Bókatíðindi - 01.12.2021, Síða 17

Bókatíðindi - 01.12.2021, Síða 17
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1 D Sagan af Gýpu Endurs.: Huginn Þór Grétarsson Gýpa er með eindæmum matgráðug og mesta furða að hún hafi ekki verið búin að éta heimilisfólk út á gaddinn. Þegar matinn þrýtur étur hún askinn sinn, karl og kerlingu í kotinu og kúna Kreppiltrýnu. Síðan heldur hún af stað. Hver skyldi vera svo ólánsamur að verða á vegi hennar? Stórkostlegt íslenskt ævintýri. 34 bls. Óðinsauga útgáfa D Salka: Tölvuheimurinn Bjarni Fritzson Eftir að Benedikt forseti hafði sett neyðarútgöngubann á um allt land kynnti hann Tölvuheiminn, sýndarveruleikaútgáfu af okkar eigin lífi, fyrir þjóðinni. Þar var hægt að gera allt sem maður vildi og verið nákvæmlega sá sem mann hefur alltaf dreymt um að vera. Þjóðin sökk djúpt ofan í Tölvuheiminn og ég hafði áhyggjur af því að við kæmumst aldrei út úr honum. En svo sagði afi dálítið sem átti eftir að breyta öllu og þar með hófst mesta ævintýri lífs míns. Sem betur fer hafði ég Dag, Kristínu og Henrý mér til halds og trausts. 200 bls. Út fyrir kassann D Lóa og Börkur Saman í liði Kjartan Atli Kjartansson Þegar miðherji unglingaliðs í körfubolta hrynur niður í miðjum leik vegna óvæntra veikinda eru góð ráð dýr. Liðsfélagarnir óttast um afdrif vinar síns og draumarnir um Íslandsmeistaratitilinn eru í uppnámi, en á ögurstundu kemur öflugur liðsstyrkur úr óvæntri átt. Lóa og Börkur – Saman í liði er skemmtileg og spennandi saga um mikilvægi vináttunnar. 144 bls. Sögur útgáfa D Seiðmenn 4 Að eilífu, aldrei Cressida Cowell Þýð.: Jón St. Kristjánsson Ósk og Xar hafa fundið hráefnin fyrir nornaförgunargaldurinn og nú kallar nornakóngurinn þau til sín að Tjörn hinna týndu. En fyrst verða þau að blanda seyðið … Geta þau sigrast á hinum hungraða gandormi og flúið með Bikar nýrra færa? Og verður galdurinn nógu öflugur til að aflétta BÖLVUNINNI yfir Villiskógunum eða munu nornirnar ráða AÐ EILÍFU? Fjórða og síðasta bókin í æsispennandi ævintýrasögu um stríðsmærina Ósk og seiðstrákinn Xar. 392 bls. Angústúra D Síðasta tækifærið Eva Björg Logadóttir Myndskr.: Heiða Rún Jónsdóttir Eftir afdrifaríkt spjall við Braghildi gömlu, ferðast Sandra og Karen aftur í tímann. Þegar þangað er komið bíður þeirra það stóra og mikilvæga verkefni að bjarga heiminum frá hættulegu loftslagsbreytingunum. Hefst þá mikið kapphlaup við tímann og alls kyns óvæntar uppákomur verða á vegi þeirra og eitt er víst að aðalverkefnið þarna er þeirra síðasta tækifæri til að bjarga heiminum. 104 bls. LEÓ Bókaútgáfa D Ótrúlegt en satt - Ævintýri Dísu og Stjörnu Þórdís Kjartansdóttir og Þórdís Lára Sigurðardóttir Myndskr.: Hlíf Una Bárudóttir Dísa, sem er sjö ára fimleikastelpa, þráir ekkert heitar en að eignast hund. Óskin rætist og vegna ótrúlegra hæfileika voffans lenda þær saman í miklum ævintýrum sem fara með þær alla leið til Hollywood. Stórskemmtileg og sérlega fallega myndskreytt bók sem bæði vermir og kætir. 68 bls. Bókafélagið E F C Palli Playstation Gunnar Helgason Ný saga í geysivinsælum bókaflokki um Stellu og fjölskyldu hennar sem hófst með Mömmu klikk. Nú hefur systkinum Stellu fjölgað um tvö og heimilislífið er ansi skrautlegt. Allt fer þó endanlega í vitleysu þegar Palli stóri bróðir hættir með Bellu kærustunni sinni. Þá verður Stella að bjarga málunum! En hvernig skyldi það ganga? 175 bls. / H 3:46 klst. Forlagið - Mál og menning D Randver kjaftar frá Geggjaðar draugasögur Jeff Kinney Þýð.: Helgi Jónsson Randver heldur áfram að kjafta frá. Nú vill hann segja spennandi draugasögur. Randver gæti þess vegna verið efni í stórskáld þó svo að Kiddi klaufi, sem á að heita besti vinur hans, efist um það. Geggjaðar draugasögur er sú þriðja í röðinni af fáránlega fyndnum sögum af besta vini Kidda klaufa. 224 bls. Sögur útgáfa G Þín eigin saga Rauðhetta Ævar Þór Benediktsson Myndir: Evana Kisa Hér er sagan af Rauðhettu sögð á glænýjan hátt – því þú ræður hvað gerist! Mundu bara að ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur því það eru mörg mismunandi sögulok. Bækur Ævars Þórs þar sem lesandinn ræður ferðinni njóta mikilla vinsælda og hér er komin stutt og litrík útgáfa af þessu alþekkta ævintýri sem hentar byrjendum í lestri. 104 bls. Forlagið - Mál og menning D Saga finnur fjársjóð (og bætir heiminn í leiðinni) Sirrý Arnardóttir Myndskr.: Freydis Kristjánsdóttir Saga er nýflutt í borgina og leiðist. Hún fer út og hittir þar þrjá stráka sem allir eru eins, og saman ákveða þau að gera heiminn betri. Þau byrja á því að tína upp rusl í fjörunni og finna þar óvenjulegan fjársjóð sem hefur óvæntar afleiðingar í för með sér ... 32 bls. Veröld 17 Barnabækur SK ÁLDVERK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.