Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 88

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 88
höllinni og það gæti hún aðeins með því að giftast einhverjum biðlanna og senda hina burt. Lét hún það boð út ganga að hún mundi tilkynna ákvörðun sína hinn næsta dag. Morguninn eftir að Odysseifur kom í höllina í dulargervi, kom Penelópe á vettvang og kvaðst hafa tekið ákvörðun um að eiga þann biðil sem spennt gæti boga Odysseifs og skotið í mark af sömu nákvæmni og hann. Var þrautin sú að skjóta gegnum auga á tólf axarblöðum sem stillt var upp hverju aftur af öðru og gengu biðlamir að þessum skilmálum. Hinir áleitnu biðlar tóku nú að reyna sig á boga Odysseifs, en þá kom í ljós að enginn þeirra megnaði að draga hann upp. Þegar þar var komið, gekk betlarinn fram og bað um að hann fengi líka að reyna. Það þótti biðlunum harla ósvífíð, en Penelópe mælti þá að það væri kurteisi við gestinn að hann fengi sama tækifæri og þeir, enda harla ótrúlegt að hann hefði burði til að vinna sig fyrir eiginkonu. Biðlarnir hlógu hæðnislega, þegar tötramaðurinn greip bogann. En sá hlátur hljóðnaði, er í ljós kom að hann spennti hann léttilega, lagði ör á streng og skaut af öryggi gegnum öll augun á öxunum tólf. Og í næstu andrá greip hann aðra ör, lagði á streng og mælti: „Og nú ætla ég að reyna að hitta í mark sem ekki hefur verið skotið að áður.“ Með þeim orðum skaut hann á háls þess höfðingja sem hvað verst hafði hegðað sér og féll sá þegar dauður niður. Við þennan atburð ærðust biðlarnir og hugðust grípa til boga sinna og spjóta. En þá gripu þeir í tómt, því að Odysseifur og Telemakkos höfðu fjarlægt öll vopnin kvöldið áður. Þeir hugrökkustu réðust þá að tötrakarlinum með bragðnum sverðum, en í sömu svifum kastað betlarinn af sér gervi sínu og kunngjörði með hárri raust að hann væri Odysseifúr. Biðlamir hnigu niður hver af öðram fyrir bogaskotum hans og brátt barst honum liðsauki, þar sem Telemakkos og tveir trúir hjálparmenn komu honum til aðstoðar. Leið þá ekki á löngu áður en allir biðlamir lágu í valnum. Hina léttúðugu og ósvífnu þemur urðu líka að gjalda fyrir skammarleg framferði sitt, því að þær vora fangaðar og festar upp úti fyrir höllinni og dingluðu þar brátt eins og fuglar í snöru. Einnig varð hinn ósvífni geitahirðir að gjalda með lífí sínu. Að öllum þessum stórræðum loknum stóð Odysseifúr loks á ný sem herra í húsi sínu. Hann lét draga hina dauðu út, þvo salinn og hreinsa með brennisteini hátt og lágt. Síðan lét hann senda til Penelópe og segja henni að eiginmaður hennar væri kominn heim eftir tuttugu ára ijarvera. Hún þorði varla að trúa eigin eyram, en þegar hún hafði sannreynt að tötramaðurinn hefði verið sjálfur Odysseifúr, fylltist sál hennar óumræðilegri gleði og fögnuði. Má nærri geta að endurfundir hjónanna hafí verið hjartanlegir eftir öll þessi ár og allt sem á undan var gengið. Þar með endar svo ævintýrið um hinn þrautreynda Odysseif íþökukonung og hina trúu og tryggu Penelópe, drottningu núaftu ^áanlegar 00 Möppumar utan um Heima er bezt geyma blaðið í handhægu formi. Hver mappa tekur einn árgang. HEIMA ER Pöntunarsími: 553-8200 Netfang: heimaerbezt@simnet.is 376 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.