Bókatíðindi - 01.12.2021, Síða 27

Bókatíðindi - 01.12.2021, Síða 27
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1 E C Eldarnir Ástin og aðrar hamfarir Sigríður Hagalín Björnsdóttir Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eldfjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og hamingjuríkt líf hennar lætur ekki lengur að stjórn. 301 bls. / H 7:43 klst. Benedikt bókaútgáfa E Eldur í höfði Karl Ágúst Úlfsson Hver hugsun í höfði Karls Magnúsar er vagn sem tengist við vagn sem tengist við vagn. Höfuð hans er lestarstöð þar sem fleiri og fleiri lestir renna stjórnlaust inn. Hugsanirnar læðast ein af annarri, þær eru óstöðvandi og einn daginn springur það, höfuðið hans. 207 bls. Benedikt bókaútgáfa E C Hljóðbók frá Storytel Eyland Sigríður Hagalín Björnsdóttir Manstu hvar þú varst þegar það gerðist? – Eyland er hrollvekjandi ástar- og spennusaga, þar sem Íslandssagan tekur óvænta stefnu. Sigríður Hagalín Björnsdóttir er fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Í fyrstu skáldsögu sinni tekst hún á við spurningar um hvað sé að tilheyra fjölskyldu og vera Íslendingur, hvað sameini okkur og sundri. 252 bls. / H 5:39 klst. Benedikt bókaútgáfa D Ég hef gleymt einhverju niðri Jón Óskar Jón Óskar (1921–1998) var einkum þekktur sem ljóðskáld og var einn úr hópi hinna svokölluðu atómskálda sem komu fram með nýjungar í íslenskri ljóðagerð um miðja 20. öld. Í þessu smásagnasafni, Ég hef gleymt einhverju niðri, birtast allar smásögur hans sem teljast fullfrágengnar, bæði þær sem birtust í Sögum 1940–1964 og einnig fimm sögur sem hann samdi eftir það og ekki hafa komið áður út í bók. 236 bls. Skrudda E F C Farangur Ragnheiður Gestsdóttir Ylfa stendur á brautarpallinum, loksins búin að gera upp hug sinn. Hún verður að komast burt. Undir eins, áður en hann vaknar. Ekkert má koma í veg fyrir að hún komist af stað. Ekki einu sinni þessi óvænti farangur sem hún fær í fangið. Farangur er grípandi og hrollvekjandi spennusaga sem erfitt er að leggja frá sér fyrr en að lestri loknum. 268 bls. / H 8:52 klst. Björt bókaútgáfa - Bókabeitan D F C Dyngja Sigrún Pálsdóttir Dyngja segir frá ungum flugmanni sem gerist flugfreyja árið 1971. Að baki þeirri ákvörðun býr undraverð saga sem hefst um miðbik 20. aldar, við rætur Ódáðahrauns, en teygir sig smám saman lengra inn í landið, þaðan út í geim og að lokum til tunglsins. Sigrún Pálsdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins fyrir Delluferðina. 227 bls. Forlagið - JPV útgáfa E C Dýralíf Auður Ava Ólafsdóttir Í vetrarmyrkri er áður óþekkt lægð í aðsigi. Ung ljósmóðir býr í íbúð sem hún erfði eftir ömmusystur sína. Upp úr kassa undan Chiquita-banönum koma þrjú handrit sem ömmusystirin vann að, Dýralíf, rannsókn á því sem mannskepnan er fær um, Sannleikurinn um ljósið og Tilviljunin. Dýralíf fjallar um brothættasta og grimmasta dýrið: manninn og leitina að mennskunni. 208 bls. / H 5:49 klst. Benedikt bókaútgáfa G Efndir Þórhildur Ólafsdóttir Eftir margra ára búsetu í Frakklandi finnur Elísabet að hún verður að fara til æskuslóðanna á Íslandi til þess að ganga frá sínum málum. Þar reynir hún að hnýta lausa enda og vinna bug á sorginni og vonleysinu sem hefur fylgt henni lengi. Hún sest að í gamla húsinu þar sem hún ólst upp og fer að skrifa í von um betrun. Efndir er allt í senn, óður til heimalandsins, ferðalag um hugarheim íslenskrar sveitastelpu, vangaveltur um sorgina og sektina. 264 bls. Skriða bókaútgáfa E F Ein Ásdís Halla Bragadóttir Ung kona sem starfar í heimaþjónustu í blokk fyrir eldri borgara óttast að eiga sök á því að hafa hrundið af stað hræðilegri atburðarás. Í sömu blokk virðist maður hafa orðið fyrir þjófnaði. Og í New York berst ungur íslenskur læknir við að bjarga fórnarlömbum Covid-19 faraldursins. 223 bls. Veröld D F C Einlægur Önd Eiríkur Örn Norðdahl Launfyndin og hárbeitt skáldsaga um útskúfun, refsingu og fyrirgefningu. Hér segir frá rithöfundinum Eiríki Erni, sem hefur brennt allar brýr að baki sér, og sögu hans um Felix Ibaka frá Arbítreu, þar sem fólk refsar hvert öðru með múrsteinaburði. Eiríkur Örn Norðdal hefur vakið verðskuldaða athygli heima og erlendis fyrir bækur sínar, sem jafnan eru nýstárlegar og ögrandi. 283 bls. / H 8:22 klst. Forlagið - Mál og menning 27 Skáldverk ÍSLENSK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.