Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Blaðsíða 32

Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Blaðsíða 32
UR NAGRENNINU Vélflugdeild Svifflugfélags íslands var stofnuð 16. júlí 1944 af um 20 meðlimum Svif- flugfélagsins. í fyrstu stjórn deildarinnar voru kosn- ir: Kjartan Guðbrandsson, form., Guðbjartur Heið- dal og Ásbjörn Magnússon. Vélflugdeildin var stofn- uð í því augnamiði, að sjá meðlimum sínum fyrir ódýru flugnámi. Námið var takmarkað við meðlimi S.F.F.Í. og starfaði með klúbbsniði. Deildin keypti til landsins Luscombe tveggja sæta vél með 65 ha. Continental-hreyfli. Deildin jók fljótlega flugvéla- kost sinn og er nú svo komið, að deildin á 4 vélar, allt tveggja sæta, einshreyfils vélar. Eru þetta tvær Luscombe, ein Tiger Moth og ein Stearman P.T. 17, sem er 220 ha. — Jafnframt því að deildin jók vélastólinn, var ákveðið að hún skyldi framvegis rekin sem opinber flugskóli, sem stæði opin öllum, er æsktu að læra flug og uppfylltu skilyrði Loftferða- eftirlits ríkisins þar að lútandi. Kennarar við deildina hafa verið ýmsir: Skúli Petersen, Kristinn Olsen, Sig- urður Ólafsson, Georg Thorberg, Hörður Sigurjóns- son, Hörður Jónsson, Halldór Beck, en núverandi kennarar eru Jón Guðmundsson og Stefán Magnús- son, og kom hinn síðar nefndi heim frá Bandaríkj- unum með leiguflugvél Loftleiða h.f. nú um daginn. Stefán er gamall meðlimur Svifflugsfélags íslands, en hefur um 14 mánaða skeið stundað nám við Spart- an flugskólann í Tulsa, Oklahoma, sem og svo margir aðrir íslendingar. Framkvæmdastjóri deildarinnar er Guðm. Baldvinsson. Stjórn deildarinnar skipa nú: K. Guðbrandsson, form., Björn Örvarr, Matthías Matthíasson, Magnús Guðbrandsson og Guðm. Bald- vinsson. Frá stofnun deildarinnar hafa stundað nám um 60 manns. 18 hafa lokið prófi til flugs einliðaðir. En A-prófi (Private) hafa lokið 7 af nemendum deild- arinnar. Flugskólinn Cumulus hóf starfsemi sína í september 1945, og er Cumulus því fyrsti flugskólinn, sem hér er stofnaður. Skólinn byrjaði starfsemi sína með tveimur Tiger Moth vél- um og hafði hvor þeirra 130 ha. D.H. Gipsy Oueene- hreyfil. Skólinn hefur starfað stöðvunarlaust siðan, og hafa á þessu tímabili stundað flugnám við hann milli 40 —50 nemendur. Þar af hafa lokið prófi til flugs ein- liðaðir 15 af nemendum skólans, en 2 hafa lokið A- prófi, sem veitir þeim leyfi til að fljúga eftirlitslaust hvert sem vera skal um landið og taka með sér far- þega, en án endurgjalds. Eigendur skólans eru þeir flugmennirnir Jóhannes Snorrason, Magnús Guðmundsson og Smári Karls- son, allir starfandi hjá Flugfélagi íslands. Unnu þeir þarft og merkilegt brautryðjendastarf með stofnun skólans og sýndu með raunhæfum aðgerðum, að flug- skóli fyrir almenning gat borið sig. Skólanum veitir forstöðu Snorri Snorrason, korn- ungur bróðir Jóhannesar. Kennari er Anton Axelsson flugmaður, en hann hefur nú mikla reynslu í flug- kennslu. Flugfélag Islands áformar að taka upp að nýju reglubundnar ferðir til Fagurhólsmýrar og Egilsstaða. í ráði er einnig að félagið hefji ferðir í náinni framtíð milli Reykjavíkur og Sauðárkróks og Reykjavíkur og Kópaskers. Nú rekur flugfélagið reglubundnar ferðir eins og hér segir: Rvík—Akureyri, Rvík—Reyðarfjörður, Rvík— Norðfjörður, Rvík—Fáskrúðsfjörður, Rvík—Horna- fjörður, Rvík—Kirkjubæjarklaustur, Rvík—Þlólmavík. í utanlandsferðum hefur félagið 24-sæta Liberator, sem það leigir af Scottish Airlines. Fer vélin þrjár ferðir í viku milli Reykjavíkur og Prestwick og tvær ferðir til Kaupmannahafnar. Dagana 17. og 29. sept. voru farnar flugferðir til New York á vegum félagsins. Flugfélagið not- aði Liberator til þessara ferða. Stjóm F.í. hefur til athugunar, hvort mögulegt sé að hefja reglubundið flug til Bandaríkjanna. Kaupmannahafnar- og Prest- wick-ferðunum mun félagið halda áfram í vetur. Flugfélagið hefur í undirbúningi mjög verulega aukningu flugvélakostsins á innan og utan lands flug- leiðum. Catalina-flugbátur félagsins, sem nauðlenti við Laugarnestanga nýlega og skemmdist, mun verða tilbúinn til flugs aftur um áramótin. Nú eru í eigu félagsins 7 flugvélar, sem taka sam- tals 102 farþega. Árið 1938 hóf flugfélagið starfsemi sína, þá undir nafninu Flugfélag Akureyrar. Keypti til byrjunar eina fjögurra sæta Waco með 225 ha. Jakob-hreyfli. 1940 breytti félagið um nafn, flutti höfuðstöðvar sínar til Reykjavíkur. Þá keypti félagið einnig eina flugvél í 30 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.