Heima er bezt - 01.08.2009, Blaðsíða 59
Endanleg lausn ^ ,
morðgatu
íbyltingunni í Rússlandi 1917 var Nikulás II. keisari
handtekinn og honum haldið föngnum með jjölskyldu
sinni í Jekaterínbúrg eða Katrínarborg undir
r
austurhlíðum Uralfjalla. - Borgin var kölluð Sverdlovsk
á dögum Sovétríkjanna en hefur nút aftur fengið
upprunalegt nafn sitt.
Aftakan
Aðfaranótt 17. júlí 1918 knúði tólf
manna aftökusveit dyra á húsinu þar
sem fangamir vom geymdir, undir því
yfírskini að flytja ætti þá á öruggari stað.
í þess stað var fólkið leitt niður í kjallara
hússins og tekið af lífi. Aftakan gekk hálf
brösuglega enda var sveitin óvön slíku
Örnólfur
Thorlacius
346 Heima er bezt
verki. Til þess var tekið hversu kúlumar
hrukku af dætmm keisarans, svo vinna
varð á þeim með byssustingjum, enda
höfðu þær falið gimsteina Ijölskyldunnar
í lífstykkjum sínum.
Nikulás var þá fímmtugur og kona hans
Alexandra 46 ára. Dætur þeirra ljórar
voru Olga, 22 ára, Tatjana, 21 árs, María,
19 ára og Anastasía, 17 ára. Yngstur, 13
ára, var ríkisarfinn, Alexej. Fernt, sem
með þeim var í húsinu, var líka myrtur
svo enginn yrði til frásagnar.
Líkin voru svipt klæðum og flutt burt
í vörubíl, en eftir að bíllinn bilaði var
líkunum dröslað inn í aflagða námu
og opinu á námugöngunum lokað
með handsprengjum. Síðar voru líkin
sótt í námuna og grafin annars staðar.
Einhvers staðar í þessu ferli var hellt
yfir þau sýru og þau brennd til að gera
þau torkennilegri.
Leitin að líkunum
Sovétstjómin reyndi að fela morðin.
Keisarinn var sagður hafa verið sekur
fundinn um ýmsa glæpi gegn þjóð sinni
og tekinn af lífi, en íjölskylda hans væri
óhult, en hið sanna kom í Ijós 1924
þegar landflótta Rússi í París, Nikolaj
Sokolov, greindi frá því sem gerst hafði.
Hann hafí verið í hvítliðasveit sem
gerð var út til Katrínarborgar í leit að
keisaraijölskyldunni og hafði þar frétt
um afdrif hennar. Á meðan hvítliðamir
höfðu borgina á valdi sínu, sem ekki
var lengi, fann Sokolov námuna með
ummerkjum eftir það sem gerst hafði,
en líkin voru horfm.
Alexander Avdonín, jarðfræðingur
í Sverdlovsk, fékk snemma áhuga á
afdrifum keisaríjölskyldunnar, enda
var margt rætt um þau i heimaborg
hans. Meðal annars sagði fylliraftur
og sjálfskipaður föðurlandsvinur oft
reyfarasögur á drykkjukrám um hetjudáðir
sínar við að losa þjóðina við hinn hataða
keisara.
1 leit sinni kynntist Avdonín rithöfundi
og kvikmyndagerðarmanni, Geli Ryabov,
sem fengið hafði hjá syni fyrirliðans,
Jakovs Júrovskís, skýrslu hans um afdrif
líkanna. Þeir Avdonín og Ryabov fóru
aðfaranótt 30. maí 1979 á stað sem
Júrovskí vísaði á í skýrslunni og grófu
þar upp úr mýri þrjár höfuðkúpur. Þar
töldu þeir sig meðal annars hafa fundið
Hugmynd listamanns af aftöku
keisarafjölskyldunnar.
höfuð keisarans, sem síðar reyndist rétt.
Þeir óttuðust að verða sakaðir um afskipti
af ríkisleyndarmálum og földu því beinin
en grófu þau aftur næsta sumar á sama
stað í trékistu meö íkóni úr eir.
