Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.03.2006, Blaðsíða 13
Jón Múli og Ragnheiður Asta með Solln. Bræðurnir Jón Múli og Jónas. Mamma las mikið. Það var eins með föður minn hann kunni mikið af sögum og las ákaflega vel upp. Hann var stórkostleg eftirherma. Það var oft á kvöldin að hann las fyrir okkur og þá kom vinkona mömmu minnar stundum tii að hlusta á upplesturinn, og það voru valdar góðar bækur. Þessi góðu kvöld eru fersk í minningunni.” Þegar ég spyr Ragnheiði Ástu að því hvemig þulimir fari að því að láta tónlistina falla eins vel að efninu og raun ber vitni, segir hún: „Við höfum hvert sitt safn og höfum tilbúin lög, sem við reynum að fella að því sem verið er að flytja. Ég vinn mína 40 stunda vinnuviku og svo hlaupum við stundum í störf ef einhver forfallast.” Þegar ég fer í kringum það hvort hún sé ekki að hugsa um að gera þætti fyrir útvarpið segist hún ekki ráða þeim málum. Eins og allir vita er Ragnheiður Ásta Pétursdóttir heimilisvinur landsmanna. Svo lengi hefur rödd hennar hljómað og fært okkur fréttir af þeim atburðum sem eru að gerast. Vissulega söknum við radda manna eins og Péturs Péturssonar föður hennar og Jóns Múla. En ekkert er eilíft á þessari jörð. En næst þegar ég opna fyrir Ríkisútvarpið, Amma Jóns Mú/a með Kidda og Lóu. Elísabet Jónsdóttir og Pétur Guðnmndsson frá Eyvindarmúla ásamt börnum sínum. heyri ég rödd þularins okkar, sem allir landsmenn telja sig eiga eitthvað í. Heimaerbezt 109

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.