Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Blaðsíða 33
viðbót, var það vél af sömu gerð og eldri vél féiags-
ins.
F. í. hefur urnboð fyrir sænsku félögin A.B.A. og
SILA, sem eru systrafélög. A.B.A. rekur nú tvær flug-
ferðir í mánuði hverjum milli Reykjavíkur og Stock-
holms.
Danska flugfélagið, D.D.L., sem F. í. hefur einnig
urnboð fyrir, rekur engar flugferðir um ísland sem
stendur, og er allt óráðið með framtíðina.
Flugskóli Akureyrar
hóf starfsemi sína haustið 1945, nreð tveimur Tiger
Moth kennsluflugvélum, sem keyptar voru frá Kan-
ada. Kennari var Kristján Mikaelsson, Akureyri. Að-
setur sitt hafði skólinn á Melgerðismelum í Eyja-
firði, 20 km. frá Akureyri. Kennt var í október og
nóvember í fyrra, en vegna versnandi tíðarfars lagðist
kennslan niður í nóvembermánuði, og hófst aftur í
marzbyrjun í ár. Keypti skólinn um sama leyti eina
fjögra sæta farþegaflugvél af gerðinni Percival Proc-
tor, sem reynzt hefur mjög vel, og réði þá um leið
annan flugmann í þjónustu sína, Njál Guðmunds-
son, Akureyri. Skömmu síðar festi skólinn kaup á
tveim Piper Cuh kennsluflugvélum frá Bandaríkjun-
urn, og voru þær teknar í notkun í byrjun ágústs-
mánaðar. — Aðsókn að skólanum hefur verið mikil,
og hafa nemendur komið víðs vegar að, jafnvel frá
fjarlægustu stöðurn. Alls hafa um 30 nemendur stund-
að flugnám, um lengri eða skemmri tíma, og 9 lokið
„Sóló“-prófi. í sumar hafa allmargir nemendur dvalið
í húsakynnum skólans á Melgerðismelum og haft
þar heimavist. Hefur flugskólinn látið gera hermanna-
skála, er var við flugvöllinn, íbúðarhæfan og lagt
þangað síma og gert þar svo vistlegt fyrir nemendur,
sem kostur var á.
Eigendur skólans eru þeir: Arni Bjarnarson, Akur-
eyri, Gísli Ólafsson, Akureyri, og Steindór Hjaltalín,
Reykjavík.
Loftleiðir h.f.
Félagið á nú 7 flugvélar, eru það tveir Grumman
G 21 flugbátar (Amphibian), tveggja hreyfla, ein
Avro Anson, tveggja hreyfla landvél, ein Stinson
Reliant sjóflugvél, ein Vultee Stinson landvél, ein
Douglas DC 4 Skymaster, sem mun verða tekin í
notkun á utanlandsflugleiðum innan skamrns. Sam-
tals taka vélar félagsins um 84 farþega.
Félagið hefur á prjónunum að auka að mun við
flugvclaflota sinn á næstunni.
Fyrstu 8 mánuði þessa árs hefur félagið flutt 4371
farþega, 5995 kg. af pósti og 35603 kg. af öðrum
flutningi. Flognir hafa verið 206000 km. Flugtími
samtals var á sama tíma 973 klst. Auk þess, sem að
frarnan getur, flaug síldarleitarvél félagsins 300 klst.
í síldarleit.
Tryggingíir
í LOFTI,
Á LÁÐI og
Á LEGL
FLUG - 31