Eftir perestrojku Gorbatsjovs leystu
félagarnir frá skjóðunni og í júli 1991 hélt
hópur manna á greftrunarstaðinn, þar á
meðal Avdonín og fomleifafræðingur á
vegum stjómvalda. Við uppgröft fundust
beinaleifar af níu af þeim ellefu persónum
sem líflátnar voru 1918.
Erfðarannsóknir
Þegar beinin voru greind eftir kyni og
aldri kom brátt í ljós að þarna vantaði
bein ríkisarfans og einnar systur hans.
Þess má geta að í skýrslu Jakovs Júrovskí
kom fram að tvö af líkunum hefðu verið
grafín annars staðar en hin.
I fyrstu var talið að það væri næstyngsta
systirin, María, sem ófundin var, en síðari
rannsóknir benda fremur til að það hafi
verið sú yngsta, Anastasía. Hafa enda
ýmsar sögur gengið um að hún hafí á
einhvem hátt komist undan ásamt bróður
sínum, og nokkrar „Anastasíur“ hafa
gefið sig fram. Frægust þeirra er sjálfsagt
Vörubíllinn sem líkin voru flutt á —
og komst raunar ekki á leiðarenda.
„Anna Anderson", sem kom fram 1920 og
heimtaði arf sinn. Það spillti fyrir kröfu
hennar að hún kunni ekki orð í rússnesku
en bar við minnistapi sakir andlegs álags.
Um hana var gerð kvikmynd þar sem
Ingrid Bergman fór með titilhlutverkið.
Eftir að hún lést 1984 sannaðist að hún
hét réttu nafni Franziska Schanzkowska
og var dóttir pólskrar kaupakonu.
Nokkrir krónprinsar hafa líka komið
fram, fyrst sem Alexej, en nýlega kom
meintur sonur hans til skjalanna og vildi
setjast á valdastól í Rússlandi.
Af líkunum sem fundin voru er það að
segja að erfðagreining á hvatberagenum,
sem rússneskir, breskir og bandarískir
sérfræðingar unnu, staðfesti að þar vom
leifar foreldra og þriggja dætra þeirra.
Systurdóttursonur keisarafrúarinnar,
Filippus hertogi af Edinborg, lagði til
blóðsýni sem sannaði að mæðgumar,
sem upp voru graínar, höfðu verið nánir
ættingjar hans. Erfiðara reyndist að
persónugreina ætlaðar leifar keisarans.
Af þremur nánum skyldmennum, sem
á lífi voru, fengust tvö til að leggja sýni
til rannsóknarinnar og reyndist DNA
úr þeim báðum eins, en á erfðaefninu
í hvatberum þeima og líksins munaði
einu basapari af 782. Trúleg skýring er
stökkbreyting í hvatberageni keisarans,
og líkindin á að beinin væm úr honum
voru sögð 98,5%.
Þá var ráðist í að lyfta þungri marmara-
hellu af gröf Georgís stórfursta, yngri
bróður keisarans, í dómkirkju í St.
Pétursborg. I hvatberagenum stórfurstans
greindist sama basaröðin og fundist hafði
í beinunum sem talin voru úr bróður
hans, og hálfs annars prósents óvissunni
var þar með eytt. - Þessi lokaniðurstaða
var birt 31. ágúst 1995.
Megnið af því sem hér hefur verið
rakið hef ég áður skráð í ritgerð í Náttúru-
fræðingnum 1997.' En síðan hefurbæst
við söguna.
Útförin
Hinn 17. júlí 1998, nákvæmlega áttatíu
árum eftir morðið, vom lík keisarahjón-
anna og þriggja dætra þeirra lögð til
hinstu hvílu í Dómkirkju Heilags Péturs
og Heilags Páls í St. Pétursborg. Við
1 Örnólfur Thorlacius. Gömul morðgáta upplýst.
Náttúrufrœðingurinn 67 (2), bls. 125-128, 1997.
Heima er bezt 347