Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Page 7

Heima er bezt - 01.03.2006, Page 7
dúkku, Bimu og Gunnu og bangsanum, sem ég á enn og heitir Smábjöm. Ég átti líka bú niðri í kjallaratröppum, sem mamma mín hjálpaði mér og Hönnu vinkonu minni að búa til. Hún notaði appelsínukassa í skápa og þar áttum við okkur bú. Ragnheiði dúkku keypti Jón bátsmaður á Dettifossi, fyrir foreldra mína í Bandaríkjunum í síðustu ferðinni áður en skipinu var sökkt. Ég man eftir kassanum, sem hún var i uppi á skáp, við fótagaflinn á rúminu mínu. A Eyþór, Birna, Pétur, Birna og Pétur. Hlíðardalur var sveit, þar voru kýr, hænsni, minkabú, hundar og kettir. Þangað fórum við, Anna Lár frænka mín og vinkona, þegar kúnum var hleypt út á vorin, svo fengum við súkkulaði og pönnukökur á eftir. Það var sveit allt í kring. Sunnuhvoll var sveitabær, rétt hjá þar sem Austurbæjarapótek er núna. Þar gekk maður framhjá á leið í skólann. Móðir mín vann á Veðurstofu Islands sem þá var til húsa í Sjómannaskólanum. Ég fór oft að sækja hana þangað. Theresía Guðmundsson var þá veðurstofustjóri. Við áttum yndislega tík sem hét Dimmalim og fór með mér. „Limmý má vera hér, en ég vil ekki hafa börn,” sagði frú Theresía. Það var mikið lesið fyrir mig og ég varð snemma læs. Um tíma var bókin um litla svarta Sambó afar vinsæl og ég man enn hvað ég varð spæld þegar sá sem las fór að þreytast á lestrinum og ruglaðist í ijöldanum á pönnukökum, sem litli svarti Sambó og foreldrar hans átu. Og ég man afskaplega vel þegar ég kynntist Línu Langsokk. Þá hét hún Lóa Langsokkur og var framhaldssaga í Morgunblaðinu. Jens Benediktsson, guðfræðingur og blaðamaður á Morgunblaðinu, þýddi söguna. Ég hef alltaf verið hrifín af sögunni um Lóu Langsokk, sem nú heitir Lína. Ég var ung þegar ég lagðist í bækur og mér hefur alltaf þótt gaman að kvæðum og átt gott með að læra þau. Var ekki gömul þegar pabbi lét mig læra Áfanga, eftir Jón Helgason. Til þess að hvetja mig borgaði hann mér tíu krónur fyrir hvert erindi. Mér er það afskaplega minnisstætt þegar ég var sjö eða átta ára, að dag einn sá ég pabba koma upp Meðalholtið með stóran pakka undir hendinni. Hann var alltaf að færa mér eitthvað og gleðja mig. Fyrst datt mér í hug að nú hefði hann keypt á mig skó. En í pakkanum var Helgafellsútgáfan af Brennu-Njálssögu. Hann sagði að ég ætti bókina en hún var náttúrlega heimiliseign. í henni voru myndir eftir Þorvald Skúlason og fleiri myndlistarmenn. Faðir minn las mikið fyrir mig úr bókinni og ég las sjálf kafla í Njálu. Þessi gjöf gladdi mig mikið, og síðan hefur Njála verið uppáhaldsbókin mín. Ég man eftir því að ein jólin fékk ég 27 bækur í jólagjöf. Ég held aö ég hafi aldrei orðið glaðari.” Hvaó þótti þér skemmtilegast að dvelja við,fyrir utan lestur góðra bóka, þegarþú varst barn? ‘ ’Ég var mikil dúkkumanneskja og lék mér mikið að Ragnheiði honum var mynd af brúðu og þótt ég væri lítil vissi ég, að þetta var jólagjöfín mín. Þannig var í Meðalholtinu að við bömin lékum okkur mikið saman úti, vorum í kúrekaleikjum, bófahasar og fórum oft í bió að sjá Roy Rogers og Trigger. Það voru steyptir veggir í kringum garðana og beggja vegna hliðsins var upphækkun, þetta voru Dimmalimm. hestarnir okkar. Þarna sátum við og þeystum um allar grundir. Pabbi Bjarkar, vinkonu minnar, Sigdór Helgason, smíðaði handa okkur hástökksgrindur, sem við stukkum yfir. Við fengum að vera með þær inni á blettunum Ragnheiður Asta í Útvarpinu, með Birnu, í kringum 1967. Heima er bezt 103

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.