Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Síða 12

Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Síða 12
TF-OGN Hér birtist mynd af íyrstu og einu flugvélinni, sem smíðuð hefur verið hér á landi. Mennirnir, er sfanda framan við flug- véiina, eru þcir flugvélavirk/arnir Björn Ólsen (látinn) og Gunnar Jónasson, núverandi framkvæmdastjóri Stáihúsgögn. Gunnar og B/'örn teiknuðu og smíðuðu vélina að öílu leyti sjálfir, en hreytilinn, sem er „Gipsy“, Jceyptu þeir frá Eng- Iandi. Hófu þeir félagar smíði vélarinnar 1932, en sölcum Iélegra húsnæðisaðstæðna og fjárskorts urðu Iangar tafir við smíðina. Hinn 24. nóvember 1940 var svo vélinni flogið í fyrsta sinn; flugmaður var Örn Johnson framkvstjóri F.í. Flaug hann vélinni nokkrum sinnum eftir það, síðast 7. desember 1940, en þá félí fíug niður vegna Iireyfilstruflana. — Ymsar ástæður ollu því, að ekkert frekar var gjört, þar á meðal tak- markanir þær, sem setuliðið setti fyrir flugi hér á landi. Væri mjög tilhlýðilegt að vélin yrði nú sett á þjóðminja- safnið, því að hvat sem litið er á vélina, ber hún metki alveg dæmafárrar vandvirkni og snilli, auk þess sem vélin á tví- inælalaust eftir að verða verðmæfur min/agripur í augum fram- tíðainnar, þar sem nú flugið verður æ þýðingarmeiri þáttur í samgöngum oícícar innanlands sem utan. landi. Þessi tímamismunur reynist að fara eftir vissum kúrvulínum (hyperbólum), sem eru merktar inn á landabréf leiðsögumannsins (navigator). Leið- sögumaðurinn finnur stöðu farartækisins með því að lesa af tölur á kvarða á sjánni og bera þessar tölur síðan saman við kortið. Loran-kerfið er þegar orðið mjög útbreitt, sérstaklega vestan hafs. Decca-kerfið líkist mjög Gee-kerfinu, sem var mikið notað í stríðinu, en reyndist ekki nógu langdrægt fyrir millilandaflug. Decca er svipað Loran að því leyti, að notuð eru sérstök landabréf, en frábrugðið í því, að hér er ekki mældur tímamismunur milli móttekinna merkja frá sendistöðvunum, heldur hreyf- ir fasamismunur sendistöðvanna (vanalegast eru 3— 4 stöðvar í hverju kerfi) sérstaka fasamæla. Aflestur þeirra samanborínn við landabréfið gefur stöðu farar- tækisins á hverri stundu. Svo mætti að lokum minnast á ConsoJ-kerfið, sem er upphaflega þýzkt. Því svipar að nokkru til hinna eldri miðunarkerfa; notast er við útsendingu morse- geisla. Aðalkostir Consol er tiltölulega mikið lang- drægi, og svo að flugvélar eða skip þurfa aðeins að vera útbúin vanalegum móttakara til að geta notfært sér kerfið. Hér licfur verið stiklað á því stærsta í sambandi við leiðsagnakerfi flugvéla, og væri þá ekki úr vegi að drepa örlítið á atriði, sem er ekki síður mikils- vert en hin, — það er blindíendingin. Oft eru flugvellir huldir þoku eða myrkri, svo að flugmaðurinn verður að lenda vél sinni einungis með aðstoð tækja í vélinni og á jörðu niðri. Blindlending hefur verið auðvelduð með innrauðum geislum, þoku- eyðingu eða sterkum ljósgeislum, en við öruggustu og síðustu aðferðirnar eru notuð sérstök blindlend- ingarkerfi. — Mætti nefna lauslegt dæmi. Á flug- vellinum eru færanlegar sendistöðvar (á bílum), sem senda út radiogeisla (runway-localizer) samsíða braut þeirri, sem lent er á í hvert sinn; í öðru lagi kúrvu- lagaðan geisla (gliding-path), sem sníður hinn og beygir upp á við, og loks lóðrétta geisla við brautar- endann (marker beacons). I vélinni er móttakari fyrir hverja geislategund og mælar, sem sýna, hvort réttri stefnu og hæð sé haldið; sömuleiðis kemur ljósmerki á mælaborðið og hljóð- merki í heyrnartæki flugmannsins, er hann flýgur yfir brautarendann. — Auk áðurnefndra tækja er mikill styrkur að fyrrnefndri hringsjá (Plan Position Indicator). — Þegar eru í notkun mjög fullkomin kerfi af þessu tagi, og stöðugt er unnið að endurbótum þeirra. — Þannig er útlit fyrir að mvrkur og þoka verði á engan hátt þrándur í götu flugsamgangnanna. Þótt hér hafi verið farið hratt yfir sögu, er auðsætt, hversu ríkan þátt rafeindatæknin á í öryggismálum flugsins. Það er ekki óeðlilegt, að flugmenn kalli radio- tækin beztu vini sína, því að þau veita þeim öryggi og festu í starfinu. Reykjavík, í sept. 1946. Sverrir Norland. 10 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.