Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Síða 5
frekara flugnám. Flugvellir eru víðs vegar um allt
landið, jafnvel fjölmargir í öræfum landsins og
óbyggðum, og hin ytri skilyrði til almenns flugs því
ákjósanleg. Hinn æfaforni draumur mannsandans um
að vera frjáls og fleygur getur nú rætzt. Þetta eru
engir draumórar, þetta á sér stað í dag, en þeir eru
aðeins of fáir, er geta notið þessa. En sá dagur er
vonandi ekki langt undan, að almenningi, með til-
stilli flugsins, gefist kostur á að njóta unaðssemda
þessa lands í enn ríkara mæli en áður. Til þess að
þetta megi verða og flugið verða almennt, þarf margt
að gera. í fyrsta Jagi þarf flugíþróttin að ná til æsk-
Fyrsta reglulega svifflugan, sem S.F.F.Í. eignaðist.
unnar allrar. Flugmódelsmíði þarf að verða skyldu-
námsgrein í lægri bekkjum barnaskólanna, jafn að-
gengilegt fyrir stúlkur sem pilta. Svifflug og renni-
flug ásamt nokkurri tilsögn í flugeðlisfræði þarf að
verða að skyldunámsgrein í efri bekkjum barnaskól-
anna, á sama hátt og leikfimi, sund og umferðar-
fræði. í öðru lagi þurfa ungmenna- og unglingafélög
landsins, ásamt æðri skólum, að taka flugið upp á
sína arma, til þess að unglingarnir geti að skóla-
skyldualdri loknum iðkað flugið áfram. Mér dettur
ekki í hug, að allir ungir menn eigi að verða atvinnu-
flugmenn, frekar en mér dettur í hug að allir, sem
bílpróf taka, geri það í atvinnuskyni. En flugið heill-
ar hugi þeirra æskumanna og kvenna, er það stunda,
er holl íþrótt og göfgandi, og í dag þarfnast æskan
einmitt slíkra verkefna. Með þessu tvennu væri tryggt,
að íbúar þessa lands gætu á komandi árum notið
hinnar stórkostlegu tækni, er framtíðin ber í skauti
sínu.
AVARP
formanns Svifflugfélags Islands
á afmælissýningu félagsins
18. ágúst
Herra forseti íslands. Virðulega forsetafrú. Ágætu
gestir, erlendir og innlendir.
Jafnframt því að bjóða ykkur öll hjartanlega vel-
komin, vil ég fyrir félagsins hönd þakka yður þann
heiður og þá vinsemd, er þið sýnið félagi voru með
nærveru ykkar hér í dag.
Félag vort er aðeins 10 ára og því ef til vill furðu
djarft, að bjóða svo ágætum gestum sem borgurum
þessa bæjar í afmæli 10 ára unglings.
En ágætu gestir, með hlýhug og stuðningi ýkkar
fyrr og síðar hafið þið gert okkur kleift að komast
mun lengra á 10 árum, en suma okkar óraði fyrir,
og þetta þrátt fyrir mjög mikla örðugleika í nær
helming starfstíma okkar, sökum hersetu og styrj-
aldar.
Svifflugur og mótorvélar S.F.F.Í. í röð fyrir framan áhorfenda-
svæðið, áður en sýningin hófst.
Við í Svifflugfélaginu höfum ávallt verið bjart-
sýnir, og stundum þótt fjárhagurinn hafi verið nokk-
uð í skýjunum.
Þegar við stofnuðum þetta félag vort, gat ég engu
lofað stofnendunum öðru en erfiði og vonbrigðum,
þar til okkur tækist að smíða flugtækin og ná það
FLUG - 3