Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Qupperneq 9
yfir Lómagnúp til Öræfajökuls. Meðfram Skaftafells-
heiðum hækkum við flugið, því að af Langagilseggj-
um er mikið uppstreymi. Við sjáum þá Grænalón
og jöklasund öll umhverfis Skeiðarárjökul. Handan
við vatnasvæði Skeiðarársands er Ingólfshöfði eins og
eyja til að sjá út við brimgarðinn.
Nú hefst sögulegasti kafli ferðarinnar. Við svífum
umhverfis Öræfajökul, yfir Kristínartindum, Máfa-
byggðum og meðfram ísþöktum klettaborgum
Hvannadalshnúks. Við vitum, að í skála „Fjalla-
manna“ við gígskál jökulsins er talstöð og vörður,
og spyrjumst fyrir á merkjamáli, hvort að lending sé
góð á jöklinum og setjumst síðan á hinn slétta jökul
gígskálarinnar. Tökum nú fram létt, stutt sumar-
skíði, rennum okkur niður að skálanum, eftir að við
höfum gengið tryggilega frá svifflugunni. Að lokinni
máltíð í skálanum tölum við til Fagurhólsmýrar, og
lítil dráttarvél útbúin með bæði lendingarhjól og
skíði hnitar hringa meðfram brúnum. Vélin dregur
okkur nú á loft og austur yfir Breiðármerkurjökul.
Við fljúgum yfir ísgröf Kára Sölmundarsonar, þar
sem nú er jökull, en áður var höfuðbólið Breiðár-
mörk.
Esjufjöll blasa við til vinstri, úr þeim hefur skrið-
jökullinn rifið firnin öll af grjóti og dregið slóðann
alla leið fram á sanda.
Við Fellsöxl og Birnudalstinda hækkum við enn
flugið og höfum nægan byr meðfram Suðursveitar-
fjöllum. Brúnir fjallanna eru hér rofnar af giljum
og skriðjöklum, en framundan grösugar sveitir. Loks
blasir Hornafjörður við. í fyrstu virðast húsin fljóta
á vötnunum, en fimm skriðjöklar eru í þann veginn
að flæða yfir láglendið. Þegar við nálgumst staðinn,
hugleiðum við, hvort nægur muni vera byrinn til
að sveima austur með Lónsfjöllum, og gægjast að
fjallabaki inn með Vatnajökli. Þar blasir fjallajöfur
Austurlands, Snæfell, við okkur, yfir Kollumúla og
Tröllakróka.
Líka væri reynandi að svífa fram um Flamars-
fjörð meðfram hnjúkum Hofsjökuls eystri og Þránd-
arjökuls, þaðan er skammt til Álftafjarðar og Djúpa-
vogs, — en við vitum, að þar er lítið undirl'endi, —
Papey og Skrúðurinn sjást í fjarska.
Að lokum hnitum við hringa yfir Hornafirði og
lendum þar á tanganum heilu og höldnu eftir við-
burðaríkan dag. Flægt er að fljúga umhverfis landið,
þegar hjálparstöðvar verða reistar á Egilsstöðum,
Hólsfjöllum og við Námaskarð við Mývatn. En við
nemum staðar í bili.
Það er augljóst mál, að því þéttara sem hjálpar-
og athugunarstöðvar eru, því meira öryggi, einnig er
Fannborg í KeiUngaitjöllum.
mikil hjálp í því, að nú fjölgar einkaflugvélum mjög
ört. Hins vegar getur flugvélin aldrei útrýmt svif-
fluginu, frekar en mótorbátar seglbátum. Að sigla
fleyi er hið upprunalega og sömuleiðis að svífa á
vængjum vindanna. Hið hljóðláta, mjúka svifflug
er íþrótt íþróttanna, líkt og til dæmis sund og skíða-
íþrótt.
Margur mun ætla að þessar framtíðaráætlanir eigi
ekki stoð r veruleikanum. Svo var einnig álitið, er
ég fyrir tuttugu árum skrifaði um að byggja skíða-
skála á Skálafelli, Bláfjallahásléttunni og í Hengla-
fjöllum, slíkt þótti fjarstæða, jafnvel skíðafrömuðir
skrifuðu á móti þessum tillögum ærið háðslega. Nú
standa skálar á öllum þessum fjöllum, og jafnvel við
jöklana. Þúsundir skíðamanna sækja nú skála þessa.
Þangað er fjölmennt á vorin, unglingar eru hlutgengir
þar til leiks.
Eftir tuttugu ár mun svifflugið hafa náð eins mikilli
útbreiðslu og skíðaíþróttin, og við eiga svifflugs-
stöðvar um gervallt landið.
Land, sem á dugmestu sjómenn og bændur, verður
einnig að eiga mikla flugmenn.
Guðmundur Einarsson
frá Miðdal.
FLUG - 7