Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.08.2009, Blaðsíða 9
En ekki var sopið kálið þótt að ég sæi það í ausunni í huganum! Það allra óvæntasta gerðist svo næst og ég varð ástfangin upp fyrir haus. Ekki nóg með það, heldur átti maðurinn svo líka heima erlendis. Eg átti síðast af öllu von á því að svona hlutir færu að gerast, nýtt samband var alls ekki inni í myndinni hjá mér. Eg var á leið í skóla og ætlaði mér stóra hluti í Iðnskólanum. En Amor lætur sko ekki að sér hæða, grallarinn sá. Það var svo dásamlega notalegt og hlýtt að upplifa þessa eftirvæntingu og gleði í lífinu; þær tilfínningar urðu yfirsterkari og ég ákvað að fýlgja hjartanu og byrja á nýjum framtíðaráætlunum með Agnari Sigurðssyni, sem er ættaður frá Kolugili i Víðidal í Vestur - Húnavatnssýslu. Agnar kastaði sér á mig í miðjum undirbúningi stóðrétta á Kolugili haustið 2005 og spurði: „Hvar hefurðu verið allt mitt líf?“ með aðdáunarblik í augum. Hann fangaði mig alveg, en við vorum að vinna að undirbúningi fyrir herlegheit helgarinnar með móður Agnars, Jónínu Sigurðardóttur og öðm fólki. Nú, ég fékk engan frið fyrir þessum manni alla helgina, enda er hann kominn af þrælþrjóskum og þrautþverum ættum í allar áttir. Þetta var ljúft og samhljómurinn á milli okkar einstakur, og við erum raunverulega helmingurinn af hvort öðru. Fyrstu 9 mánuðina fórum við okkur hægt og vorum bara í símasambandi, loksins þegar það komst á. Forsaga þess er sú að þegar Agnar, mjög hógvær og einlægur bað um netfangið mitt, stóðréttarhelgina góðu, tók stríðnispúkinn í mér völdin og ég gaf honum upp „hotmeilið“ mitt sem þá var „KOLFRIDUR SKANDAL“. Hann hélt þá auðvitað að ég héti Kolfríður og leitað að mér í símaskránni lon og don, en svo var það stríðnispúkinn ég sem hringdi í hann á endanum, hálfkjánaleg en mjög HUGRÖKK. Tilfinningar okkar urðu í framhaldinu sterkari og öflugri svo við gátum ekki horft fram hjá því að þetta var allt saman eins og gómsæt púðursykursterta með ís og súkkulaðisósu! Eg ákvað að flytja til hans og litlu krílanna hans þriggja, en hann á þrjú börn, Bimu 12 ára, Harald 10 ára og Eddu 8 ára. Þessi yndislegu böm em núna bara eins og mín, og hafa tekið mér ótrúlega vel. Þannig að nú á ég 5 börn fyrir utan öll systkina - og vinabörnin. Svo ég flutti til Svíþjóðar árið 2006. Það vom gríðarleg viðbrigði og það var afar sérstök tilfínning að vera svona innflytjandi, mállaus og kunna ekkert á kerfíð. Eg byrjaði strax að vinna á verkstæði með Agnari, sem aðstoðarmaður hans, og það var fínt, ég fékk léttu störfin sem þurfti ekki að skíta sig eins mikið út á. Svo vann ég dálítið á minni hjólaskóflu en þeirri fyrstu sem ég notaði, Volvo 60 púddu; vann við að sigta svokallað flís, en það er eiginlega afskurður af trjám. Svo fór ég á sænskunámskeið í febrúar og byrjaði að babla á sænsku, var ósköp hógvær og feimin í fyrstu, en núorðið læt ég bara vaða og get gert mig nokkuð skiljanlega. Ég verð að segja að það var mun auðveldara að læra sænsku en dönsku. Svíþjóð er fallegt land. Oskaplega grænt og venjulegt þegar á líður veru mína. Ég er dóttir íss og elda, eins og einn vinur minn sagði, - og náttúmbarn fram í fingurgóma. Þegar maður hefur alist upp í svo stórbrotnu og mögnuðu landi sem Island er, verður endalaus grænn skógur leiðigjam til lengdar, auk þess sem það vantar alveg fríska og hressandi hafgoluna. Fólkið hér í Svíþjóð er gott og gestrisið, þolinmótt og nægjusamt, mér hefur verið tekið mjög vel og flestir eru góðir við mig. Hér er reyndar allt mikið rólegra en á íslandi, afslappaðra og yfírvegaðra. Þetta getur komið út sem seinagangur og leiðinlegheit fyrir þá sem em alltaf að flýta sér, en Svíarnir gefa sér tíma í hlutina, eyða ekki um efni fram og eru ekki eins háðir tískusveiflum eins og Islendingar. Það er meiri snerpa í Islendingum en Svíum, sem getur komið sér vel þegar á þarf að halda, en það er líka gott að geta slakað á og tekið hlutunum með ró. Ég hef verið hér í næstum 3 ár og er farin að venjast þessum rólegheitum og gróðrinum, sem er töluvert meiri en ég á að venjast. Ég sá ofsjónum íyrsta sumarið yfir hverju strái eða ungtré sem Agnar hjó niður, enda vanari að halda lífi í trjám og gróðri en að grisja. Nú er ég farin að höggva niður sjálf eins og ekkert sé. Það var líka dálítið spennandi og skrýtið að sjá þau dýr sem em ekki eins og dýrin á íslandi, eins og til dæmis dádýrin hér við húsið, sem em étandi upp eplin sem hafa fallið af eplatrjánum; greifíngja sem skokka í hægðum sínum framhjá mér þegar ég sit í kvöldkyrrðinni úti í garði, og síðan mæta eins og einum elg á leið minni á sænskum vegi. Hér eru líka leðurblökur og ég hef einu sinni séð svoleiðis kvikindi, en þvi miður hef ég ekki rekist á skógarbjörn eða úlf. Mikið er af skemmtilegum fuglum, sem syngja daginn út og nóttina inn, og Svíar eru duglegir að smíða fuglahús handa þeim greyjunum, sem þeir negla svo á útihúsin eða á trén. Sænskt, íslenskt, - íslenskt, sænskt Héma í Svíþjóð brennum við pappírs - og trjámsli heima við eins og ekkert sé eðlilegra. Það er minni sorpeyðingarkostnaður. Fyrir svona 30-40 árum setti fólk allt msl í haug, bara hér og þar, og skógurinn var svo látinn vaxa yfír það. Ég hef fundið 3 svona hauga hér á landareigninni og það er frekar ljótt að sjá. Jólin í Svíþjóð eru ekki eins mikil hátíð og heima á íslandi. Það er ekki eins mikið af ljósum, það er frekar svona rómantísk lýsing og frekar lítið af jólaskrauti íyrir utan jólatréð sjálft. Ég held þó að það sé að breytast og jólamenningin, eða réttara sagt jólamarkaðssetningin er að hellast yfír Svía eins og hún helltist yfir Islendinga fyrir ekki Svíþjóð er fallegt land. Óskaplega grænt og venjulegt þegar á líður veru mína. Ég er dóttir íss og elda, eins og einn vinur minn sagði, - og náttúrubam fram í fingurgóma. Heima er bezt 297
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.