Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Qupperneq 6
mikilli lcikni, að við brytum þau ekki við hverja
æfingu, en við verðurn að hafa hugfast, að enginn
félaganna hafði áður flogið svifflugum eða flugvél-
um yfirleitt.
Oft var djarft teflt, og af vankunnáttu og af van-
búnaði starfað, og þegar \ið lítum yfir starfstímabil
okkar og sjáum í bókum vorum rúm 12 þúsund flug
Minimoa sviffluga í hitauppstreymisflugi yfir Sandskeiði.
og þrjú hundruð próf án vcrulegs óhapps, þá hljótum
við að þakka skaparanum og biðja einnig um hans
forsjá í framtíðinni. Við höfum margs að minnast
og mörgum að þakka. Þegar við byrjuðum, áttu flug-
málin fáa talsmenn. Við þökkum þeim mönnum,
er ruddu brautina fyrir okkar dag með stofnun flug-
félaganna 1919—1920 og 1928—1931.
Skriða skilningsleysis og fjárskorts lokaði að vísu
brautinni löng tímabil. Þar til æska íslands ruddi
brautina svo myndarlega, að nú lokast hún vonandi
ekki að nýju. Við höfum kappkostað að ná æskunni
inn í raðir okkar, og félag vort hefur alið upp svo
stóran hóp flugmanna og flugstarfsmanna, að þeir
eru alls staðar í flugmálum Islands. Þið munuð finna
þá í stjórn flugmálanna, í öryggisþjónustu flugvall-
anna, við vélgæzlu í flugskýlum flugfélaganna, við
stjórnvöl í stýrisrúmi flugvéla flugfélaganna og flug-
skólanna.
Það er óþarft að minnast á, hve mikilvægt þetta
hefur verið fyrir vort unga lýðveldi, er við með skjót-
um hætti verðum að yfirtaka mikil mannvirki, flug-
vclli og ábyrgðarmikil störf í sambandi við þá.
Okkur er sérstök ánægja að sjá hér á meðal gesta
vorra, hæstvirtan forscta íslands, herra Svein Björns-
son, og hans ágætu frú, og minnast þess um leið,
að hann, þá sendiherra íslands í Kaupmannahöfn,
var einn allra ötulasti og einlægasti stuðningsmaður
íslenzkra flugmála. Fyrir persónuleg afskipti hans af
þessum málum, voru gerðar ráðstafanir, er skiptu
miklu fyrir íslenzk flugmál.
Þá vil ég eigi láta hjá líða, að þakka fyrrverandi
ráðherra, Haraldi Guðmundssyni fyrir þann ágæta
skilning, er hann sýndi þessum málurn í ráðherratíð
sinni í byrjun starfs vors.
Ég vil sömuleiðis þakka núverandi flugmálaráð-
herra og flugmálastjóra fyrir skilning þeirra á þörf-
um þessa félags. Svo og öðrum ráðherrum og forráða-
mönnum fyrr og síðar. Hinum fjölmörgu styrktar-
mönnum, bæði nær og fjær, vil ég einnig þakka og
Byr/endafluga (rennifíuga).
biðja þá að misvirða eigi, þótt ég komist ekki yfir
að þakka þeim öllum með nafni.
Ég vil að lokum láta í ljósi þá ósk mína, að okkur
takist hér í dag að veita ykkur dálitla fræðslu um
flugmál, samfara nokkurri skemmtun og er þá tak-
marki voru náð.
4 - FLUG