Heima er bezt - 01.08.2009, Side 39
Ólafur
Ragnarsson
Siglingar á
suðrænum slóðum
Mig langar að tala ykkur með
í smáferð. Smáferð segi ég,
en hún tók nú reyndar 5
mánuði.
Það má segja að ferðin byrji á hádegi 9.
júní árið 2000, þegar starfsmannastýra H.
Folmer & co í Kaupmannahöfn hringir í
mig og biður mig að fara sem stýrimaður
á M/S Danica Red. Skipið væri á leið frá
Pireus í Grikklandi til Rio de Janeiro
í Brasilíu, eða Janúarárinnar, eins og
ég las einhverstaðar að nafnið þýddi.
Það mun stafa af því að portúgalskur
landkönnuðu Gaspar de Lemos kom í
janúar 1502 til þessa landsvæðis.
Danica Red var sem sagt á leið þangað
með tíu 20 feta gáma hlaðna vopnum.
Þið getið ímyndað ykkur peningana sem
liggja í þessu alheims vopnabraski. Aðeins
10 gáma alla þessa leið eða um 5600
sjómílna leið. Þunganum er ég búinn
að gleyma. Atti ég að fara um borð í
skipið á ytri höíninni í Gíbraltar, þar sem
skipið átti að hafa viðkomu til olíutöku
og áhafnaskiptingar því skipta átti um
skipstjóra og stýrimann.
Eldsnemma þann 14. júní lagði ég
af stað með leigubíl frá Staft'anstorp,
þar sem ég bjó, til Málmeyjar, þar sem
ég tók lestina til Kastrupflugvallar. A
flugvellinum hitti ég minn tilvonandi
skipstjóra og góða vin, Gunnar Foged,
sem ég hafði siglt með áður á sama skipi.
Með honum var kona hans sem ætlaði að
vera með okkur um tíma. Gunnar er einn
afþessum gömlu smáskipa-skipperum,
■Z'íni-FfíR'l<auíL.- '7
Po'A n/vfí
PfíSfí.SÉS SPA r/rS
’ soT
E>/Jun sT ZcQ. >
Ol) Vc /
í>£pi, /ifí'/
CxA 1T /■£4.
PiuIa/lz. s%o"/r s'ifiLenLLnn '3
V RctChfA A? a,j££) (Zc v/öZ. S
s 7 h'. SÚAi'/rt l s - - j
Síður úr dagbókarkompunni sem eftir
er. Farmur í apríl 1999frá
Swinoujscei (Póllandi) til Pasajes
(Spáni). Þarna var áætlunin töluvert
stif.
sem kalla ekki allt ömmu sína og hafði
marga ljöruna sopið. Siglt töluvert mikið
til íslands og var rnikill íslandsvinur. Hafði
verið skipper og meðeigandi hjá Juhl &
Ehrhom útgerðinni í Esbjerg. Var um tíma
t. d. með skipið Elisabeth Clipper, sem
Samskip hafði um tíma á leigu.
Gunnar, þetta mikla góðmenni, hafði
lent í því nokkmm ámm áður sem skipper
á einu af Clipperskipunum, að fá um borð
laumufarþega. Stýrimaðurinn, heljar
beljaki, sem allir vom hræddir við og
Gunnar líka, enda alger andstæða að
burðum og skapferli, tók sig til eina
nóttina þegar Gunnar svaf og fleygði
laumufarþeganum fyrir borð og þar þurfti
ekki að spyrja að leikslokum.
Út af þessu spannst náttúrlega mála-
rekstur og í fyrstu umferð var stýrimaðurinn
dæmdur í 3ja mánaða fangelsi. Þá varð
allt vitlaust í Danmörku yfir dóminum,
sem gefúr að skilja. Taka átti svo málið
upp aftur, en þá fann sfyrimaðurinn sér
góðan spotta og sterkan krók, já, og svo
fór sem fór.
Gunnar missti réttindin og hlaut
einhveija sekt. Svona em nú sjólögin
hörð hvað ábyrgð skipstjórans varðar.
Þó svo að það sé alltaf verið að mjatla
valdið yfír á skrifstofúmar sem fyrirskipa
hitt og þetta en bera svo enga ábyrgð ef
illa fer.
Eg lenti í að vera sfyrimaður á því
skipi sem hann kom fyrst á eftir þetta
allt saman en það var einmitt Danica Red.
En hann gat ekki hugsað sér að halda
áfram hjá sinni fyrrverandi útgerð svo
hann seldi hlut sinn í henni og kom yfír
til H. Folmer.
En þetta var nú útúrdúr.
Við flugum svo með þotu Svissair til
Ziirich. Skiptum þar um vél og flugum
Heima er bezt 327