Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Page 11
svalað, fyrr en rétt um lok Evrópustyrjaldarinnar, og
töluverð leynd hvílir enn yfir sumurn atriðum radars.
Orðið radar er skammstöfun úr „radio detecting
and ranging", þ. e. a. s. aðferð til að finna stað og
fjarlægð einhvers hlutar með aðstoð radiobylgna.
Radartækjunum var beitt á ýmsan hátt, í sambandi
við fallbyssur, loftvarnarbyssur, á skipurn og ekki sízt
í sambandi við flugvélar. í styrjöldinni voru tækin
einskorðuð við hernað, en nú hefur þróunin tekið
aðra stefnu, — stöðugt er unnið að því að breyta
tækjunum til friðsamlegra nota, breyta þeim í ör-
yggistæki, sem geta gerbreytt samgöngumálum þjóð-
anna í framtíðinni.
Of langt mál yrði að skýra radar tæknilega svo að
vel væri, en aðalatriðin mega kallast tiltölulega ein-
föld. Radarsérfræðingarnir notfærðu sér Iiina hálfr-
ar aldar gömlu uppgötvun vísindamannsins Herz
um endurkast rafaldnanna. Segja má, að þetta
endurkast sé grundvöllur radar. Á árunum 1930
—1940 kepptu vísindamenn stórveldanna að því
marki, að útbúa tæki í líkingu við radartækin, og
rétt fyrir styrjöldina höfðu brezkir vísindamenn kom-
ið upp radarstöðvakerfi urn alla austurströnd Eng-
lands.
Einn stærsti áfanginn hefur þó verið smíði magne-
tron-lampans, sem þakka má brezkum verkfræðing-
um. Þessi lampi gerði mönnum fært að starfa á
hinum svonefndu microbylgjum (t. d. 3 cm eða 10000
Mc/s) og ná betri árangri en fyrr. Magnetron-
lampinn auðveldaði meðal annars myndun smáorku-
skammta (pulses), sem vara aðeins brot úr micro-
sekúndu (ein microsek. er einn millj. hluti sekúndu),
og hægt var að beita orkunni með meiri nákvæmni,
en þetta eru mikilsverð atriði radar.
Flestar radarsamstæður byggjast á eftirfarandi
aðalþáttum: microbylgjusendi, nákvæmum móttak-
ara, bakskautsgeislalampa (oscilloscope) og hreyfan-
legu miðunarloftneti.
Ef við höfum endurkast rafaldnanna í huga og
að raföldurnar fara með 300000 km. hraða á klst.,
er auðsætt, að finna má fjarlægð hlutar með því að
senda út orkuskamnrt, sem endurkastast frá viðkom-
andi hlut til móttakarans í grennd við sendinn.
Ef mældur er tíminn, sem það tekur orkuskammt-
inn að fara fram og aftur, má finna vegalengdina
með einfaldri margföldun. — Við eigum erfitt með
að skilja, að unnt sé að mæla tíma í microsekúndum.
Radarsérfræðingunum reyndist það þó tiltölulega
auðvelt með aðstoð bakskautsgeislalampans, sem var
þegar fyrir hendi. Erfiðast reyndist að mynda nógu
skammvinna orkuskammta (pulses), sem magnetron-
lampinn og aðrar uppfinningar leystu þó til hlítar.
Með aðstoð bakskautsgeislalampans hefur tekizt að
korna því þannig fyrir, að unnt er að lesa af fjarlægð
til hlutar á kvarða, sem er á sjá radartækisins.
Um leið og orkuskammturinn er sendur út, kemur
frarn bylgja í byrjunarpunkti kvarðans á sjánni
(scope), en endurvarpið, sem viðtækið skilar, rnyndar
aðra bylgju utar á kvarðann. Millibilið milli bylgn-
anna svarar til þess tírna, sem liðið hefur frá út-
sendingu til endurkomu orkuskammtsins, en tíminn
til þeirrar vegalengdar, sem geislunin hefur farið. (Sjá
mynd).
Myndin sýnir RADAR-sjá og bylg/ur þær á icvarðanum,
sem nefndar eru í greininni.
Mörg afbrigði eru til af radartækjum, en sum
þeirra koma að litlum notum á friðartímum. Hag-
nýtasta afbrigðið er þó eflaust „hringsjáin" (Plan
Position Indicator), sem bregður upp nokkurs konar
útlínumynd af umhverfinu, er sýnir Ijóslega stöðu
tækisins og afstöðu annarra hluta til þess. í sam-
bandi við þetta tæki er t. d. á skipum haft áhald,
sem gefur heyranlegt viðvörunarmerki sjálfkrafa, ef
fastan hlut ber fyrir innan vissrar fjarlægðar (t. d.
fjall eða borgarís).
Áður hafa verið í notkun á hinum föstu flugleið-
um svonefndar Range-stöðvar, eða radiovitar, sem
senda radiobylgjur í ákveðnar áttir út á helztu flug-
leiðirnar. Hér verður getið nokkurra nýrra leiðsagnar-
kerfa fyrir flugvélar og skip á langleiðum.
Loran (stytt úr long range navigation) er amerísk
uppfinning og er notað, eins og nafnið bendir til,
til leiðsagnar á lengri leiðum. Loran-móttakar-
inn í flugvélum eða skipum er þannig útbúinn, að
hann getur mælt tímamismun milli útsendinga sendi-
stöðva, sem er komið fyrir eftir vissum reglum í
FLUG - 9