Bókatíðindi - 01.12.2021, Page 38
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1
G
Ég verð hér
Marco Balzano
Þýð.: Halla Kjartansdóttir
Trina þarf að fást við fastista sem banna henni að kenna
á þýsku, stíflu sem hugsanlega drekkir þorpinu hennar
og heimstyröld sem tekur son hennar og mann frá
henni. Þegar dóttir hennar hverfur gefur hún aldrei upp
von um að finna hana aftur. Margverðlaunuð bók sem
hefur farið sigurför um heiminn.
208 bls.
Drápa
E F C
Faðir Brown
G. K. Chesterton
Þýð.: Guðmundur J. Guðmundsson
Sposkur á svip sinnir faðir Brown sóknarbörnum sínum
af samúð og virðingu. En undir hæglátu yfirbragði
prestsins býr næmur skilningur á mannlegu eðli, ekki
síst hinum myrku hliðum þess. Með skörpu innsæi sínu
og hljóðlátum vitsmunum leysir faðir Brown flókin
sakamál.
Úrval smásagna um einn ástsælasti einkaspæjari
enskra glæpasagnabókmennta.
262 bls. / H 6:46 klst.
Ugla
E F C
Ferðalag Cilku
Heather Morris
Þýð.: Ólöf Pétursdóttir
Örlagasaga stúlku frá Slóvakíu sem er kornung send
í útrýmingarbúðirnar í Auschwitz. Þar fær yfirmaður
augastað á henni sem verður til þess að hún lifir af. En
í stríðslok er hún sökuð um samstarf við kúgarana og
send í næstu fangabúðir, engu skárri, gúlagið í Síberíu.
Átakanleg frásögn byggð á sönnum atburðum, eftir
sama höfund og Húðflúrarinn í Auschwitz.
397 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
G
Ferðataskan
Sergei Dovlatov
Þýð.: Áslaug Agnarsdóttir
Rússneski rithöfundurinn Sergej Dovlatov sendi
frá sér á annan tug bók, flestar eftir að hann fluttist
frá heimalandinu og settist að í Bandaríkjunum.
Ferðataskan er eitt af þekktustu verkum hans og kom
fyrst út árið 1986. Í átta lauslega tengdum köflum
gerir höfundur sér mat úr innihaldi töskunnar sem
hann hafði meðferðis í sjálfskipaða útlegð til New
York. Einstakur stíll Dovlatovs er hlýr, kankvís og
gráglettinn, enda af mörgum talinn einn fremsti
háðsádeiluhöfundur sinnar samtíðar.
166 bls.
Dimma
G
Fimmtudagsmorðklúbburinn
Richard Osman
Þýð.: Ingunn Snædal
Þegar hrottalegt morð á sér stað á
þröskuldinum hjá áhguafólki um morðmál er
Fimmtudagsmorðklúbburinn allt í einu kominn með
glóðvolgt mál að leysa. Þótt Elizabeth, Joyce, Ibrahim og
Ron séu að nálgast áttrætt eru þau ekki dauð úr öllum
æðum. Sló öll sölumet í Bretlandi þegar hún kom út!
400 bls.
Drápa
E
Ef við værum á venjulegum stað
Juan Pablo Villalobos
Þýð.: Jón Hallur Stefánsson
Í borginni Lagos de Moreno í Mexíkó eru fleiri kýr
en manneskjur og fleiri prestar en kýr. Íbúarnir gera
uppreisn gegn stjórnvöldum vegna kosningasvindls sem
verður upphafið að kostulegu ferðalagi sögumanns um
ólíkar deildir hins mexíkanska þjóðlífs. Skálkasaga um
spillta pólitíkusa, stórar fjölskyldur og hvað það þýðir
að tilheyra millistétt í Mexíkó. Áður hefur komið út á
íslensku eftir Villalobos Veisla í greninu.
182 bls.
Angústúra
E F
Eftirlifendurnir
Alex Schulman
Þýð.: Ísak Harðarson
Þrír bræður heimsækja yfirgefið kot á afskekktum stað,
þar sem þeir dvöldu í barnæsku, til að uppfylla hinstu
ósk móður sinnar. Um leið þurfa þeir að horfast í augu
við undarlegan uppvöxt og rifja upp sársaukafullan
atburð sem hefur haft mikil áhrif á líf þeirra.
224 bls.
Forlagið - Mál og menning
G
Eldhugar
Konurnar sem gerðu aðeins það sem þær vildu
Pénélope Bagieu
Þýð.: Sverrir Norland
Þrjátíu meistaralega sagðar myndasögur um
stórkostlegar konur. Sú elsta var uppi á fjörðu öld fyrir
Krist, nokkrar eru enn á lífi. Eldhugar er fyndin, hröð
og grípandi verðlaunabók sem lætur engan lesanda
ósnortinn og höfðar jafnt til snjallra krakka sem og
fullorðinna. Vinsælir teiknimyndaþættir, sem byggjast á
bókinni, hafa verið í sýningu á RÚV.
312 bls.
AM forlag
E
Engir hnífar í eldhúsum þessarar borgar
Khaled Khalifa
Þýð.: Elísa Björg Þorsteinsdóttir
Mögnuð fjölskyldusaga sem gerist á árunum 1963–2005
í Aleppo, Sýrlandi. Borgin, áður vagga menningar og
ríkidæmis, er bókstaflega að hrynja og endurspeglar
andlegt hrun fjölskyldunnar, vina, fjandmanna og
elskenda í grimmilegu einræðinu. Eftir þekktasta
samtímahöfund Sýrlands, Khaled Khalifa, sem búsettur
er í Damaskus. Áður hefur komið út á íslensku eftir
Khalifa Dauðinn er barningur.
336 bls.
Angústúra
E F C
Erfinginn
Camilla Sten
Þýð.: Elín Guðmundsdóttir
Amma Eleanor er myrt með hrottafengnum hætti. Í
kjölfarið fær hún að vita að amma hennar hefur arfleitt
hana að afskekktu sveitasetri. Þegar hún skoðar setrið
koma upp á yfirborðið gömul leyndarmál og ýmsar
spurningar vakna. Eleanor reynir að ráða í gáturnar en
einhver er staðráðinn í að koma í veg fyrir að hún fái
spurningum sínum svarað.
399 bls. / H 10:20 klst.
Ugla
38
Skáldverk ÞÝDD