Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.08.2009, Blaðsíða 18
J. Magnús Bjarnason Vesturförin að var í átjándu viku sumars að við lögðum af stað frá íslandi (svo sagði amma mín mér síðar). Skipið, sem við fórum á, hét „María“; það var kaupfar (tvímastrað seglskip) danskt, sem komiö haföi meö vörur til Liverpóls- verslunarinnar á Seyðisfirði, og var nú hlaðið ull og saltfiski, sem það átti að losast við í Húll á Englandi. Þar átti það líka að losast við okkur þrjú - afa minn, ömmu mína og mig. Við vorum einu farþegarnir að undantekinni stúlku, sem hét Matthildur, og hún ætlaði til Kaupmannahafnar. Ég dáðist að þeim kjarki og því þreki, sem í afa mínum hefir verið, þegar hann áræddi að fara með okkur til Ameríku, síðla sumars, þegar allra veðra var von, hann og amma mín komin á sextugs aldur, ég táplítill drenghnokki, enginn íslenskur samfylgdarmaður og enginn túlkur. Ferðinni var heitið til þess héraðs í Ameríku, sem kallað er Nýja Skotland (Nova Scotia) í ríkinu Kanada. Afí minn vissi að þar ætluðu að setjast að, þá um haustið, nokkrir Islendingar, sem farið höfðu sumarið fyrir frá Islandi til Ontaríó í Kanada; hann vissi líka að höfuðborgin í Nýja Skotlandi hét Flalifax, og hann þóttist vita, að allt, sem nauðsynlegt væri til að geta komist þangað, væri að kunna að bera ffarn nafnið Halifax og hafa fímm hundmð ríkisdali til að borga með ferðakostnaðinn. Honum fannst það ekki svo mjög ísjárvert, þó hann kynni ekki eitt einasta orð í annarri tungu en móðurmáli sínu, þar sem hann hafði enskunámsbók Halldórs Briem (fyrri útgáfuna) og þar að auki bréf ffá sýslumanninum á Seyðisfirði til danska konsúlsins í Húll á Englandi. Hvorttveggja varð honum líka að góðu liði. En það, sem mest var í varið (næst silfurdölunum), var óbilandi kjarkur og atorka, sem hann var gæddur, sem og einkenndi flesta þá íslendinga, er fluttu til Ameríku þau árin. Við stigum á skipsfjöl um kvöld. Okkur var strax vísað niður í ffamstefni skipsins, og þar bjuggum við um okkur, sem bezt við gátum, innanum ullarpoka. En aldrei gleymi ég sagganum, sem þar var, og hinum ógeðfelda daun, sem átti þar heima, og sem ævinlega var tilfinnanlegastur, þegar maður var nýkominn ofan af þilfarinu. Morguninn eftir létti skipið akkerum. Því gekk seinlega út fjörðinn, því vindur var ekki hagstæður, og við vorum ekkj komin út fyrir Dalakjálka fyrr en um sólarlag. Amma mín var HöjhiníHull 1910. strax um morguninn mjög sjóveik, og mér fór að verða flökurt, þegar á daginn leið, og þá bað ég afa minn að fara með okkur í land, og hætta alveg við að fara til Ameríku. En hann var nú samt ekki á því, gamli maðurinn. Hann varð aldrei sjóveikur, og lét ekki hugfallast. Ég var veikur alla nóttina og daginn eftir og nóttina þar á eftir. En úr því fór ég að smáfrískast aftur, og afí minn fór oft með mig upp á þilfarið og ofan í káetu skipstjórans. Matthildur var látin vera í káetunni. Hún fór aldrei á fætur frá því við skildum við Island og þangað til við komum til Englands. Hún lá í lokrekkju við káetudymar, og ævinlega þegar ég kom þar, var Matthildur að borða, og þegar hún var búin að borða, fór hún að selja upp því, sem hún borðaði, og svo fór hún að drekka vatn, sem alltaf var við höndina, og svo hló hún, þegar hún var búin að drekka, og síðan fór hún að borða á ný, og selja upp, og drekka og hlæja. - En alltaf lá hún í lokrekkjunni, með tjaldið dregið frá til hálfs. Þessi Matthildur var á að giska átján ára gömul, fríð sýnum og vafalaust mjög léttlynd að eðlisfari. Amma mín stóð i þeirri trú, að hún hefði verið trúlofúð skipstjóranum; en ég held samt að amma mín, blessunin, hafi ekkert haft fyrir sér í því, annað en það, að hún (Matthildur) var svo heppin að mega vera í káetu skipstjórans. Skipverjar vom fjórir: skipstjóri, stýrimaður, háseti og matsveinn. Skipstjórinn var hár maður með mikið skegg (mig minnir það vera jarpt); hann var mjög góður við okkur, og reyndi að gera allt, sem hann gat, til að láta okkur líða vel á leiðinni yfir hafið. 306 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.