Bókatíðindi - 01.12.2021, Page 43

Bókatíðindi - 01.12.2021, Page 43
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1 E F Milli steins og sleggju Maria Adolfsson Þýð.: Ísak Harðarson Heimsfræg poppstjarna er stödd á Doggerlandi við upptökur á nýrri plötu. En rétt áður en upptökunum lýkur hverfur hún sporlaust. Á sama tíma tekur hrottafenginn kynferðisafbrotamaður upp þráðinn í höfuðborginni. Karen Eiken Hornby þarf því að kljást við tvö snúin sakamál í einu. Þetta er þriðja bókin í Doggerland-seríunni vinsælu. 393 bls. Forlagið - JPV útgáfa E F Nickel-strákarnir Colson Whitehead Þýð.: Árni Óskarsson Elwood Curtis er efnilegur piltur sem verður innblásinn af ræðum dr. Martin Luther King. En í Bandaríkjum sjöunda áratugarins má drengur sem er dökkur á hörund ekki misstíga sig. „***** Hrífandi saga.“ EFI, Mbl. „Bók sem allir bókmenntaunnendur verða að lesa.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan 222 bls. Bjartur E F Nornaveiðar Max Seeck Þýð.: Sigurður Karlsson Eiginkona glæpasagnahöfundarins Rogers Koponen finnst myrt og stillt upp í afkáralegri stellingu á heimili þeirra á meðan hann er hinum megin á landinu að kynna nýjustu bókina sína. Lögreglukonan Jessica Niemi stýrir rannsókninni og þegar fleiri uppstillt lík koma í ljós telur hún að raðmorðingi sé að endurskapa atriði úr bókum Koponens. Martröðin er rétt að byrja. 432 bls. Forlagið - JPV útgáfa E F C Hljóðbók frá Storytel Leysingar Stina Jackson Þýð.: Friðrika Benónýsdóttir Vorið lætur á sér standa í Ödesmark. Hnignun þorpsins blasir við í niðurníddum húsum. Í einu þeirra býr Liv ásamt syni sínum og öldruðum föður. Hún er litin hornauga í þessu fámenna samfélagi. Fólk skilur ekki af hverju hún hefur ekki flutt burt – eins og allir hinir. Það er líka pískrað um auðæfi föður Liv og hve auðvelt væri að ræna fjölskylduna ... 356 bls. / H 11:52 klst. Ugla G Litla bókabúðin við vatnið Jenny Colgan Þýð.: Erna Erlingsdóttir Þegar Zoe býðst að sjá um bókabílinn fyrir Ninu í hálöndunum og gæta barna fyrir herragarðseigandann og einstæða föðurinn Ramsay Urquart í skiptum fyrir húsnæði, grípur hún tækifærið í von um betra líf fyrir sig og son sinn. Sú ákvörðun á eftir að reynast afdrifarík fyrir fleiri en þau mæðginin. Sjálfstætt framhald Litlu bókabúðarinnar í hálöndunum. 505 bls. Angústúra D E Líkþvottakonan Sara Omar Þýð.: Katrín Fjeldsted Magnþrungin saga um sektarkenndina, heiðurinn og skömmina sem þjakar milljónir stúlkna og kvenna um allan heim, dag eftir dag, ár eftir ár. Líkþvottakonan segir sögu Frmeskar, sem er fædd í Kúrdistan árið 1986. Faðir hennar er ósáttur við að hún er stelpa og hótar að koma henni fyrir kattarnef. Mannréttindafrömuðurinn Sara Omar hefur hlotið fjölda bókmenntaviðurkenninga, m.a. De Gyldne Laurbær í Danmörku og Bjørnson í Noregi. 328 bls. Sögur útgáfa E F C Hljóðbók frá Storytel Mávurinn Ann Cleeves Þýð.: Þórdís Bachmann Lögreglumaður, sem dæmdur var í fangelsi fyrir spillingu, kveðst búa yfir upplýsingum sem gætu leitt til þess að gamalt mannshvarf upplýsist. Hann vísar Veru á staðinn þar sem finna megi lík mannsins. En við uppgröft koma óvænt í ljós tvær beinagrindur. Rannsóknin vindur upp á sig og tengist með óþægilegum hætti nánum vinum Hectors, föður Veru. 388 bls. / H 11:42 klst. Ugla E Meinsemd Kim Faber og Janni Pedersen Þýð.: Ólafur Arnarson Sjálfstætt framhald Kölduslóðar. Morðrannsókn tengist fortíð Junckers. Charlotte eiginkona hans, blaðamaður, rannsakar hvort hægt hefði verið að afstýra hryðjuverkaárásinni hálfu ári fyrr. Signe, félagi Junckers í Kaupmannahafnarlögreglunni, aðstoðar hana. Tengsl virðast vera milli hryðjuverksins og óhugnanlegs morðs. Bók sem ekki er hægt að leggja frá sér. 456 bls. Kver bókaútgáfa 43 Skáldverk ÞÝDD

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.