Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Blaðsíða 8
fáa lendingarstaði og eru sífellt í hættu vegna fall-
vinda og þrumuveðra.
Leyfi ég mér að fullyrða, að Suðurlandsbrún há-
lendisins gefi einna bezt skilyrði til svifflugs hér í
álfu, óvíða mun jafn langur og góður lendingavöllur
eins og sandflákar suðurstrandarinnar.
Þegar frjálst samstarf þjóðanna hefst á ný og fang-
elsismúrar þjóðanna hverfa, þá hefst aftur samstarf
milli þjóðanna, og íþróttafólk álfunnar mun sækja
hingað til æfinga og leiks.
Við skulum hugsa okkur hvernig leiðin Reykja-
vík—Hornafjörður kernur til með að líta út.
Flugið hefjum við af Sandskeiði. Svifflugan er
dregin í 1500 metra hæð af vélflugu. í þeirri hæð
blasir allt Suðvesturland við augum og Þingvallavatn
dimmblátt. Við notum uppstreymi Bláfjalla, þokum
okkur í áttina til Ingólfsfjalls, fljúgum yfir hraun-
strauma Hellisheiðar, — þeir líta út eins og mjúk
flosábreiða, en Heiðin há blasir við til hægri með
fannadrögum. Völundarhús Hengilsins með hundr-
uðum hvera er til vinstri. Nú blasir Suðurlandsundir-
lendi við með víravirki af ám og vötnum, smátjarnir
Flóans, með rauðlituðu vatni og grænbláum pyttum.
Úti fyrir söndurn endalaus brimgarður og dökkbrún
sker.
I Kaldaðarnesi og á Rangárvöllum eru hjálparstöðv-
ar með dráttarvél, ef loftstraumarnir geta eigi borið
sviffluguna austur að Seljalandsmúla, en þar sjást
uppstreymisbólstrar. Við náum hæfilegri hæð á ný
og svífum hátt yfir Eyjafjallabrúnum. Þar leikur lífið
við okkur! Útsýnið er dæmalaust. Við sjáurn allt til
Hofsjökuls, ef skyggni er gott, og svo Tindfjalla- og
Torfajökul, jafnvel til Þórisvatns. Að Skógum er
lendingarstöð, einnig við Dyrhólaey, en við höfum
nú ágætan byr og svífum austur með Mýrdalsjökli.
Þar blasir við augum tröllalandslag — djúp gljúfur
og skriðjökulsfossar, hin fagurmynduðu Mýrdalsfjöll
skaga frarn til sjávar á hægri hönd, en til vinstri
blasir við Kötlugjá og slóðir hinna miklu jökulflóða.
Nú hækkum við flugið til að ná til Síðufjalla, svíf-
urn yfir Rauðubotna meðfram Eldgjánni, sjáum
lengstu gígaröð á Islandi, Lakagígana frægu og vestur-
rönd Vatnajökuls. í góðu skyggni sjáum við Fiski-
vötn eystri og Langasjó. Á Kirkjubæjarklaustri er
flugstöð og einnig á Fagurhólsmýri í Öræfum. Nú
svífum við yfir fögur býli undir háum klettabeltum
6 - FLUG