Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Side 3
v^( ^ (o Q-9. /
FLUGTAK
UM LEIÐ og þetta blað vort hefur flugið, þykir okkur útgefendum þess hlíða, að gefa
hér fáorða skýringu á tilveru þess og tilgangi.
Eins og annars staðar má sjá, er þetta fyrsta tölublað fyrsta árgangs, og gefur það
til kynna, að cetlunin mun vera að gefa blaðið út áfram. Já, vissulega er það cetlun okkar,
svo framarlega sem þér, háttvirtir lesendur, Ijáið þvi þá athygli, að sýnt þyki að blaðs-
ins sé þörf.
Við höfum á undanförnum cirum fundið sárt til þess, hver skortur hefur verið á
mádgagni fyrir hin gróskumiklu flugmál okkar íslendinga, og er það innileg von okkar,
að blaðið megi í framtíðinni reynast þeim vanda vaxiÖ, að upplýsa íslenzka alþýðu um
flugmál og brúa þannig það bil, sem verið hefur á milli almennings og hinna ötulu flug-
áhugamanna okkar. Fidl not þurfa að nást af þeim dcemafáa og almenna áhuga, sem ríkir
hér á landi um flugmál, enda að verðugu. Við teljum okkur óhcett að fidlyrða, að enda
þótt áhugi fyrir flugi sé orðinn mjög mikill um allan heim, þá sé hann hvergi jafn al-
mennur, miðað við fólksfjölda, og hann er hér á landi.
Við munum i framtíðinni kappkosta að hafa eitthvað fyrir alla, eða með öðrum
orðum, flytja þýddar og frumsamdar kennslu-og upplýsingagreinar um flug og þau önnur
mál, er flug snerta, svo sem radio- og rafeindatcekni, veðurfrceði, siglingafrceði (navigation)
o.fl. Til þessa höfum við tryggt okkur aðstoð vel fcerra íslenzkra sérfrceðinga í hinum ýmsu
greinum. Ennfremur munum við birta allar fáanlegar innlendar og erlendar fréttir, sem
varða flugmál.
Svo sendum við þetta fyrsta tölublað frá okkur í fullu trausti þess, að þér, lesendur
góðir, virðið viðleitni okkar og veitið okkur góðviljað samstarf.
Með virðingu,
LANOSBÓKASAFN
Al 167933
ÍS£ANriS~~
ÚTGEFENDUR