Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 67

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 67
Björn G. Eiríksson wT f Biskupsörnefni og deilur um Hólmastað í Reyðarfirði Biskupsás. Myndin sýnir básinn sjálfan. Botninn er sendinn og auðvelt að draga bát á land. Biskupsörnefni eða örnefni kennd við biskupa eins og t.d. Biskupshlaup á Fagradal (dal sem liggur milli Reyðarfjarðar og Héraðs þar sem þjóðvegurinn liggur) ofan við Skriður en neðan við Neðstu-brú á Fagradalsánni. Hiaupið kom að vestanverðu úr fjallinu rétt ofan við Efri-Hrútá og Hrútabotn, eitthvað nálægt 5-600 metrum norðan Hrútadals og rann niður Hlaupahjallann og eitthvað um 50 metra upp í brekkuna austan megin dalsins. Hlaupið hefur stíflað ána svo þar hefur myndast lón unz ánni tókst að grafa sig aftur niður. Vegagerðinni hefur tekist að eyða öllum ummerkjum um hlaupið austan megin árinnar nema í jaðri þess. Biskupsstóll Lítil klöpp eða steinn innst á Hólmagrund, nú að mestu horfinn ofan í jarðveginn, svo illt er nú orðið að átta sig á hvar hefir verið. Ömefnið er dregið af því, eftir því sem sögur herma, að þar hafi biskupar og/eða prestar setið við lestur og íhugun „helgra fræða“. Líklega hefir slíkt farið dálítið eftir því hvemig veður hefir verið hverju sinni. Þeir hafa þá væntanlega kosið að draga sig í hlé írá ys og þys heima á kirkjustaðnum, líklega hefir verið mannmargt á bænum, einkum þó í vísitasíuferðum. Venjulega fylgdi þessum heiðursmönnum allnokkuð fylgdarlið í þessum erindum. Biskupsbás er sandíjara, „bás“, á milli Hundasnaga og Miðhrauns, enn er þar sandfjara eða smámalarfjara og gott að draga þar báta á land. Básinn er austan við Hundasnagann og innan við Innri-Leiðarhöfðavíkina. Að sunnanverðu við Reyðarijörð og spölkom innan við eyðibýlið Eyri er Biskupshöfði og ofan við hann Höfðavíkin. Þar er góð lending í sand- eða smámalarfjöru. Víkin með sinni löngu fjöru er góður lendingarstaður fyrir smábáta, fjaran er í vari fyrir utanfjarðaröldunni, landtaka því góð nema þá helzt í norðvestanveðram, en þá stendur upp á víkina. Við tvö síðastnefndu ömefnin er tengd þjóðsaga. Sögu þessa geymir Rauðskinna séra Jóns Thorarensen. Gvendarbrunnur og Gvendarkirkja A Utsveit, síðar Helgustaðahreppi, nú Fjarðabyggð, í landi Högnastaða, eru ömefnin Gvendarbrannur og Gvendarkirkja. Gvendarbrunnur er nú týndur og veit enginn hvar hann hefúr verið. Gvendarkirkja á að hafa verið lítið býli og á eina skriðustaðnum í landi jarðarinnar í Ljósárgili. Sagt er að þar séu óljósar rústir með kyrrum kjöram. Munnmæli herma að þar hafí Guðmundur biskup hinn góði á sinni tíð vígt staðinn fyrir skriðuhlaupum. Ömefnið er ævagamalt, það virðist því að vígsla biskupsins á staðnum fyrir skriðuhlaupum og fleiru hafi haldið vel. Sagan hemrir að á ofanverðri 15. öld, líklega þá einhvem tímann á árabilinu Heima er bezt 355

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.