Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Qupperneq 4
AGNAR KOFOED-HANSEN:
TIU ÁR
AÐ hefur verið starfað samfellt að flugmálum
íslands í 10 ár. Áður, árin 1919—1920 og aftur
1928—1931, höfðu framsýnir brautryðjendur unnið
Agnar Koíoed-Hansen.
að framkvæmdum þessara mála, en starf þeirra strand-
aði á skilningsleysi og þröngýni. Sýnt var af enda-
lokum þessara tilrauna, að venjulegar leiðir, þ. e.
einhliða stofnun hlutafélaga, myndi ekki örugg til
frambúðar og þá fyrst og fremst vegna þess, að lands-
menn vantaði trúna á gildi flugsins.
Flugmálastarfsemin varð að vera alhliða, ætti hún
að eiga líf fyrir höndum. Það varð að ná æskunni
inn í raðir flugmódels- og svifflugsfélaga. Það varð
að ná til almennings með fræðslu um flugmál og
starfsemi flugmálafélaga. Og síðast, en ekki sízt, það
varð að sýna almenningi, að flugrekstur gæti borið
sig fjárhagslega.
Tækist þetta, var líklegt, að flugmál íslands kæm-
ust á traustan grundvöll.
Og þetta hefur tekizt. í dag er líf og fjör í flug-
málum íslands. Margir æskumenn fylkja sér í raðir
svifflugfélaga landsins. Almenningur trúir á framtíð
flugvélanna og notfærir sér óspart flugferðir hinna
tveggja íslenzku flugfélaga.
Flugfélögin hafa byrjað millilandaflugferðir og
fjöldi einstaklinga hefur lært flug ýmist í atvinnu-
skyni eða sér til ánægju og upplyftingar.
Við minnumst nú áranna, sem liðin eru, og ósk-
um afmælisbarninu til hamingju. Við þökkum hin-
um djörfu og fræknu æskumönnum vorum það starf,
er þeir hafa á sig lagt, til þess að flugmálin mættu
sigra. En við höfum engan tíma til þess að skrifa
langar lofgreinar um afmælisbarnið. Framundan eru
stærri verkefni en nokkru sinni fyrr. Við höfum að-
eins náð einum drjúgum áfanga og búið vel í hag-
inn fyrir hinn næsta. Framtíðin blasir við okkur.
Það er gróandi í íslenzku þjóðlífi og þjóðin í vorhug.
Islenzka lýðveldið er endurreist og fullt sjálfstæði
fengið. Landið okkur bíður sona sinna og dætra að
miklu ósnortið og dásamlega fagurt. Hin íslenzku
öræfi með töfrum sínum og unaðssemdum, eru nú
á mjög skömmum tíma opin þeim, sem vilja fljúga.
Hinn stritandi borgari, hvort sem hann er verkamaður
eða skrifstofumaður, hefur að afloknu dagsverki mögu-
leika til að fljúga í einkaflugvél sinni inn á öræfi
íslands eða til einhverrar blómlegrar sveitar, er hugur
hans girnist. Það er ekki lengur nein firra, að menn
geti eignazt einkaflugvélar. Slíkar flugvélar eru ódýr-
ari í innkaupi en einkabifreið og sparneytnari.. Flug-
námið er að vísu nokkuð dýrt ennþá, meðan að svif-
flugið hefur eigi náð almennri útbreiðslu, en svif-
flug er hinn ágætasti og ódýrasti undirbúningur undir
2 - FLUG