Bókatíðindi - 01.12.2021, Síða 66

Bókatíðindi - 01.12.2021, Síða 66
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 1 D Laugavegur Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg Einstaklega áhugaverð bók um byggingar- og verslunarsögu aðalgötu Reykjavíkur, í máli og myndum. Höfundar gera tilraun til að útskýra hvers vegna byggingar við Laugaveg eru jafn fjölbreyttar og raun ber vitni. Í bókinni er að finna fróðleik um yfir hundrað húsnúmer við Bankastræti og Laugaveg. Fyrri bók höfunda, Reykjavík sem ekki varð, seldist upp í þrígang og hefur lengi verið ófáanleg. 320 bls. Angústúra D Lénið Ísland Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld Kristjana Kristinsdóttir Á 16. og 17. öld var Ísland lén í Danmörku og var rekstur þess og stjórnsýsla sambærileg við önnur lén innan danska ríkisins. En hverjir voru lénsmenn konungs á Íslandi og hvernig mótaðist stjórnsýslan? Hér birtist ný sýn á sögu þessa tímabils og stöðu Íslands innan danska ríkisins. Bókin er grundvallarrit um þetta áður lítt rannsakaða tímabil í sögu Íslands. 666 bls. Þjóðskjalasafn Íslands G F Listin að vera fokk sama Óhefðbundinn leiðarvísir að betra lífi Mark Manson Þýð.: Magnea J. Matthíasdóttir Sumar sjálfshjálparbækur hvetja lesandann til að vera besta útgáfan af sjálfum sér, aðrar segja okkur að allt fari vel ef við bara óskum þess nógu heitt. Ekki þessi bók. Höfundinum er fokk sama um alla jákvæðni og góða strauma. Bókin mun ekki losa þig undan vandamálum þínum eða þjáningum. En þér gæti orðið fokk sama um þau. 222 bls. Forlagið - JPV útgáfa F Líffræðibókin Þýð.: Jóna Dóra Óskarsdóttir Ritstj. ísl. útg: Kristín Marín Siggeirsdóttir og Þóra Víkingsdóttir Kennslubók í líffræði fyrir framhaldsskóla, þýdd úr dönsku (Biologibogen). Vefbók sem hefur m.a. að geyma kafla um vistfræði, lífeðlisfræði, frumulíffræði, erfðir og þróun. Orðskýringar eru fjölmargar en einnig gagnvirkar æfingar og próf. Þá fylgja leiðbeiningar um rannsóknir og tilraunir en nemendur geta glósað og leyst verkefni í vefbókinni. IÐNÚ útgáfa G F C Lífsbiblían 50 lífslyklar, sögur og leyndarmál Alda Karen Hjaltalín og Silja Björk Björnsdóttir Lífsbiblían byggist á geysivinsælum LIFE Masterclass- fyrirlestrum Öldu Karenar sem hefur slegið í gegn sem fyrirlesari bæði hérlendis og í Bandaríkjunum. Í félagi við Silju Björk Björnsdóttur hefur hún tekið saman 50 lífslykla sem hafa hjálpað henni að ná jafnvægi, skapa hamingju og gert henni kleift að fylgja eftir öllum draumum sínum. 293 bls. / H 7:52 klst. Forlagið - Vaka-Helgafell F Jarðfræði fyrir framhaldsskóla Jóhann Ísak Pétursson Yfirgripsmikil kennslubók á vefbókarformi þar sem grundvallarþáttum jarðfræðinnar, s.s. flekareki, jarðskjálftum, eldvirkni og jarðsögu, eru gerð skil í máli og lifandi myndum. Gagnvirk verkefni og sjálfspróf fylgja hverjum kafla auk skýringarefnis af ýmsum toga. Nemendur geta glósað og leyst verkefni í vefbókinni og nýtt sér talgervil. IÐNÚ útgáfa E F C Klúbburinn Matilda Voss Gustavsson Þýð.: Jón Þ. Þór Árið 2017 ásökuðu átján konur áhrifamann í sænsku menningarlífi um áreitni, hótanir og nauðganir. Ásakanirnar lömuðu m.a starfsemi Sænsku akademíunnar, einnar elstu og virtustu menningarstofnunar veraldar. Í þessari bók er saga kvennanna rakin, fjallað um afleiðingar uppljóstrunar þeirra og hversu langt sumir leyfa sér að ganga í nafni listarinnar. 292 bls. / H 8:59 klst. Ugla D Kortlagning heimsins Frá Grikkjum til Google Maps Reynir Finndal Grétarsson Hvers vegna lítur kort af heiminum út eins og það gerir? Hví er norður upp og Ameríka vinstra megin? Af hverju er Evrópa stærri á korti en á hnettinum? Kortlagning heimsins eftir Reyni Finndal Grétarsson svarar öllum þessum spurningum, en bókin geymir fjölmörg kort og fágætar sögur sem endurspegla þau kort sem maðurinn hefur skapað allt frá Grikkjum til Google Maps. 346 bls. Sögur útgáfa E Landfesti lýðræðis Breytingarregla stjórnarskrárinnar Kristrún Heimisdóttir Landfesti lýðræðis, ritgerð Kristrúnar Heimisdóttur um stjórnarskrá Íslands, sem vakti mikla athygli þegar hún birtist í Tímariti lögfræðinga vorið 2021, kemur nú út á bók. Ritgerðin varð til þess að umskipti urðu á umræðu sem staðið hafði í nær 13 ár um hvar ný stjórnarskrá væri. Kristrún fjallar um stjórnarskrárferlið á árunum 2009–2013 með hætti sem enginn hefur gert áður og rannsókn hennar sýnir að engin ný stjórnarskrá er til og hvers vegna svo er. 96 bls. Ugla D Landgræðsluflugið Endurheimt landgæða með eins hreyfils flugvélum Páll Halldórsson og Sveinn Runólfsson Hér er bæði lýst merkilegum þætti í íslenskri flugsögu og verðmætu framlagi til sögu landgræðslu. Höfundarnir voru þátttakendur í landgræðslufluginu nær alveg frá upphafi. Þeir segja hér sögu þessa ævintýris og birta um 200 sögulegar ljósmyndir af fluginu og landgræðsluverkefnunum á þessu tímabili sem spannar 35 ár. 208 bls. Bókaútgáfan Sæmundur 66 Fræði og bækur almenns efnis
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.