huganum heim er heillandi tímaferðalag á
bernskuslóðir höfundar. Við heyrum lömbin jarma,
krakkana hlæja og hrossagaukinn hneggja, finnum
ilm af lyngi og angan af jólum. Fjörlegar frásagnir af
krökkunum á bænum en líka fullorðna fólkinu og
sveitungum, gestum og gangandi, að ógleymdum öllum
dýrunum.
Kjörin bók til samlesturs barna og fullorðinna.
188 bls.
Guðlaug Jónsdóttir og Karl K. Ásgeirsson
D
Harry Potter og fanginn frá Azkaban
myndskreytt útgáfa
J. K. Rowling
Þýð.: Helga Haraldsdóttir
Stórglæsileg myndskreytt útgáfa af þriðju bókinni í
ritröðinni um Harry Potter, stútfull af töfrum úr pensli
Jims Kay, handhafa Kate Greenaway-verðlaunanna.
„Stórfenglegt“
Telegraph
326 bls.
Bjartur
D
Harry Potter og Fönixreglan
J. K. Rowling
Þýð.: Helga Haraldsdóttir
Þegar vitsugur ráðast á Harry og Dudley í sumarfríinu
gerir hann sér grein fyrir því að Voldemort og fylgdarlið
hans mun svífast einskis til að ná völdum og knésetja
hann. Í Hogwarts er allt í uppnámi vegna yfirvofandi
endurkomu Voldemorts og Harry, Hermione og Ron
þurfa að taka til sinna ráða.
749 bls.
Bjartur
D
Herra Fnykur
David Walliams
Þýð.: Guðni Kolbeinsson
Líkast til er engin stelpa eins einmana og Lóa. En svo
hittir hún herra Fnyk, flakkarann í bænum. Já, það er
svolítil ólykt af honum – en hann er sá eini sem hefur
nokkru sinni verið góður við hana. Og þegar herra
Fnyk vantar stað til að vera á ákveður Lóa að fela hann
í garðskúrnum heima hjá sér. Frábær bók eftir þennan
vinsæla höfund.
280 bls.
Bókafélagið
D F C
Ljósaserían
Holupotvoríur alls staðar
Hilmar Örn Óskarsson
Myndskr.: Blær Guðmundsdóttir
Bókaklúbbur barnanna - ljosaserian.is
Hávarður og Maríus eru átta ára og bestu vinir.
Einn daginn ætla þeir að selja tombólur og græða
haug af peningum en hitta þá Bartek sem er nýfluttur
til Íslands frá Póllandi. Í fyrstu gengur erfiðlega fyrir
strákana að tala saman en þeir láta það ekki stöðva sig.
Sérstaklega ekki þegar þeir uppgötva að Bartek er á leið
í lífshættulegan leiðangur.
80 bls. / H 59 mín.
Bókabeitan
D F C
Hringavitleysa
Sigurrós Jóna Oddsdóttir
Myndskr.: Sigmar B. Þorgeirsson
Af hverju í ósköpunum hafði Fjóla samþykkt að taka
þátt í þessari vitleysu? Nú var hún á harðahlaupum,
með heimska belju og meðvitundarlausan kóngsson í
eftirdragi og tvær ófrýnilegar tröllskessur á hælunum.
Þetta var algjörlega út í hött og alls ekki það sem
hún hafði ætlað sér þegar hún mætti í skólann um
morguninn.
216 bls. / H 3:30 klst.
Bókabeitan
13
Barnabækur SK ÁLDVERK