Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Side 17
FLUGMODEL-SÍÐAN
RITSTJÓRI: HALLGRÍMUR JÓNSSON
pLUGLÍKÖN eða flugmodel eru fyrstu flugtækin,
sem menn smíðuðu og flugu lýtalaust. Þessi smáu
og veikbyggðu tæki, sem mörgum finnst lítið til
koma og ekki til annars en stytta smádrengjum
stundir, hafa hjálpað mönnum í hinni löngu baráttu
Fluglíkanið hér að ofan er nákvæm eftirlíking af Beechcraft
vél F.Í. (TF-ISL). Líkanið smíðaði Albert Tómasson.
þeirra við náttúruöflin urn yfirráðin í loftinu og eru
enn í dag einn þýðingarmesti þáttur flugvélafram-
leiðslunnar um allan heim, því að áður en ný flug-
vélategund er smíðuð, er fyrst gert af henni nákvæmt
líkan og það síðan þrautprófað. Síðan er stóra flug-
vélin smíðuð eftir revnslu þeirri, er fengizt hefur
við prófun modelsins. Hér á íslandi hefur flugmodel-
smíði og modelflug lítið verið stundað. En þó hefur
margur unglingurinn eytt frístundum sínum í til-
raunir og smíði á þessum flugtækjum. Árið 1938
stofnuðu áhugasamir ungir menn félag, er gekk undir
nafninu Flugmodelfélag Reykjavíkur. Það félag starf-
aði margt í þágu flugsins á íslandi, sem hefur orðið
að ómetanlegu gagni fyrir land og þjóð.. í þessu
félagi var drengjum kennt undir handleiðslu Helga
Filippussonar, Guðmundar Eiríkssonar og Ásbjarnar
Magnússonar að smíða flugmodel og láta þau fljúga.
Félagið hafði námskeið á flugeðlisfræði, og var drengj-
unum kennt, á hverju flugið byggist og reynt eftir
fremsta megni að þroska skilning meðlima á fluglist-
inni. Þetta félag er nú því miður ekki starfandi, sök-
um þess, að hernámið lék það mjög grátt og af hús-
næðisleysi, en meðlimir þess hafa sýnt, hvað flug-
model hafa verið og muni ávallt verða mikill þátt-
ur í fluglistinni. Margir af beztu flugmönnum lands-
ins eru gamlir meðlimir í Flugmodelfélagi Reykja-
víkur, Svifflugfélagi Islands og Svifflugfélagi Akur-
eyrar.
SMÍÐIN.
Helztu viðartegundir, sem notaðar eru í flugmodel,
eru balzi, fura og krossviður. Balzinn er viður, sem
vex sunnan til í Ameríku og á Kyrrahafseyjum, og
er hann mjög léttur, allt að 30 til 40% loft, og að
sama skapi stökkur og viðkvæmur. Furan er venju-
leg, kvistalaus fjallafura. Krossviðurinn er þriggja til
fimm laga birki eða fura, sem er frá 0.2 mm. til 3
mm., en þykkari krossviður er ekki hentugur.
Model eru margs konar að gerðum og tegundum,
— svifflugmodel, eftirlíkingar af stórum vélum,
benzín-model, sem knúin eru áfram með litlum
benzínhreyflum (1/10 til 1/2 hestafl) og svifskutlur.
Hér gefur að líta Magnós Norðdahl með benzínhreyfils-model.
Modelið er af „Mercury“-gerðinni, en hreyfillinn er „Ohlson“
14 hestafl. Modelið kiifrar upp í 1000 m hæð á 3 mínútum.
Byrjendur byrja venjulega á að smíða svifflugmodel
og eru þau oft úr krossvið og furulistum. Benzín-
modelin eru oftast smíðuð úr balza og fyrir þá, sem
lengra eru komnir. Auðveldast er að smíða svifskutl-
urnar. Væng-, skrokk-, hæðar- og hliðarstýrislagið er
FLUG - 15