Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Blaðsíða 23

Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Blaðsíða 23
fullnaðarsamþykki hafði fengizt fyrir stofnun PICAO. Stjórnin er talin sitja á rökstólum óslitið, en hefur verið kvödd til reglulegs fundar 4—5 sinnum. Á fyrsta fundinum var, eins og áður er sagt, kosinn forseti, dr. Edward Warner, sem urn leið vék úr sæti sem fulltrúi lands síns, Bandaríkjanna. Dr. Albert Roper, sem var kosinn aðalritari, hafði áður verið aðal- ritari alþjóðaráðs loftferða. Á öðrunr fundi stjórn- arinnar var endanlega gengið frá stofnun ýmissa tæknilegra nefnda. En í sambandi við það var álitið að kalla bæri saman ráðstefnur fyrir sérstök svæði eða leiðir, til þess að betur væri hægt að kynnast vandamálum, er snerta þessi svæði sérstaklega. Sú fyrsta þessara ráðstefna var sú, sem fjallaði um vandamál Norður-Atlantshafsins. Hófst hún í Dublin 4 .marz 1946. Voru þar saman komnir fulltrúar 13 ríkja, þ. á m. íslands. Þar sem þessi ráðstefna var sú fyrsta af tíu slíkurn, var eðlilegt að störf og árangur hennar snerti meira eða minna alheimsflugmál. Enda varð það og raun á, því að rnargar af ályktunum Dublin-ráðstefnunnar hafa síðan verið notaðar sem grundvöllur að fyrirmælum og leiðbeiningum um alheimsflug. Eins og áður er getið, var eitt af verkefnum stjórn- arinnar að skipa vissar nefndir. Þrjár aðalnefndirnar, sem skipaðar hafa verið, eru: ein nefnd, er fjallar um flugmál frá sjónarmiði samgangna (Air Transport Committee), önnur, er fjallar um loftsiglingar (Air Navigation Committee), og sú þriðja, sem á að undir- búa endanlega stofnun alþjóðaflugmálasambandsins. Hinar tvær fyrrnefndu nefnda eru vel á veg komnar með starf sitt, en sú þriðja hefur enn ekki tekið til starfa. Vegna hins margþætta starfs, sem hinum tveim starfandi nefndum hefur verið falið, hafa þær orðið að skipa sér niður í deildir, sem starfa að ýmsum tæknilegum sérmálum. Þessar deildir fjalla um atriði eins og flugvelli, flugumferðarstjórn, verðurfræði, fjarskipti, björgunarstörf, landakortagerð, slysarann- sóknir, flugfélagarekstur, o. fl. Auk þeirra nefnda og deilda, sem þegar hafa verið taldar, eru starfandi nefndir, sem fjalla um fjármál, upplýsingar, skilríki fulltrúa, o. fl. Málgagn sambandsins, The Picao Jouinal, sem kemur út mánaðarlega, flytur fréttir og tilkynningar frá stjórninni, og er það gefið út á ensku, frönsku og spönsku. Þessi þrjú tungumál eru viðurkennd sem aðalmál PICAO. Öll skjöl og verk sambandsins eru gefin út á þessum tungumálum. í undirbúningi er útgáfa flugtæknilegrar orðabókar á rnörgum tungu- málum. TÍMARIT U M FLUGMÁL Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Asbjörn MAGNÚSSON ÚTGEFANDI: FLUGÚTGÁFAN Utanáskrift: FLUG, P. O. Box 681, Reykjavik Prentsmiðjan ODDI h.p. Að lokum þetta: Þegar talað er um flutningaflugvélar herjanna og það mikla afrek, sem þær hafa unnið í síðasta stríði, gera sennilega fáir sér Ijóst, hvílík ógrynni fjár og og hvílíkt óhemju starfsþrek og orka hafa farið í það að sjá þessum flutningatækjum loftsins fyrir við- unanlegum starfsskilyrðum. Hundruð flugvalla hafa verið byggðir, veðurathuganastöðvar hafa verið byggð- ar á hinum hinstu afkimum veraldar, björgunarstöðv- um komið á fót og tilkynninga- og skeytakerfi full- komnað. Flugið myndi ekki hafa verið það, sem það er í dag, ef þessurn lífsnauðsynlegu hjálpartækjum hefði ekki verið kornið upp og haldið við. En nú er þessara tækja ekki lengur þörf frá hernaðarlegu sjón- armiði og því eru þau líkleg til að breytast eða jafn- vel hverfa. PICAO hefur sett sér það mark, að þau hverfi ekki, heldur verði þeim haldið við og þau endur- bætt ár frá ári til þess að nálgast fullkomnun. Það hefur einsett sér að koma samræmingu á flug- ið, hvar sem er í heiminum, þannig að rnaður, sem flýgur úr einni heimsálfu í aðra, vinni alls staðar með sömu tækjum og sömu aðferðum. Þegar þetta allt er fengið, fer að hylla undir þann tíma, sem brautryðjendur flugsins hafa séð í draum- um sínum, að flugið skipi þann þess, sem því er ætlaður, að verða eign almennings í heiminum. FLUG - 21

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.